Birna Sigurðardóttir ritaði þann 9. nóvember 2011

Fyrsta sveitarútilega Rauðskinna verður næstu helgi í Lækjarbotnum. Mæting er við skilti Skógræktarfélags Kópavogs klukkan 20:00 föstudaginn 11. nóvember (vera búnar að borða kvöldmat), en sækja á stúlkurnar á sama stað á hádegi, kl.13:00, sunnudaginn 13. nóvember. Við ætlum að labba frá skiltinu að sk
álanum svo það er mikilvægt að skátarnir séu almennilega klæddir og geti gengið með allan farangurinn sinn.
Til að komast að mætingarstaðnum er beygt inn afleggjara útfrá Suðurlandsveg. Við afleggjarann er skilti sem á stendur sumarbústaðir/sumarhús. Við munum merkja skiltið með blöðrum. Afleggjarinn er um 14 km austur Suðurlandsveginn.
Skráning er hafin og stendur þar til á fimmtudaginn. Með því að borga útilegugjaldið eru stúlkurnar skráðar í útileguna.
Stelpurnar hafa fengið foreldrabréf með sér heim en einnig má lesa bréfið í heild sinni með því að ýta á ,,lesa alla frétt”.
Vonumst til að sjá sem flestar :)
Bestu kveðjur,
Birna, Marta og Mekkín
Lesa alla frétt »
Flokkur: Útilegur, Rauðskinnur |
Comments Off
Guðvarður Ólafsson ritaði þann 3. nóvember 2011
Á fundi Hraunbúasjóðsins þann 25. október 2011 var eftirfarandi ákveðið:
Umsóknartímabili á hverju ári hefur verið skipt upp í tvennt, m.a. til að einfalda umsóknarferlið, og svo að styrkveitingar nýtist betur í skátastarfi í Hafnarfirði.
Haustúthlutun – Umsóknarfrestur er 1. október
Vorúthlutun – Umsóknarfrestur er 1. febrúar
Fundir Hraunbúasjóðsins verða haldnir að meðaltali tveim vikum eftir að umsóknarfresti lýkur og verður þá farið yfir þær umsóknir sem borist hafa. Öllum umsóknum skal skila til ritara Hraunbúasjóðsins.
Einnig var ákveðið á fundi Hraunbúasjóðsins að á árinu 2012 mun sjóðurinn ekki veita ferðastyrki.
Upplýsingar um Hraunbúasjóðinn má finna hér.
Flokkur: Almennt |
Comments Off
Andri Már Reynisson ritaði þann 2. nóvember 2011
Um helgina fara Riddarar í sveitarútilegu í Hverahlíð, skátaskála Hraunbúa við Kleifarvatn í Krýsuvík. Að venju verður margt um að vera í útilegunni. Gist verður eina nótt, aðfaranótt sunnudags. Mæting er kl. 10 á laugardagsmorgninum við afleggjarann að Hverahlíð við suðurenda Kleifarvatns í Krýsuvík. Útilegunni lýkur svo kl. 15:00 á sunnudeginum þar sem sækja þarf skátana á sama stað.
Skráning fer fram á netfanginu andri@hraunbuar.is, en verð fyrir útileguna er 1.000,- kr.
Skátarnir fengu útbúnaðarlista með sér heim á miðvikudaginn fyrir 2 vikum. Á sveitarfundinum í dag fá skátarnir með sér dagskrá fyrir útileguna þar sem allar helstu upplýsingar koma fram.
Ef einhverjar spurningar má endilega hafa samband við sveitarforingja Riddara.
Við hvetjum alla Riddara til að mæta í útileguna!
Kveðja,
Andri
Flokkur: Almennt, Útilegur, Riddarar, Viðburðir |
Comments Off
Una Guðlaug Sveinsdóttir ritaði þann 31. október 2011
Drekaskátar eru búnir að bretta upp ermar og gera herbergið sitt svakalega fínt. Þetta er enn í vinnslu, en nú þegar eru tilbúin skilti með sveitarnöfnum auk þess sem herbergið er orðið fullbúið húsgögnum og myndir hanga á veggjunum. Einnig er í bígerð að útbúa snaga þar sem skátarnir geta geymt klútana sína. Myndir af herlegheitunum verða birtar von bráðar.
Á næsta fundi höldum við áfram með þetta verk, auk þess sem við ætlum að enda fundinn með varðeldi. Því er mikilvægt að allir muni eftir útifötunum!
Kveðja,
Hreiðar og Una
Flokkur: Almennt |
Comments Off
Kolfinna Snæbjarnardóttir ritaði þann 25. október 2011
Foreldrafundur fyrir Landsmót 2012 verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 26.október, kl. 20.00 í Hraunbyrgi. Gestir frá BÍS munu mæta og kynna mótið, fararstjórar Hraunbúa verða kynntir, farið verður yfir fjáraflanir og fleira.
Við hvetjum alla sem ætla á Landsmót 2012, eða eru ennþá að velta því fyrir sér, til að koma ásamt foreldrum sínum og kynna sér málið betur.
Heimasíða Landsmóts er eftirfarandi: http://www.skatar.is/landsmot2012/
Hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest á morgun!
Flokkur: Almennt |
Comments Off
Smári Guðnason ritaði þann 24. október 2011
Undir Tölvuálfum er flokkurinn Vefnefnd, sá flokkur sér um síðuna okkar góðu www.hraunbuar.is. Flokkurinn hefur verið í dvala undanfarin ár en nú hafa Tölvuálfar ákveðið að endurvekja þennan flokk. Ætlunin er að fá um 2-4 meðlimi og munu þeir sjá um fréttir, efni og myndir. Leitað er eftir strákum og stelpum 13 ára eða eldri. Vefnefnd mun funda nokkru sinnum á ári.
Starf vefnefndar gengur út á að halda vefnum okkar lifandi með fréttum, myndum og öðru skemmtilegu. Meðlimir vefnefndar eru með aðgang að fréttkerfi síðunnar og þurfa því að vera ábyrgir einstaklingar. Meðlimir vefnefndar fá einnig aðgang að stafrænum myndavélum félagsins til að taka myndir af ýmislegum atburðum í skátastarfinu.
Til að koma í veg fyrir að rangur aðili fái aðgang að fréttakerfi síðunnar verður umsækjandi að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Lágmarks tölvukunnátta
- Aðgang að interneti
- Vera sæmilegur penni
- 13 ára eða eldri.
- Ábyrgur
Fylltu út þessa umsókn og sendu á smari@hraunbuar.is merkt “Tækifæri lífsins” fyrir mánudaginn 7. Nóvember!
Flokkur: Tölvuálfar |
Comments Off