Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar úr 'Útilegur' flokknum

Útilega Riddara 23.-24. október

október 13th, 2010 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Nú er komið að því að Riddarar ætla í fyrri sveitarútilegu vetrarins. Samkvæmt dagskránni átti hún að vera í Hverahlíð en það gekk ekki upp þannig að við ætlum að fara á Úlfljótsvatn. Þar er þessa helgi fálkaskátahelgi og vonandi verða skátar víða að. Dagskránni verður stjórnað af staðarhaldara og ætti engum að leiðast. Gist er í skálum með fullkominni hreinlætis- og salernisaðstöðu og allur matur er á staðnum.

Farið verður frá skátamiðstöðinni í Hraunbæ 123 á laugardagsmorgninum 23. október kl. 8.30 og gert ráð fyrir að koma aftur á sunnudeginum kl. 17.00.

Það kostar 5.000 kr. og allt er innifalið. Greitt er á staðnum þegar mætt er í útileguna. Skráning fer fram á netfanginu hraunbuar@hraunbuar.is, eða hjá Claus í síma 867-1257. Athugið að síðasti skráningardagur er föstudagurinn 15. október.

Minnum á að það þarf að koma vel útbúinn, með hlý og vatnsheld föt og góða skó.

Skráið ykkur sem fyrst og fjölmennið á skemmtilega helgi!

Sveitarforingjar

Flokkur: Útilegur, Riddarar, Sveitir | Comments Off

Útileguundirbúningur Rauðskinna

febrúar 1st, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Á fundinum hjá Rauðskinnum á morgun munum við undirbúa útilegu helgarinnar, við munum meðal annars fara yfir pökkun í bakpoka og samsetningu matseðils fyrir helgarferð. Sérstaklega mikilvægt er að mæta ef ætlunin er að koma með í útileguna, sem verður ein magnaðasta útilega Rauðskinna til þessa:)

Ert ÞÚ búin að skrá þig?

Sjáumst eldhressar á morgun,

Kolfinna og María sveitaforingjar

PS Upplýsingar um útileguna er að finna í eldri frétt, aðeins neðar á síðunn.

Flokkur: Útilegur, Rauðskinnur | Comments Off

Breytt dagskrá Rauðskinna

september 15th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna hafa dagsetningarnar á útilegum haustsins breyst, sem og dagsetning foreldrakvöldvökunnar. Nýju dagsetningarnar eru þessar:

Sveitarútilega: 23.-25. október

Foreldrakvöldvaka: 27. október

Félagsútilega: 6.-8. nóvember

Allar aðrar dagsetningar haldast.

Vonandi veldur þetta ykkur ekki neinum óþægindum.

Einnig viljum við minna á að fundurinn á þriðjudaginn eftir viku er sundfundur: Mæting er við Hraunbyrgi á venjulegum fundartíma og munum við rölta saman niður í Sundhöll. Fundurinn er búinn á venjulegum tíma. Stelpurnar þurfa ekki að koma með pening fyrir sundinu.

Sjáumst á eftir,

María og Kolfinna

Flokkur: Útilegur, Rauðskinnur | Comments Off

Óskilamunir

mars 30th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Okkur langar til að þakka Rauðskinnum fyrir stórskemmtilega útilegu í Hverahlíð síðustu helgi. Þær stóðu sig allar eins og hetjur og sigruðust á nístingskulda og kolniðamyrkri eins og sönnum skátum er lagið. Þær sýndu einnig fram á mikilvægi góðrar samvinnu, bæði með því að kveikja eld og bjarga skáta í neyð.

Óskilamuni helgarinnar má nálgast í Hraunbyrgi frá og með næsta fundi.

Sjáumst hressar á morgun

Kolfinna og Steinunn

Flokkur: Almennt, Útilegur, Rauðskinnur | Comments Off

Útilega Rauðskinna í Hverahlíð

mars 24th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Þá er komið að fyrstu útilegu Rauðskinna árið 2009, en að þessu sinni ætlum við í Hverahlíð við Kleifarvatn.

Mæting er við gatnamótin þegar maður er nýbúinn að keyra Krýsuvíkurveginn framhjá Kleifarvatni, en við þau er skilti sem á stendur Hverahlíð, klukkan 20:00 föstudaginn 27.mars, en sækja á stúlkurnar á sama stað á hádegi, kl.12:00, sunnudaginn 29.mars. Frá afleggjaranum er um kílómeters ganga að skálanum svo stúlkurnar þurfa að geta haldið á öllum sínum búnaði þessa leið.

Gott væri ef foreldrar hefðu samband sín á milli uppá að sameina í bíla, til að minnka sem mest umstangið. Stelpurnar fengu með sér símaskrá heim áðan með öllum símanúmerunum.

Afgangurinn af foreldrabréfinu, ásamt útbúnaðarlista til viðmiðunar, má sjá með því að ýta á “meira”

Lesa alla frétt »

Flokkur: Útilegur, Rauðskinnur | Comments Off

Sveitarútilega Riddara um helgina

janúar 30th, 2009 by Smári Guðnason

Sveitarútilega Riddara fer fram í Hverahlíð um helgina. Mæting er í Hraunbyrgi kl 18:30 stundvíslega og verður lagt af stað fljótlega eftir það. Samkvæmt veðurspánni fyrir helgina verður frekar kalt og lítilsháttar snjókoma á svæðinu og er því mjög mikilvægt að allir mæti með hlý og góð föt.

Sveitarforingjar minna á að öll raftæki eru bönnuð í útilegunni – nema myndavél og vasaljós.

Sjáumst hressir í kvöld.

Flokkur: Útilegur, Riddarar | Comments Off