Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar úr 'Riddarar' flokknum

Sumarfundur vol.V

ágúst 9th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Minnum á fimmta sumarfund Hraunbúa annað kvöld klukkan átta. Við ætlum að keppa í stórfenglegum götuleik þar sem hver hópur þarf að hafa digital myndavél og/eða mjög nútímalegann síma sem er með myndavél. Þetta verður keppni aldarinnar!

Hlökkum til að sjá ykkur öll eins og vanalega elsku drótt- og fálkaskátar!

Sumarnefndin

Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar | Comments Off

Sumarfundur vol.II

júní 27th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Minnum alla á sumarfund Hraunbúa fyrir Riddara, Rauðskinnur og DS Castor næsta miðvikudag kl.20:00, það verður svaka gaman! Fylgist með okkur á “Sumarstarf Hraunbúa 2011″ á facebook :)

Myndin með fréttinni sýnir nýju flokkafána Rauðskinna sem fyrst litu dagsins ljós á Vormóti, vonandi munu þeir bærast í vindinum á mörgum Vormótum til viðbótar!

Hlökkum til að sjá ykkur öll á miðvikudaginn! Það verður mögulega enn skemmtilegra en síðast.

Nefndin

Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar | Comments Off

Sumarstarf Hraunbúa hófst í kvöld

júní 15th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Sumarstarf Hraunbúa hófst í kvöld. Tuttuguogfjórir eldhressir fálka- og dróttskátar mættu og skemmtu sér konunglega í Capture the flag og Village 44. Hamagangurinn var mikill og gleðin skein úr hverju andliti. Myndir segja meira en þúsund orð, en þær má sjá á facebook síðu Hraunbúa frá og með morgundeginum. Í lok var æfing fyrir fánaborg skrúðgöngunnar 17. júní. Útlitið var svart í upphafi en eftir að hafa gengið nokkra hringi á Víðistaðatúni var árangurinn orðinn afar glæsilegur.

Fundir verða aðra hverja viku í sumar fyrir fálka- og dróttskáta í Hraunbúum, og verða á miðvikudögum klukkan 20:00. Næstu fundir verða 29. júní, 13. júlí og 27. júlí. Einnig verða tveir fundir í ágúst. Hópurinn er með facebook síðu (Sumarstarf Hraunbúa 2011) þar sem sendar verða út tilkynningar, svo við hvetjum alla fálka- og dróttskáta í Hraunbúum sem vilja vera með til að skrá sig þar með því að skrifa á vegginn.

Hlökkum til að sjá ykkur á 17.júní og eftir tvær vikur!

Kolfinna, Una, Birna, María og Dóra


Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar | Comments Off

Dagsferð Riddara á laugardaginn

maí 19th, 2011 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Á laugardaginn ætla Riddarar að fara í dagsferð. Mæting er í Hraunbyrgi kl. 10:00 og er ferðinni heitið í Straum. Gott væri ef einhverjir foreldrar gætu tekið þátt í akstri, og getum við þá sameinað í bíla.

Skátarnir eiga að hafa með sér eitthvað að drekka fyrir daginn og smá nasl, en svo verða grillaðar pylsur í hádeginu. Reiknað er með að við verðum komin til baka um 15:00.

Munið að klæða ykkur eftir veðri og vera í góðum skóm. Hafið samband ef einhverjar spurningar eru.

Kveðja,
Claus (867-1257) og Hreiðar (660-1060)

Flokkur: Dagsferðir, Riddarar | Comments Off

Riddarar baka köku

febrúar 23rd, 2011 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Í síðustu viku spreyttu Riddarar sig á útieldun og bökuðu mjúka súkkulaðiköku yfir eldi. Kakan var síðan borðuð með bestu lyst – upp til agna! Á fundinum var hvatakerfisskjöldur Riddara einnig fullkláraður. Hér fyrir neðan eru myndir af fundinum.

Flokkur: Riddarar | Comments Off

Dagskrá Riddara

febrúar 10th, 2011 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Dagskrá Riddara fyrir vorönnina hefur nú verið sett inn á vefinn og er óhætt að segja að margt spennandi sé á döfinni fyrir sveitina!

Á meðal þess sem Riddarar munu fást við eru vísindaverkefni, dorgveiði, súrringar og margt fleira. Auk þess verður farið í sveitarútilegu og dagsferð.

Dagskrána í heild sinni má finna hér.

Flokkur: Almennt, Riddarar, Sveitir | Comments Off