Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar úr 'Riddarar' flokknum

Skráning á Landsmót skáta 2012 hafin

nóvember 14th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Howdy Hraunbúar!

Loksins er skráning Hraunbúa á Landsmót skáta 2012 hafin!  Með því að smella á linkinn hér fyrir neðan komist þið inn á skráningarsíðu Hraunbúa. Mikilvægt er að vanda sig við skráningu og fylla allt saman vel og vandlega inn. Muna að skrá skátann sem: Participant.

Ekki er búið að ákveða lokafrest skráningar, en það er samt best að skrá sig sem fyrst, svo fararstjórn fái sem réttasta mynd af fjölda til að geta samið við rútufyrirtæki og ákvarðað sameiginlegan kostnað.

Aðrar landsmótsfréttir:

Önnur fjáröflun Hraunbúa er að fara af stað í þessari viku, og munu allir skátar fá með sér bréf heim um hana. Einnig munu upplýsingar verða sendar foreldrum í tölvupósti. Stefnan er tekin á tvær til þrjár fjáraflanir til viðbótar eftir áramót. Nú þegar eru nokkrir skátar næstum því búnir að safna fyrir öllu landsmótsgjaldinu, svo það er um að gera að vera duglegur í fjáröflununum!

Fyrir jól fá skátar og foreldrar þeirra sent upplýsingahefti um landsmót, þar sem fararstjórn segir frá öllu sem komið verður á hreint þá. Einnig verður foreldrafundur í lok janúar.

Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna!

Tengill á skráningu fyrir Hraunbúa:

Tengill á heimasíðu landsmóts:

http://www.skatar.is/landsmot2012/

Bestu kveðjur,

Fararstjórn Hraunbúa

Una Guðlaug, María Björg, Kolfinna og Birgir Snær

Tölvupóstur: landsmot@hraunbuar.is

Flokkur: Almennt, Ds. Castor, Landsmót, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix, Viðburðir | Comments Off

Sveitarútilega Riddara, 5.-6. nóvember

nóvember 2nd, 2011 by Andri Már Reynisson

Um helgina fara Riddarar í sveitarútilegu í Hverahlíð, skátaskála Hraunbúa við Kleifarvatn í Krýsuvík. Að venju verður margt um að vera í útilegunni. Gist verður eina nótt, aðfaranótt sunnudags. Mæting er kl. 10 á laugardagsmorgninum við afleggjarann að Hverahlíð við suðurenda Kleifarvatns í Krýsuvík. Útilegunni lýkur svo kl. 15:00 á sunnudeginum þar sem sækja þarf skátana á sama stað.

Skráning fer fram á netfanginu andri@hraunbuar.is, en verð fyrir útileguna er 1.000,- kr.

Skátarnir fengu útbúnaðarlista með sér heim á miðvikudaginn fyrir 2 vikum. Á sveitarfundinum í dag fá skátarnir með sér dagskrá fyrir útileguna þar sem allar helstu upplýsingar koma fram.

Ef einhverjar spurningar má endilega hafa samband við sveitarforingja Riddara.

Við hvetjum alla Riddara til að mæta í útileguna!

Kveðja,

Andri

Flokkur: Almennt, Útilegur, Riddarar, Viðburðir | Comments Off

Rauðskinnur og Riddarar í dagsferð

október 19th, 2011 by Birna Sigurðardóttir

Síðasta laugardag fóru 9 Rauðskinnur og Riddarar ásamt 4 sveitarforingjum í dagsferð á Helgafell.

Þegar allir voru mættir klukkan 10 var lagt af stað upp á Helgafell. Á leiðinni fengum við ýmiss konar veður; mikið rok, lítið rok, rigningu, haglél og sól. Sem betur fer voru allir vel búnir og komust allir upp á topp. Þar var pústað, tekin hópmynd og skrifað í gestabókina. Loks var haldið niður aftur og var mikið spjallað. Allir skemmtu sér konunglega þrátt fyrir veðrið og gönguna upp í móti.

Eftir að hafa gengið á Helgafell var rölt að helli einum þar sem við elduðum dýrindis pastarétt á prímus

og rann maturinn ofan í litla sem stóra maga mjög hratt!

 

Eitthvað voru ungir skátar að kvarta yfir því að prímus væri ekki skátalegt, heldur ætti bara að elda pastað á eldi. Þeir voru þó fljótir að taka þau orð til baka þegar pastað var smakkað :)

 

Svo voru allir sóttir um tvöleytið og fóru allir hressir heim.

Takk fyrir dagsferðina krakkar, vonumst til að sjá fleiri næst :)

Bestu kveðjur,

Birna, Marta, Andri og Snorri sveitaforingjar

Flokkur: Dagsferðir, Rauðskinnur, Riddarar | Comments Off

Myndir úr félagsútilegu Hraunbúa

september 28th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Félagsútilega Hraunbúa um síðustu helgi gekk ótrúlega vel og hátt í hundrað Hraunbúar skemmtu sér konunglega í hinum íslenska Hogwarts skóla í Vindáshlíð. Myndir frá þessari stórfenglegu helgi eru komnar inn á facebook síðu Hraunbúa. Endilega skoðið þær, því þær eru vægast sagt ótrúlega skemmtilegar :)

Fönixreglan vill hér með þakka öllum kærlega fyrir helgina. Hún var frábær og þið eruð öll æði.

Takk fyrir okkur!

P.S. Minni á dagsferð drekaskáta 1.október, sjá frétt hér fyrir neðan.

Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix | Comments Off

Ekki fundur í kvöld

ágúst 24th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Kæru Rauðskinnur, Riddarar og DS Castor. Vegna óviðráðanlegra og margþættra ástæðna fellur síðasti sumarfundurinn, sem átti að vera í kvöld, niður. Í staðinn er ykkur öllum boðið að mæta á opið hús í Hraunbyrgi fimmtudaginn 1.september kl.18-20 þar sem boðið verður upp á maaaaargt og mikið spennandi:D Hlökkum til að sjá ykkur fyrsta september! Og takk kærlega fyrir alveg yndislegt sumar, það er búið að vera ótrúlega gaman með ykkur í sumar.

 

Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar, Viðburðir | Comments Off

Félagsútilega Hraunbúa 23.-25.september 2011

ágúst 14th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Undirbúningur Félagsútilegu Hraunbúa haustið 2011 er farinn á fullt, en útilegan verður haldin í Hogwarts, skóla galdra og seiða (Vindáshlíð), helgina 23.-25.september 2011. Þemað að þessu sinni er HARRY POTTER, svo það er um að gera að grafa upp galdraskikkjurnar úr kjallaranum, dusta rykið af töfrasprotanum og fara að rifja upp galdrana. Veitt verða verðlaun fyrir flottustu búningana og margt annað.

Í hvaða heimavist setur flokkunarhatturinn þig?
Hvað verður í gangi í Hogsmeade?
Hver vinnur Þrígaldraleikana?
Kanntu Quidditch?
Hver finnur leyniklefann?
Verður ÞÚ svo heppinn að fá bréf frá Hogwarts skóla?

Hraunbúar, takið helgina frá!

Nánari upplýsingar berast þegar nær dregur, fylgist líka með á facebook síðu Hraunbúa.

Kveðja frá Fönixreglunni

Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Grábræður, Hraunálfar, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix, Rs. Trail, Viðburðir | Comments Off