ágúst 9th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Minnum á fimmta sumarfund Hraunbúa annað kvöld klukkan átta. Við ætlum að keppa í stórfenglegum götuleik þar sem hver hópur þarf að hafa digital myndavél og/eða mjög nútímalegann síma sem er með myndavél. Þetta verður keppni aldarinnar!
Hlökkum til að sjá ykkur öll eins og vanalega elsku drótt- og fálkaskátar!
Sumarnefndin
Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar |
Comments Off
júní 27th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Minnum alla á sumarfund Hraunbúa fyrir Riddara, Rauðskinnur og DS Castor næsta miðvikudag kl.20:00, það verður svaka gaman! Fylgist með okkur á “Sumarstarf Hraunbúa 2011″ á facebook :)
Myndin með fréttinni sýnir nýju flokkafána Rauðskinna sem fyrst litu dagsins ljós á Vormóti, vonandi munu þeir bærast í vindinum á mörgum Vormótum til viðbótar!
Hlökkum til að sjá ykkur öll á miðvikudaginn! Það verður mögulega enn skemmtilegra en síðast.
Nefndin
Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar |
Comments Off
júní 15th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Sumarstarf Hraunbúa hófst í kvöld. Tuttuguogfjórir eldhressir fálka- og dróttskátar mættu og skemmtu sér konunglega í Capture the flag og Village 44. Hamagangurinn var mikill og gleðin skein úr hverju andliti. Myndir segja meira en þúsund orð, en þær má sjá á facebook síðu Hraunbúa frá og með morgundeginum. Í lok var æfing fyrir fánaborg skrúðgöngunnar 17. júní. Útlitið var svart í upphafi en eftir að hafa gengið nokkra hringi á Víðistaðatúni var árangurinn orðinn afar glæsilegur.
Fundir verða aðra hverja viku í sumar fyrir fálka- og dróttskáta í Hraunbúum, og verða á miðvikudögum klukkan 20:00. Næstu fundir verða 29. júní, 13. júlí og 27. júlí. Einnig verða tveir fundir í ágúst. Hópurinn er með facebook síðu (Sumarstarf Hraunbúa 2011) þar sem sendar verða út tilkynningar, svo við hvetjum alla fálka- og dróttskáta í Hraunbúum sem vilja vera með til að skrá sig þar með því að skrifa á vegginn.
Hlökkum til að sjá ykkur á 17.júní og eftir tvær vikur!
Kolfinna, Una, Birna, María og Dóra



Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar |
Comments Off
maí 26th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Á lokafundi Rauðskinna síðasta þriðjudag var kynnt nýtt sveitarhróp sveitarinnar, sem við ætlum allar að læra vel og vandlega fyrir Vormótið :)
Hrópið hljómar svona:
Hverjar eru bestar?
Rauðskinnur!
Skátastarf er léttur leikur!
Hverjar eru bestar?
Rauðskinnur!
Sveitin er best, hún alltaf vinnur
Hverjar eru bestar?
Rauðskinnur!
Gefumst ekki upp, erum Hraunbúastelpur!
Hverjar eru bestar?
Rauðskinnur!
Sveitin er best, hún alltaf vinnur!
Lærum þetta allar, og sjáumst svo eiturferskar á Vormóti og skátafundum sumarsins :D
Sumarkveðjur,
Kolfinnus, Birnus og Annus
Flokkur: Rauðskinnur |
Comments Off
maí 17th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Það var ofsafjör á Rauðskinnufundi áðan. Við æfðum okkur að byggja hliðið að tjaldbúðinni okkar fyrir Vormótið ásamt því að gera þrífót með neti. Veðrið var líka mjög gott og sólin skein, svo við gleymdum kalda vindinum :)
Annars er það helst í fréttum að nú er aðeins einn Rauðskinnufundur eftir í vetur, en hann verður næsta þriðjudag og er ætlunin að hafa smá lokahóf. Veittar verða viðurkenningar fyrir veturinn, síðustu perlunum verður dreift og þeir sem hafa mætt nógu vel fá ný merki á klútinn sinn. Svo það er um að gera að mæta næst!
Á morgun verður kynningarfundur hjá DS Castor fyrir fálkaskáta sem eru að ganga upp í dróttskátana í haust, svo elstu stelpurnar í Rauðskinnum eru velkomnar á fund hjá þeim á morgun milli 19 og 20:30!
Hlökkum annars til að sjá ykkur næsta þriðjudag,
Kolfinna, Birna og Anna Íris

Flokkur: Rauðskinnur |
Comments Off
maí 11th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Í gær var líf og fjör á Rauðskinnufundi eins og ávallt. Við grilluðum kanilepli ásamt því að hanna hlið fyrir Vormótið og fara í fullt af hressum leikjum úti í veðurblíðunni. Létum smá rigningaskúr ekki á okkur fá! Síðan þegar klukkan fór að nálgast sjö brunuðu allir heim á leið til að sjá Ísland komast áfram í Eurovision, mikið var það nú gaman.
Á næsta fundi munum við æfa okkur að byggja hliðið sem við munum reisa í Krýsuvík, og svo verður lokahóf og sprell í þarnæstu viku.
Chiao!
Kolfinna, Birna og Anna
Flokkur: Rauðskinnur |
Comments Off