Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Útivistartí­mi

Foreldrar vita öllum betur hvað börnum þeirra er fyrir bestu. í könnun RUM (Rannsóknarstofnun uppeldis- og menntamála, 1997) kom fram að 90% foreldra segjast virða reglur um útivistartí­ma barna og unglinga. Er gott til þess að vita, þar sem fátt er betur til forvarna fallið en nærverustundir foreldra með börnum sí­num.

í barnaverndarlögum er kveðið á um útivistartí­ma barna. Þar kemur fram að börn 12 ára og yngri mega ekki vera á almannafæri eftir kl 20.00 nema í­ fylgd með fullorðnum. Börn á aldrinum 13-16 ára skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, í­þrótta- eða æskulýðssamkomu. í tí­mabilinu 1. maí­ til 1. september lengist útivistartí­mi barna um tvær klukkustundir. Aldursmörk þessa ákvæðis miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag.

Ekki þarf annað en að skoða á hvaða tí­mum sólarhrings börn byrja að fikta með áfengi og aðra ví­mugjafa og hvenær alvarlegar lí­kamsárásir og óæskileg kynlí­fsreynsla eiga sér stað, til að skilja að útivistarreglurnar eru ekki settar fram af neinni tilviljun. Þess utan er nægur svefn mikilvæg forsenda vellí­ðunar og árangurs í­ skólanum.

Rí­kislögreglustjóri, Lögreglan í­ Reykjaví­k, Ví­mulaus æska, ísland án eiturlyfja og samtaka sveitarfélög hafa lagt áherslu á að gera upplýsingar um reglur um útivistartí­ma barna sem aðgengilegastar fyrir foreldra. Til að ná þessu fram hafa til að mynda Reykjaví­kurborg og lögreglan í­ Reykjaví­k sent nemendum í­ 2. og 7. bekk og foreldrum þeirra segulmottu þar sem fram koma upplýsingar um útivistartí­mann. Nánari upplýsingar um segulmotturnar eru veittar hjá ífengis- og ví­muvarnaráði í­ sí­ma 585-1470.

af logreglan.is