Skátastarf í Vogunum
febrúar 2nd, 2010 by Smári Guðnason
Í dag var undirritað samkomulag sveitarfélagsins Voga og skátafélagsins Hraunbúa um að endurvekja skátastarf í Vogunum. Lögð verður áhersla á barna- og ungmennastarf og verður starfsemin rekin undir merkjum Vogabúa. Samkomulagið gildir út árið 2010 og með því er markmiðið að fjölbreytt barna- og ungmennastarf á vegum skáta komist á í Vogum. Skátafélagið Hraunbúar mun standa fyrir reglubundu skátastarfi auk þess að vera með útilífsnámskeið og mun mögulega hafa aðkomu að verkefnum á vegum Félagsmiðstöðvarinnar Borunnar. Þá munu skátar taka að sér verkefni fyrir sveitarfélagið s.s. að flagga í Aragerði á hátíðisdögum. Skátastarf á sér nokkuð langa sögu í Vogunum, en hefur legið niðri síðustu ár. Með þessu samstarfi Skátafélagsins Hraunbúa og Sveitarfélagsins Voga er blásið nýju lífi í þessar gömlu glæður og markmiðið að skátastarf í Vogum verði lifandi og skemmtilegt á komandi árum.
Flokkur: Almennt, Vogabúar | Engin svör »