Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar úr 'Útilegur' flokknum

Breytt dagskrá Rauðskinna

september 15th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna hafa dagsetningarnar á útilegum haustsins breyst, sem og dagsetning foreldrakvöldvökunnar. Nýju dagsetningarnar eru þessar:

Sveitarútilega: 23.-25. október

Foreldrakvöldvaka: 27. október

Félagsútilega: 6.-8. nóvember

Allar aðrar dagsetningar haldast.

Vonandi veldur þetta ykkur ekki neinum óþægindum.

Einnig viljum við minna á að fundurinn á þriðjudaginn eftir viku er sundfundur: Mæting er við Hraunbyrgi á venjulegum fundartíma og munum við rölta saman niður í Sundhöll. Fundurinn er búinn á venjulegum tíma. Stelpurnar þurfa ekki að koma með pening fyrir sundinu.

Sjáumst á eftir,

María og Kolfinna

Flokkur: Útilegur, Rauðskinnur | Comments Off

Óskilamunir

mars 30th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Okkur langar til að þakka Rauðskinnum fyrir stórskemmtilega útilegu í Hverahlíð síðustu helgi. Þær stóðu sig allar eins og hetjur og sigruðust á nístingskulda og kolniðamyrkri eins og sönnum skátum er lagið. Þær sýndu einnig fram á mikilvægi góðrar samvinnu, bæði með því að kveikja eld og bjarga skáta í neyð.

Óskilamuni helgarinnar má nálgast í Hraunbyrgi frá og með næsta fundi.

Sjáumst hressar á morgun

Kolfinna og Steinunn

Flokkur: Almennt, Útilegur, Rauðskinnur | Comments Off

Útilega Rauðskinna í Hverahlíð

mars 24th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Þá er komið að fyrstu útilegu Rauðskinna árið 2009, en að þessu sinni ætlum við í Hverahlíð við Kleifarvatn.

Mæting er við gatnamótin þegar maður er nýbúinn að keyra Krýsuvíkurveginn framhjá Kleifarvatni, en við þau er skilti sem á stendur Hverahlíð, klukkan 20:00 föstudaginn 27.mars, en sækja á stúlkurnar á sama stað á hádegi, kl.12:00, sunnudaginn 29.mars. Frá afleggjaranum er um kílómeters ganga að skálanum svo stúlkurnar þurfa að geta haldið á öllum sínum búnaði þessa leið.

Gott væri ef foreldrar hefðu samband sín á milli uppá að sameina í bíla, til að minnka sem mest umstangið. Stelpurnar fengu með sér símaskrá heim áðan með öllum símanúmerunum.

Afgangurinn af foreldrabréfinu, ásamt útbúnaðarlista til viðmiðunar, má sjá með því að ýta á “meira”

Lesa alla frétt »

Flokkur: Útilegur, Rauðskinnur | Comments Off

Sveitarútilega Riddara um helgina

janúar 30th, 2009 by Smári Guðnason

Sveitarútilega Riddara fer fram í Hverahlíð um helgina. Mæting er í Hraunbyrgi kl 18:30 stundvíslega og verður lagt af stað fljótlega eftir það. Samkvæmt veðurspánni fyrir helgina verður frekar kalt og lítilsháttar snjókoma á svæðinu og er því mjög mikilvægt að allir mæti með hlý og góð föt.

Sveitarforingjar minna á að öll raftæki eru bönnuð í útilegunni – nema myndavél og vasaljós.

Sjáumst hressir í kvöld.

Flokkur: Útilegur, Riddarar | Comments Off

Sveitarútilega Dróttskáta

nóvember 26th, 2008 by Nanna Guðrún Bjarnadóttir

DróttskátarHelgina 5. – 7. desember verður sveitarútilega fyrir Dróttskáta og verður útilegan haldin í Lækjarbotnum. Útilegan kostar 3000 kr og þarf að vera búið að greiða fyrir 4. desember.

Hægt er að skrá sig í hraunbyrgi eða í síma 824-0906 en skráningu líkur 1. desember.

Allt foreldrabréfið má sjá með því að ýta á “lesa alla frétt”

Lesa alla frétt »

Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Ds. Pollux, Skátamót | Comments Off

Styttist í féló!

október 28th, 2008 by Smári Guðnason

Helgina 31. október – 2. nóvember ætlum við Hraunbúar í félagsútilegu og þemað í þetta sinn verður sjóræningjar. Farið verður á Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni. Skráning er hafin á skrifstofu í Hraunbyrgi og viljum við vekja athygli á því að allir verða að skrá sig fyrir 29. október.

Útilegan kostar 6.500 kr og innifalið í því er matur, rúta, gisting og dagskrá.
Ganga verður frá greiðslu fyrir 31. október. Hægt er að greiða á skrifstofu eða millifæra:

Bankaupplýsingar: 0327-26-7029
Kennitala: 640169-7029 (látið nafn þátttakanda í skýringu)

Mæting er í Hraunbyrgi föstudaginn 31. október kl 18:30 stundvíslega og lagt verður af stað til baka frá Úlfljótsvatni á sunnudeginum kl 15:00 og komið til baka í Hraunbyrgi ca. 16:00.

Útbúnaður í útilegu

  • Skátabúningur (skátaklútur og bolur/skyrta/peysa)
  • Regnföt (útiföt)
  • Ullarnærföt (ef til eru)
  • Hlýir bolir (Ullarbolir ef til er, annars venjulegir)
  • Vettlingar, trefill og húfa
  • Auka föt til skiptanna (ekki gallabuxur)
  • Góðir skór
  • Hlýir skokkar (helst ekki bómullar)
  • Hlý föt
  • Snyrtidót (Tannbursti, tannkrem, þvottapoki o.fl)
  • Vasaljós
  • Svefnpoki

Ath að listinn er alls ekki tæmandi.
Ef einhverjar spurningar eru varðandi útileguna er hægt að hringja á skrifstofu Hraunbyrgis í síma 565-0900 eða í síma 824-0906 . Einnig er hægt að senda e-mail á hraunbuar@hraunbuar.is

Með skátakveðju,
Skátafélagið Hraunbúar

Flokkur: Útilegur | Comments Off