Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Dagsferð Riddara frestað

Andri Már Reynisson ritaði þann 25. febrúar 2012

Á morgun, sunnudag, var fyrirhuguð dagsferð Riddara í Heiðmörk, þar sem ætlunin var að gera sér glaðan dag.

Því miður frestast ferðin um a.m.k. 2 vikur. Nánari upplýsingar verða veittar síðar.

 

Kveðja,

Andri


Flokkur: Almennt | Comments Off

Kvöldvaka í Hraunbyrgi

Auður Ingólfsdóttir ritaði þann 21. febrúar 2012

Það verður haldin kvöldvaka í Hraunbyrgi miðvikudaginn 22. febrúar. Allir eru eindregið kvattir til þess að mæta því að þetta verður afskaplega mikið fjör! :) Það verður spilað, sungið og drukkið kakó. Einnig verða skemmtileg skemmtiatriði í boði sveita. Allir foreldrar eru eindregið hvattir til þess að mæta með skátunum á þennan atburð. Sjáumst hress. :)


Flokkur: Almennt | Comments Off

Niðurgreiðsla á félagsgjöldum
– íbúagáttin er opin til og með 15. febrúar -

Páll Línberg Sigurðsson ritaði þann 6. febrúar 2012

Frá árinu 2002 hefur Hafnarfjarðarbær greitt niður þátttökugjöld fyrir börn og unglinga í æskulýðs- og íþróttafélögum í Hafnarfirði.  Markmið niðurgreiðslna er að gera börnum með lögheimili í Hafnarfirði kleift að taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi óháð efnahag fjölskyldna og að efla íþrótta- og annað forvarnastarf í Hafnarfirði. Einnig á niðurgreiðslan að vinna gegn óæskilegu brottfalli í eldri aldurshópum iðkenda.

Þeir foreldrar sem eiga börn í skátnum, eru hvattir til að nýta sér þennan styrk til lækkunar á félagsgjaldi skátans – ef þið nýtið ykkur ekki þennan styrk, lítum við svo á að þið viljið greiða þennan hluta félagsgjaldsins sjálf og munum senda ykkur greiðsluseðil fyrir samskonar upphæð og styrkurinn hefði orðið.

Miðvikudaginn 1. febrúar var opnað fyrir umsóknir um niðurgreiðslu á þátttökugjöldum barna og unglinga  og verður opið til og með 15.febrúar.  Sækja verður um niðurgreiðsluna í gegnum íbúagáttina á www.hafnarfjordur.is


Flokkur: Almennt | Comments Off

Rauðskinnustarfið hafið

Birna Sigurðardóttir ritaði þann 25. janúar 2012

Vorönnin hjá Rauðskinnum er hafin af fullum krafti. Á fyrsta fundi var vorönnin kynnt, kosið var um umbun þar sem stúlkurnar munu safna saman límmiðum fyrir mætingu og fá að launum að baka muffins. Einnig voru önnur verkefni kláruð, til dæmis var Rauðskinnumerkið klárað á veggnum í sveitarherberginu.

Í síðustu viku var ljósmyndamaraþon þar sem stúlkurnar fengu 25 erfið orð til þess að taka myndir af. Myndirnar voru síðan klipptar út og settar á plakat og munu þau prýða Hraunbyrgi næstu vikur.

Á næsta fundi, 31. janúar verður farið í heimsókn í Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Mæting er á Flatarhraun kl. 17:30 en sækja á stelpurnar í Hraunbyrgi, þar sem við munum rölta til baka eftir smá kynningu.

Þann 3. febrúar verður svo sleepover í Hraunbyrgi. Mikilvægt er að foreldrar skrái stúlkurnar með því að senda póst á marta(hjá)hraunbuar.is. Stelpurnar fengu blað með upplýsingum á síðasta fundi, en einnig má sjá blaðið í heild sinni með því að ýta á ,,lesa alla frétt”.

Dagskrá vorannar má einnig nálgast á skrifstofu, hjá sveitarforingjum eða hér.

 

Kveðja,

Birna, Marta og Mekkín :)

Lesa alla frétt »


Flokkur: Almennt, Rauðskinnur | Comments Off

Aðalfundarboð – 20. febrúar – kl. 19:00

Páll Línberg Sigurðsson ritaði þann 20. janúar 2012

Sæl verið þið

Boða hér með alla skáta 16 ára og eldri og einn forráðamann hvers skáta undir 16 ára aldri í félaginu til aðalfundar Hraunbúa mánudaginn 20. febrúar í Hraunbyrgi, kl. 19:00.

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

  • a)     Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  • b)    Skýrsla stjórnar.
  • c)     Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf og annarra eininga félagsins.
  • d)    Umræður um framlagðar skýrslur.
  • e)     Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
  • f)     Lagabreytingar.
  • g)    Kynning frambjóðenda.
  • h)     Kosning stjórnar.
  • i)      Kosning tveggja varamanna stjórnar
  • j)      Kosning tveggja skoðanamanna reikninga.
  • k)     Kosning þriggja manna í­ laganefnd.
  • l)      Kosning þriggja manna í­ uppstillingarnefnd.
  • m)   Önnur mál.

Varðandi kosningarrétt, þá er hér 3.3. grein laga skátafélagsins  um kosningarrétt hvers skáta eða forráðamanns.

  • Grein 3.3.
    Kosningarétt hafa starfandi skátar 16 ára og eldri, ef árgjöld þeirra er í­ skilum. Einnig einn forráðamaður hvers skáta undir 16 ára aldri í­ félaginu ef árgjöld skátans er í­ skilum. Enginn einn forráðamaður getur farið með fleira en eitt atkvæði á aðalfundi.

Fyrir þá sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn eða sem varamenn er bent á skoða lagagreinar á vefsíðu félagsins og eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við uppstillingarnefnd, en hana skipa:

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Með kærri kveðju,

Stjórn Hraunbúa


Flokkur: Almennt | Comments Off

Foreldrafundur vegna Landsmóts

Kolfinna Snæbjarnardóttir ritaði þann 19. janúar 2012

Fararstjórn Hraunbúa ætlar að halda fund um Landsmót skáta 2012 fimmtudaginn 26. janúar kl. 20. Fundurinn verður í Hraunbyrgi. Hann er hugsaður fyrir foreldra/forráðarmenn landsmótsfara úr Hraunbúum en auðvitað eru allir velkomnir.

Farið verður yfir flestallt sem tengist landsmótinu: Skipulag, fjáraflanir, fjölskyldubúðir, verð og fleira.

Vonumst til að sjá sem allra flesta!

Bestu kveðjur,

Fararstjórn Hraunbúa

María, Kolfinna, Una og Birgir


Flokkur: Landsmót | Comments Off