september 28th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Félagsútilega Hraunbúa um síðustu helgi gekk ótrúlega vel og hátt í hundrað Hraunbúar skemmtu sér konunglega í hinum íslenska Hogwarts skóla í Vindáshlíð. Myndir frá þessari stórfenglegu helgi eru komnar inn á facebook síðu Hraunbúa. Endilega skoðið þær, því þær eru vægast sagt ótrúlega skemmtilegar :)
Fönixreglan vill hér með þakka öllum kærlega fyrir helgina. Hún var frábær og þið eruð öll æði.
Takk fyrir okkur!
P.S. Minni á dagsferð drekaskáta 1.október, sjá frétt hér fyrir neðan.
Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix |
Comments Off
september 13th, 2011 by Birna Sigurðardóttir
Í dag var annar fundur Rauðskinna. Skipt var í 3 flokka og voru ýmsar stöðvar sem stúlkurnar þurftu að leysa í skiptum fyrir hluta úr fjársjóðskorti. Þrautirnar sem þær þurftu að leysa voru pokahlup, stígvélakast, púsla stórt púsl, gera mannlegan pýramída, stiklað á stórum og að lokum að reyna að hitta hringjum á lítil prik. Stelpurnar stóðu sig mjög vel í
öllum þrautunum og þegar þær voru búnar að leysa síðustu þrautina fóru þær inn í skemmu til að leita að síðasta hlutanum. Þegar þær voru komnar með heilt kort fundu þær fjársjóðinn. Í fjársjóðnum reyndust vera sleikjóar og allir fóru heim á leið með bros á vör.
Í næstu viku ætlum að læra að fara í útilegu og tálga töfrasprota eins og Harry Potter. Ef þið eigið vasahníf endilega komið með hann með ykkur.
Sjáumst í næstu viku :D
Flokkur: Rauðskinnur |
Comments Off
september 7th, 2011 by Birna Sigurðardóttir
Í gær, þriðjudag, hófst starfið hjá Rauðskinnum með pompi og prakt. Um 15 hressar Rauðskinnur mættu og má gera ráð fyrir miklu fjöri í vetur. Við hófum fundinn á leik og ræddum svo um dagskránna, hvað við ætlum að gera í vetur og kynntum félagsútilegu Hraunbúa. Allar stelpurnar fengu dagskrá og foreldrabréf með heim en þær sem ekki voru í gær geta að sjál
fsögðu bara fengið bréfið næst :)
Svo var farið í léttan nafnaleik og haldið út í varðaeldalaut. Þar var eldur kveiktur og fengur allir að grilla sér pylsu og borða með bestu lyst. Á næsta fundi verður svo fjársjóðsleit svo við minnum ykkur á að mæta klæddar eftir veðri. Hlökkum til að sjá ykkur!
Bestu kveðjur,
Birna, Marta og Mekkín sveitaforingjar
Flokkur: Rauðskinnur |
Comments Off
ágúst 24th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Kæru Rauðskinnur, Riddarar og DS Castor. Vegna óviðráðanlegra og margþættra ástæðna fellur síðasti sumarfundurinn, sem átti að vera í kvöld, niður. Í staðinn er ykkur öllum boðið að mæta á opið hús í Hraunbyrgi fimmtudaginn 1.september kl.18-20 þar sem boðið verður upp á maaaaargt og mikið spennandi:D Hlökkum til að sjá ykkur fyrsta september! Og takk kærlega fyrir alveg yndislegt sumar, það er búið að vera ótrúlega gaman með ykkur í sumar.
Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar, Viðburðir |
Comments Off
ágúst 14th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Undirbúningur Félagsútilegu Hraunbúa haustið 2011 er farinn á fullt, en útilegan verður haldin í Hogwarts, skóla galdra og seiða (Vindáshlíð), helgina 23.-25.september 2011. Þemað að þessu sinni er HARRY POTTER, svo það er um að gera að grafa upp galdraskikkjurnar úr kjallaranum, dusta rykið af töfrasprotanum og fara að rifja upp galdrana. Veitt verða verðlaun fyrir flottustu búningana og margt annað.
Í hvaða heimavist setur flokkunarhatturinn þig?
Hvað verður í gangi í Hogsmeade?
Hver vinnur Þrígaldraleikana?
Kanntu Quidditch?
Hver finnur leyniklefann?
Verður ÞÚ svo heppinn að fá bréf frá Hogwarts skóla?
Hraunbúar, takið helgina frá!
Nánari upplýsingar berast þegar nær dregur, fylgist líka með á facebook síðu Hraunbúa.
Kveðja frá Fönixreglunni
Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Grábræður, Hraunálfar, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix, Rs. Trail, Viðburðir |
Comments Off
ágúst 9th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Minnum á fimmta sumarfund Hraunbúa annað kvöld klukkan átta. Við ætlum að keppa í stórfenglegum götuleik þar sem hver hópur þarf að hafa digital myndavél og/eða mjög nútímalegann síma sem er með myndavél. Þetta verður keppni aldarinnar!
Hlökkum til að sjá ykkur öll eins og vanalega elsku drótt- og fálkaskátar!
Sumarnefndin
Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar |
Comments Off