FYRIR 6-7 ÁRA BÖRN, FÆDD 2019 – 2020

Fundir eru einu sinni í viku á þriðjudögum kl. 16:00 til 17:00. Fyrsti fundur verður 8. september 2026.

Deildarforingi: Sandra Mey

Þriðjudagar kl 16:00-17:00
Sveitaforingjar:
Sandra Mey
Guðni Stefán
Dagný Björk

Starf hrefnuskáta

Forvitni, uppgötvun og gaman

Hrefnuskátastarfið er fyrsta skref margra barna inn í skátastarfið. Börnin læra fyrst og fremst með leik, hreyfingu og því að prófa sjálf.

Á fundunum leysa þau einföld verkefni, njóta útivistar, upplifa náttúruna á eigin skinni og læra að hjálpa öðrum. Verkefnin tengjast meðal annars dýrum og plöntum, sköpun, hreyfingu, samvinnu og öruggri umgengni í náttúrunni.

Börnin fá að æfa sig í að hlusta, fylgja leiðbeiningum, segja frá eigin hugmyndum og finna lausnir á einföldum viðfangsefnum með stuðningi foringjanna. Þau kynnast skátaheimilinu, hópnum sínum og þeirri gleði sem fylgir því að takast á við ný verkefni með öðrum.

Vikulegir fundir

Fundirnir eru ein klukkustund og hafa skýra og einfalda umgjörð. Á hverjum fundi er blandað saman leikjum, hreyfingu, sköpun og verkefnum sem hæfa aldri barnanna.

Áhersla er lögð á að öllum líði vel í hópnum og að börnin fái smám saman aukið sjálfstraust til að taka frumkvæði, tjá skoðanir sínar og standa á eigin fótum. Og já, þau fá líka að læra að það sé stundum alveg í lagi að verða skítug í góðu ævintýri.

Við reynum að vera utandyra þegar aðstæður leyfa. Börnin þurfa því að mæta í hlýjum fötum og skóm sem henta veðri hverju sinni.

Ferðir og viðburðir

Hrefnuskátar geta tekið þátt í völdum ferðum og viðburðum sem henta aldri þeirra. Upplýsingar um slíka viðburði eru sendar sérstaklega til foreldra og forráðamanna.

Börnin þurfa ekki að eiga sérstakan búnað til að byrja í hrefnuskátum. Bæði börn sem hafa áður tekið þátt í fjölskylduskátum og þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í skátastarfi eru hjartanlega velkomin.

EINKENNI HREFNUSKÁTA

Hrefnuskátar bera fjólublár klút með ljósbláum, grænum, rauðum og gulum röndum meðfram brúnum beggja skammhliða. Klúturinn er festur með skátahnút sem skátarnir útbúa sjálfir eða bundinn með vinahnút.

Klútinn fá skátarnir afhentan þegar þau eru vígð inn í skátahreyfinguna og hafa lokið vígslugrunni síns aldursbils. Vígslugrunnur hrefnuskáta er að vinna skátaheitið, þekkja kjörorð skáta og tileinka sér fyrstu tvær greinar skátalaganna.

SKÁTALÖG HREFNUSKÁTA

Skáti er hjálpsamur
Skáti er glaðvær

Þátttökumerki hrefnuskáta er þríhyrningslaga og er saumað aftan á klútinn.