nóvember 14th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Howdy Hraunbúar!
Loksins er skráning Hraunbúa á Landsmót skáta 2012 hafin! Með því að smella á linkinn hér fyrir neðan komist þið inn á skráningarsíðu Hraunbúa. Mikilvægt er að vanda sig við skráningu og fylla allt saman vel og vandlega inn. Muna að skrá skátann sem: Participant.
Ekki er búið að ákveða lokafrest skráningar, en það er samt best að skrá sig sem fyrst, svo fararstjórn fái sem réttasta mynd af fjölda til að geta samið við rútufyrirtæki og ákvarðað sameiginlegan kostnað.
Aðrar landsmótsfréttir:
Önnur fjáröflun Hraunbúa er að fara af stað í þessari viku, og munu allir skátar fá með sér bréf heim um hana. Einnig munu upplýsingar verða sendar foreldrum í tölvupósti. Stefnan er tekin á tvær til þrjár fjáraflanir til viðbótar eftir áramót. Nú þegar eru nokkrir skátar næstum því búnir að safna fyrir öllu landsmótsgjaldinu, svo það er um að gera að vera duglegur í fjáröflununum!
Fyrir jól fá skátar og foreldrar þeirra sent upplýsingahefti um landsmót, þar sem fararstjórn segir frá öllu sem komið verður á hreint þá. Einnig verður foreldrafundur í lok janúar.
Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna!
Tengill á skráningu fyrir Hraunbúa:
Tengill á heimasíðu landsmóts:
http://www.skatar.is/landsmot2012/
Bestu kveðjur,
Fararstjórn Hraunbúa
Una Guðlaug, María Björg, Kolfinna og Birgir Snær
Tölvupóstur: landsmot@hraunbuar.is
Flokkur: Almennt, Ds. Castor, Landsmót, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix, Viðburðir |
Comments Off
nóvember 2nd, 2011 by Andri Már Reynisson
Um helgina fara Riddarar í sveitarútilegu í Hverahlíð, skátaskála Hraunbúa við Kleifarvatn í Krýsuvík. Að venju verður margt um að vera í útilegunni. Gist verður eina nótt, aðfaranótt sunnudags. Mæting er kl. 10 á laugardagsmorgninum við afleggjarann að Hverahlíð við suðurenda Kleifarvatns í Krýsuvík. Útilegunni lýkur svo kl. 15:00 á sunnudeginum þar sem sækja þarf skátana á sama stað.
Skráning fer fram á netfanginu andri@hraunbuar.is, en verð fyrir útileguna er 1.000,- kr.
Skátarnir fengu útbúnaðarlista með sér heim á miðvikudaginn fyrir 2 vikum. Á sveitarfundinum í dag fá skátarnir með sér dagskrá fyrir útileguna þar sem allar helstu upplýsingar koma fram.
Ef einhverjar spurningar má endilega hafa samband við sveitarforingja Riddara.
Við hvetjum alla Riddara til að mæta í útileguna!
Kveðja,
Andri
Flokkur: Almennt, Útilegur, Riddarar, Viðburðir |
Comments Off
ágúst 24th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Kæru Rauðskinnur, Riddarar og DS Castor. Vegna óviðráðanlegra og margþættra ástæðna fellur síðasti sumarfundurinn, sem átti að vera í kvöld, niður. Í staðinn er ykkur öllum boðið að mæta á opið hús í Hraunbyrgi fimmtudaginn 1.september kl.18-20 þar sem boðið verður upp á maaaaargt og mikið spennandi:D Hlökkum til að sjá ykkur fyrsta september! Og takk kærlega fyrir alveg yndislegt sumar, það er búið að vera ótrúlega gaman með ykkur í sumar.
Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar, Viðburðir |
Comments Off
ágúst 14th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Undirbúningur Félagsútilegu Hraunbúa haustið 2011 er farinn á fullt, en útilegan verður haldin í Hogwarts, skóla galdra og seiða (Vindáshlíð), helgina 23.-25.september 2011. Þemað að þessu sinni er HARRY POTTER, svo það er um að gera að grafa upp galdraskikkjurnar úr kjallaranum, dusta rykið af töfrasprotanum og fara að rifja upp galdrana. Veitt verða verðlaun fyrir flottustu búningana og margt annað.
Í hvaða heimavist setur flokkunarhatturinn þig?
Hvað verður í gangi í Hogsmeade?
Hver vinnur Þrígaldraleikana?
Kanntu Quidditch?
Hver finnur leyniklefann?
Verður ÞÚ svo heppinn að fá bréf frá Hogwarts skóla?
Hraunbúar, takið helgina frá!
Nánari upplýsingar berast þegar nær dregur, fylgist líka með á facebook síðu Hraunbúa.
Kveðja frá Fönixreglunni
Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Grábræður, Hraunálfar, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix, Rs. Trail, Viðburðir |
Comments Off
febrúar 15th, 2011 by Una Guðlaug Sveinsdóttir
Í tilefni af 22. febrúar, sem er eins og flestir ættu að vita afmælisdagur Robert Baden-Powell og konu
hans, ætla Hraunbúar að halda fjölskyldukvöldvöku fyrir skáta og foreldra þeirra frá kl. 19:30-20:30. Skátasveitir verða með skemmtiatriði, nýir skátar verða vígðir og næsta víst er að hörkufjör verði í Hraunbyrgi! Boðið verður upp á léttar veitingar.
Vonumst til að sjá sem flesta!
Flokkur: Sveitir, Viðburðir |
Comments Off
október 4th, 2010 by Una Guðlaug Sveinsdóttir
Síðasta laugardag var heldur betur glatt á hjalla í Hraunbyrgi. Kátir skátar og foreldrar mættu þar til leiks í ævintýraratleik. Verkefnin voru margvísleg og reyndu meðal annars á sköpunarkraft, snerpu og skyndihjálparkunnáttu skátanna. Ratleikurinn endaði með kanóferð út í eyju, þar sem fjársjóður beið skátanna. Að lokum söfnuðust allir saman í Hraunbyrgi þar sem léttar veitingar voru í boði, auk þess sem hægt var að búa til vinabönd og lita skátamyndir.
Takk fyrir góðan dag!
Flokkur: Viðburðir |
Comments Off