Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar úr 'Útilegur' flokknum

Sveitarútilega Rauðskinna vel heppnuð

nóvember 21st, 2011 by Birna Sigurðardóttir

Sveitarútilega Rauðskinna fór fram helgina 11-13. nóvember. 20 hressar stelpur mættu í Lækjarbotna á föstudagskvöld tilbúnar bráðskemmtilega útilegu. Haldin var spurningakeppni á föstudagskvöldið ásamt því að stigin voru nokkur vel valin dansspor og var því mikið hlegið af foringjunum ;)

Á laugardagsmorgun voru svo neyðarpokar úr leðri kláraðir ásamt flokkaklemmum. Svo var haldið í létt og skemmtilegt hike þar sem við þurftum að staulast yfir læk, mjaka okkur fram hjá klettum og kannski blotna smá í fæturna. Svo fundum við líka voða sætan helli.
Eftir hike’ið var opinn póstaleikur. Stelpurnar gerðu leðurhnúta á klútana sína, fóru í kimsleik þar sem þær áttu að leita að myndum og muna þær, leystu dulmál og gátur, gerðu svakalegar fatalínur sem teygðu anga sína um allt hús, skrifuðu grein um skátastarf og gerðu stórsniðug skemmtiatriði fyrir kvöldvökuna.

Á meðan póstaleikurinn fór fram voru foringjarnir önnum kafnir við það að baka brauð og lummur. Lummurnar hurfu mjög fljótlega og meðlætið sem var með þeim, a.k.a. NAMMI.

Þá var loks komið að vígslunni sem allir höfðu beðið eftir. 14 stelpur vígðust inn í sveitina en hinar 6 vígðu hjálpuðu til við vígsluna. Ekki má uppljóstra of miklu um þessa fornu vígslu Rauðskinna en það má með sanni segja að hún hafi verið mjög eftirminnileg fyrir alla :) Kertaljós og róleg stemmning var í skálanum á þessum tímapunkti sem var ef till vill kærkomið fyrir alla, enda búin að vera mikil læti og mega fjör!

Þegar vígslunni var lokið var kvöldmatur þar sem Kolfinna fór á kostum í spaghettís og hakks eldamennsku. Takk Kolfinna!

Svo var hress kvöldvaka með stórskemmtilegum atriðum frá stelpunum og einu skrýtnu frá foringjunum.

Þá var kominn háttatími, en fyrst fengu allir heitt kakó. Allir sváfu vært og var vaknað á sunnudagsmorgun, tekið til og haldið heim á leið :)

 

Takk fyrir helgina stelpur hún var frábær!

Kveðja sveitarforingjar,

Birna, Marta og Mekkin

Ekki má gleyma Kolfinnu og Maríu sem veittu ómetanlega hjálp um helgina :) Takk!

Flokkur: Almennt, Útilegur, Rauðskinnur, Sveitir | Comments Off

Vígsluútilega Rauðskinna

nóvember 9th, 2011 by Birna Sigurðardóttir

 

Fyrsta sveitarútilega Rauðskinna verður næstu helgi í Lækjarbotnum. Mæting er við skilti Skógræktarfélags Kópavogs klukkan 20:00 föstudaginn 11. nóvember (vera búnar að borða kvöldmat), en sækja á stúlkurnar á sama stað á hádegi, kl.13:00, sunnudaginn 13. nóvember. Við ætlum að labba frá skiltinu að skálanum svo það er mikilvægt að skátarnir séu almennilega klæddir og geti gengið með allan farangurinn sinn.

 

Til að komast að mætingarstaðnum er beygt inn afleggjara útfrá Suðurlandsveg. Við afleggjarann er skilti sem á stendur sumarbústaðir/sumarhús. Við munum merkja skiltið með blöðrum. Afleggjarinn er um 14 km austur Suðurlandsveginn.

Skráning er hafin og stendur þar til á fimmtudaginn. Með því að borga útilegugjaldið eru stúlkurnar skráðar í útileguna.

Stelpurnar hafa fengið foreldrabréf með sér heim en einnig má lesa bréfið í heild sinni með því að ýta á ,,lesa alla frétt”.

Vonumst til að sjá sem flestar :)

 

Bestu kveðjur,

Birna, Marta og Mekkín

Lesa alla frétt »

Flokkur: Útilegur, Rauðskinnur | Comments Off

Sveitarútilega Riddara, 5.-6. nóvember

nóvember 2nd, 2011 by Andri Már Reynisson

Um helgina fara Riddarar í sveitarútilegu í Hverahlíð, skátaskála Hraunbúa við Kleifarvatn í Krýsuvík. Að venju verður margt um að vera í útilegunni. Gist verður eina nótt, aðfaranótt sunnudags. Mæting er kl. 10 á laugardagsmorgninum við afleggjarann að Hverahlíð við suðurenda Kleifarvatns í Krýsuvík. Útilegunni lýkur svo kl. 15:00 á sunnudeginum þar sem sækja þarf skátana á sama stað.

Skráning fer fram á netfanginu andri@hraunbuar.is, en verð fyrir útileguna er 1.000,- kr.

Skátarnir fengu útbúnaðarlista með sér heim á miðvikudaginn fyrir 2 vikum. Á sveitarfundinum í dag fá skátarnir með sér dagskrá fyrir útileguna þar sem allar helstu upplýsingar koma fram.

Ef einhverjar spurningar má endilega hafa samband við sveitarforingja Riddara.

Við hvetjum alla Riddara til að mæta í útileguna!

Kveðja,

Andri

Flokkur: Almennt, Útilegur, Riddarar, Viðburðir | Comments Off

Myndir úr félagsútilegu Hraunbúa

september 28th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Félagsútilega Hraunbúa um síðustu helgi gekk ótrúlega vel og hátt í hundrað Hraunbúar skemmtu sér konunglega í hinum íslenska Hogwarts skóla í Vindáshlíð. Myndir frá þessari stórfenglegu helgi eru komnar inn á facebook síðu Hraunbúa. Endilega skoðið þær, því þær eru vægast sagt ótrúlega skemmtilegar :)

Fönixreglan vill hér með þakka öllum kærlega fyrir helgina. Hún var frábær og þið eruð öll æði.

Takk fyrir okkur!

P.S. Minni á dagsferð drekaskáta 1.október, sjá frétt hér fyrir neðan.

Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix | Comments Off

Félagsútilega Hraunbúa 23.-25.september 2011

ágúst 14th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Undirbúningur Félagsútilegu Hraunbúa haustið 2011 er farinn á fullt, en útilegan verður haldin í Hogwarts, skóla galdra og seiða (Vindáshlíð), helgina 23.-25.september 2011. Þemað að þessu sinni er HARRY POTTER, svo það er um að gera að grafa upp galdraskikkjurnar úr kjallaranum, dusta rykið af töfrasprotanum og fara að rifja upp galdrana. Veitt verða verðlaun fyrir flottustu búningana og margt annað.

Í hvaða heimavist setur flokkunarhatturinn þig?
Hvað verður í gangi í Hogsmeade?
Hver vinnur Þrígaldraleikana?
Kanntu Quidditch?
Hver finnur leyniklefann?
Verður ÞÚ svo heppinn að fá bréf frá Hogwarts skóla?

Hraunbúar, takið helgina frá!

Nánari upplýsingar berast þegar nær dregur, fylgist líka með á facebook síðu Hraunbúa.

Kveðja frá Fönixreglunni

Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Grábræður, Hraunálfar, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix, Rs. Trail, Viðburðir | Comments Off

Fjör í féló!

nóvember 16th, 2010 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Nú um helgina fóru Hraunbúar í ofurhetju-félagsútilegu í Kirkjulækjarkot og áttu þar góðar stundir. Dagskráin samanstóð af fjórum dagskrársvæðum, “Litir og föndur,” “Leikir og fjör,” “Matarlist,” og “Kraftur og snerpa,” en innan hvers svæðis var svo hægt að velja um nokkra pósta. Sem dæmi má nefna vinabandagerð, blindrabraut, ísgerð og boðhlaup. Veðrið var fallegt, þó ekki væri laust við að kaldur vindur léti á sér bæra af og til. Hraunbúarnir létu það þó ekki á sig fá og skemmtu sér prýðilega. Enda ekki annað hægt þegar maður vaknar syngjandi og dansandi!

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir úr útilegunni. Einnig má sjá fleiri myndir á Facebook-síðu Hraunbúa.

Flokkur: Útilegur | Comments Off