Í hverri sveit eru nokkrir flokkar. Yfir hverri sveit er sveitarforingi sem vinnur náið með flokksforingjum og heldur utan um starf sveitanna.
Drekaskátar
Grábræður
Strákar á aldrinum 7-9 ára
Grábræður er Drekaskátasveit með stráka á aldrinum 7-9 ára. Grábræður hittast einu sinni í viku og fara auk þess í dagsferðir.
Sjá dagskrá Grábræðra hér.
Hraunálfar
Stelpur á aldrinum 7-9 ára
Hraunálfar er Drekaskátasveit með stelpur á aldrinum 7-9 ára. Hraunálfar hittast einu sinni í viku og fara auk þess í dagsferðir.
Sjá dagskrá Hraunálfa hér.
Fálkaskátar
Riddarar
Srákar á aldrinum 10-12 ára
Riddarar er elsta starfandi sveit Hraunbúa. Í Riddurum eru fimm flokkar, Kastalabúar, Léttfetar, Drekar, Bjórar og Krossfarar. Í Riddurum er farið í útilegur og dagsferðir. Skátunum er kennt mikið í útivist og eiga að geta bjargað sér sjálfir í útilegum.
Sjá dagskrá Riddara hér.
Rauðskinnur
Stelpur á aldrinum 10-12 ára
Sveitarfundir eru einu sinni í viku. Farið er í tvær sveitarútilegur, dagsferðir, félagsútilegu og vormót.
Sjá dagskrá Rauðskinna hér.
Dróttskátar
Ds. Castor
Krakkar á aldrinum 13-15 ára
Sjá dagskrá Ds. Castor hér.
Rekkaskátar
Rs. Asterix
Krakkar á aldrinum 16-18 ára
Öll sveitin hittist einu sinni í viku. Rekkaskátar eru einnig mjög virkir í öllu starfi félagsins og burðarbiti margra viðburða. Í rekkaskátum er heilmikið útilíf enda byggist starfið á því.
Sjá dagskrá Rs. Asterix hér.
Róverskátar
Rs. Trail
Fólk á aldrinum 19-23
Róversveitin Trail hittist óformlega og kemur helst að innra starfi félagsins.
Tölvuálfar
Umsjónarmenn tölvu- og netkerfis Hraunbúa. Tölvuálfar hafa séð um og rekstur tölvu- og netkerfi félagsins frá því Gísli og Davið fengu það verkefni árið 1999. Þeir sjá einnig um vefsíðu félagsins, hraunbuar.is.


