Handbók Hraunbúa inniheldur mikið magn upplýsinga um félagið og var útgefin fyrst vorið 2007. Handókin er hluti af því að vera félag á réttri leið sem er gæðakerfi hjá Bandalagi íslenskra Skáta.
í vefsíðu BíS segir m.a.
“í réttri leið” gæðamat í skátastarfi er verkefni á vegum Bandalags íslenskra skáta.
Gæðamatið hefur tvíþættan tilgang, annan sem snýr að innra starfi félagsins og hinn sem snýr að því umhverfi sem skátafélagið starfar í. Með markvissu starfi stjórnar aukast líkur á að starfið í skátasveitunum eflist og þannig skiptir störf stjórnar verulegu máli fyrir skátana og foreldra þeirra. Þegar félag hefur hlotið gæðaviðurkenninguna getur það á áþreifanlegan hátt sýnt sveitarfélagi, fyrirtækjum og öðrum að á vegum þess fari fram gæða starf sem hlotið hafi viðurkenningu Bandalags íslenskra skáta.


