Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Minningarkort

Hraunbúasjóðurinn hefur nú hafið sölu á minningarkortum.

Hörður Zóphaníasson stofnaði sjóðinn á 75 ára afmæli sínu, 25. apríl 2006, í minningu Rúnars Brynjólfssonar.

Sjóðurinn er til styrktar skátastarfi í Hafnarfirði.

Minningarkortin má nálgast í Skátaheimilinu Hraunbyrgi á skrifstofu- og fundartíma eða í síma 565 0900.  Einnig er hægt að senda póst á minningarkort@hraunbuar.is.  Þá eru kortin einnig til sölu í Blómabúðinni Burkna.

Hraunbúar sjá síðan um að senda kortið til mótttakanda með pósti næsta virka dag. Sendandi greiðir síðan tilgreinda upphæð (lágmark kr. 1.000.-) í Hraunbúasjóðinn.

Vinsamlegast athugið að pöntun þarf að berast 48 klst. fyrir sendingardag og að móttaka fer ekki fram um helgar.

Reikningsnúmer sjóðsins er 0140-15-375606 og kennitala sjóðsins er 560606-0790