Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar úr 'Viðburðir' flokknum

Ævintýraratleikur 2. október

október 4th, 2010 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Síðasta laugardag var heldur betur glatt á hjalla í Hraunbyrgi. Kátir skátar og foreldrar mættu þar til leiks í ævintýraratleik. Verkefnin voru margvísleg og reyndu meðal annars á sköpunarkraft, snerpu og skyndihjálparkunnáttu skátanna. Ratleikurinn endaði með kanóferð út í eyju, þar sem fjársjóður beið skátanna. Að lokum söfnuðust allir saman í Hraunbyrgi þar sem léttar veitingar voru í boði, auk þess sem hægt var að búa til vinabönd og lita skátamyndir.

Takk fyrir góðan dag!

Flokkur: Viðburðir | Comments Off

Ævintýraratleikur í Hraunbyrgi

september 24th, 2010 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Laugardaginn 2.október bjóða Hraunbúar skátum og foreldrum  þeirra í ævintýraratleik í Hraunbyrgi og nágrenni. Dagskráin hefst kl. 13:00 og mun henni ljúka kl. 15:00. Boðið verður upp á kaffi, djús og kex að ratleik loknum.

Sérstök dagskrá verður fyrir Dróttskáta og Rekkaskáta.

Við hvetjum alla til að mæta og eiga skemmtilegar skátastundir!

Flokkur: Viðburðir | Comments Off

Vel heppnað kynningarkvöld

ágúst 26th, 2010 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Í gær var margt um manninn og mikið fjör í Hraunbyrgi! Gífurlegt magn af pylsum rann ljúflega niður í spennta núverandi og tilvonandi skáta og foreldra þeirra. Hoppukastalar og leiktæki vöktu mikla lukku og eftirvænting ríkti fyrir hinu skemmtilega starfsári sem er framundan.

Fundir hefjast mánudaginn 30. ágúst, og fundartíma má sjá hér hægra megin á síðunni. Hægt er að skrá sig í skátana á skrifstofunni, sem verður opin á meðan á fundum stendur.

Óskilamunir frá Vormóti og útilífsnámskeiðum sumarsins eru í Hraunbyrgi, og er ennþá hægt að koma við og líta á þá.

Sjáumst í næstu viku!

Flokkur: Viðburðir | Comments Off

Kynningarkvöld í Hraunbyrgi

ágúst 18th, 2010 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Miðvikudaginn 25. ágúst ætla Hraunbúar að kynna skátastarf vetrarins. Fjörið hefst klukkan 18:00 í Hraunbyrgi. Boðið verður upp á pylsur, djús og kaffi. Einnig verða hoppukastali og leiktæki á svæðinu og klifurveggurinn verður opinn. Sveitarforingjar verða á staðnum til að kynna dagskrá vetrarins.

Óskilamunir frá sumrinu verða á borði og viljum við hvetja alla til að kíkja á þá.

Sjáumst á miðvikudaginn!

Flokkur: Viðburðir | Comments Off

85 ára afmælishátíð

febrúar 3rd, 2010 by Smári Guðnason

85 ára afmælishátíð Hraunbúa verður haldin sunnudaginn 21. febrúar næstkomandi. Félagið var stofnað þann 22. febrúar árið 1925. Hvetjum alla til að mæta.

Nánari upplýsingar koma þegar nær dregur.

Flokkur: Viðburðir | Comments Off

Aðalfundur

janúar 27th, 2010 by Smári Guðnason

Aðalfundur skátafélagsins Hraunbúa verður haldinn:

Þriðjudaginn 23. febrúar kl. 19:00


Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b) Skýrsla stjórnar.
c) Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf. og annarra eininga félagsins.
d) Umræður um framlagðar skýrslur.
e) Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
f) Lagabreytingar.
g) Kosning stjórnar.
h) Kosning tveggja varamanna stjórnar.
i) Kosning tveggja skoðanamanna reikninga.
j) Kosning þriggja manna í laganefnd.
k) Kosning þriggja manna í uppstillingarnefnd.
l) Önnur mál.

Fyrir þá sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn eða sem varamenn er bent á eftirfarandi lagagreinar og vinsamlegast beðnir um að hafa samband við uppstillingarnefnd, en hana skipa:

Ingólfur Már Grímsson, s. 898 6268, ingohair@hotmail.com
Jakob Guðnason s. 823 5147, jakob@hraunbuar.is
Þórólfur Kristjánsson, s. 660 0301, toti@hraunbuar.is

Skv. lögum félagsins hefur sá atkvæðisrétt sem uppfyllir eftirfarandi ákvæði:

3.3 Kosningarétt hafa starfandi skátar 15 ára og eldri. Forráðamaður (aðeins einn) skáta 15 ára og yngri hefur kosningarétt í hans stað. Árgjöld þurfa að vera í skilum til að fá að kjósa.

3.6 Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum, félagsforingja, aðstoðarfélagsforingja, ritara, gjaldkera og 3 meðstjórnendum. Félagsforingi, aðstoðarfélagsforingi, ritari og gjaldkeri skulu kosnir sérstaklega en aðrir stjórnarmenn í einu lagi. Stefnt skal að því að jafnan sé minnst einn stjórnarmanna kjörinn úr hópi forráðamanna starfandi skáta undir 15 ára aldri.

3.7 Ef stjórnarmeðlimur óskar eftir því að víkja úr stjórn vegna óviðráðanlegra ástæðna tekur fyrsti varamaður sæti í stjórn og annar varamaður ef annar þarf að víkja. Varamaður tekur ávallt sæti meðstjórnenda nema full sátt sé um annað í stjórn. Víki þrír eða fleiri úr stjórn skal boða til félagsfundar.

3.8 Verksvið stjórnar eru fjármál, húsnæðismál, umsjón með eigum félagsins, svo og öðru því sem þarf til að tryggja öfluga starfsemi félagsins í samvinnu við foringjaráð félagsins.

Boðið verður upp á kaffi og með því.

Með von um góða mætingu

Stjórn Hraunbúa

Flokkur: Almennt, Viðburðir | Comments Off