
Drekaskátar, 7-9 ára
Lífið er ævintýri
Starfsvettvangur Drekaskáta er þéttbýlið, líf í borg og bæ. Drekaskátar læra að þekkja umhverfi sitt, hættur í daglegu lífi og rétt viðbrögð við þeim. Lögð er áhersla á ævintýrið, hjálpsemina, glaðværðina og umgengni um náttúruna.
Tvær Drekaskátasveitir eru í Hraunbúum, Hraunálfar og Grábræður.

Fálkaskátar, 10 – 12 ára
Hið ókannaða
Starfsvettvangur: Láglendið – tjaldbúðin. Hér fær ævintýraþráin frekari útrás og nýjar slóðir kannaðar. Í fjölbreyttum verkefnum er lögð áhersla á útilífið ásamt félagslyndi, hópefli, samvinnu og hreyfingu.
Tvær Fálkaskátasveitir eru í Hraunbúum, Rauðskinnur og Riddarar.

Dróttskátar, 13 – 15 ára
Saman
Starfsvettvangur: Heiðin og fyrstu kynni af fjallamennsku. Sjálfstæðið eykst og verkefnin verða meira ögrandi. Nefna má gönguferðir, næturleiki, útieldun, og frumraun í fjallamennsku – allt í hópi jafningja sem marka leiðina saman.
Tvær Dróttskátasveitir eru í Hraunbúum, Pollux og Castor.

Rekkaskátar, 16 – 18 ára
Farðu alla leið
Starfsvettvangur: Hálendið allan ársins hring. Nú er stefnan sett alla leið og er Forsetamerkið lokatakmarkið. Rekkaskátar njóta lífsins í fjölbreyttri náttúru með vinum. Verkefnin eru margvísleg, krefjandi útilíf, alþjóðastarf, og markviss leiðtogaþjálfun.
Ein Rekkaskátasveit er í Hraunbúum, Asterix.

Róverskátar, 19 – 22 ára
Ferðin
Starfsvettvangur: Heimurinn allur. Róverskátar hafa heiminn í hendi sér. Ferð þeirra ræðst nú alfarið af áhugamálum þeirra sjálfra. Róverskátar velja sinn starfsvettvang sjálfir hvort sem það er foringjastarf, starf með björgunarsveit, í sjálfboðaliðastarf í Afríku eða annað, – allt í frábærum félagsskap. Leiðtogaþjálfun skátahreyfingarinnar skilar sér í frumkvæði, sjálfstæði og vináttu í raun.
Ein Róverskátasveit er í Hraunbúum, Trail.
Unnið úr efni frá BÍS.


