ágúst 30th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Fyrsti fundur Rauðskinna (stelpur 10-12 ára) eftir sumarfrí verður á morgun, þriðjudag, klukkan 18-19:15, alveg eins og í fyrra. Mikið verður sprellað og hópurinn hristur almennilega saman fyrir veturinn:) Best er að sem allra flestar mæti sem ætla að vera með í vetur svo við gerum okkur grein fyrir stærð sveitarinnar og getum farið að huga að flokkaskiptingu.
Sjáumst eiturhressar á morgun,
Árný, Birna og Kolfinna sveitaforingjar
Flokkur: Rauðskinnur |
Engin svör »
maí 13th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Lokafundur Rauðskinna í vor var síðasta þriðjudag. Við grilluðum pylsur yfir eldi og fórum í fullt af fjörugum leikjum á Víðistaðatúni. Í lokin voru svo afhentar perlur fyrir maímánuð ásamt því að stelpurnar fengu flestar gull eða silfurmerki fálkaskáta fyrir frábæra frammistöðu í vetur.
Við viljum þakka stelpunum öllum fyrir mjög góðan vetur, þær hafa mætt ógnar vel og staðið sig með stakri prýði og eiga hrós skilið fyrir það. Við hlökkum til að sjá þær allar aftur í haust svo við getum haldið þessu skemmtilega skátastarfi áfram næsta vetur:)
Sjáumst svo eiturhressar á Vormótinu, 11.-13.júní. Skráning stendur ennþá yfir á vormot.hraunbuar.is, hvetjum alla til að skrá sig sem fyrst. Ef einhverjar spurningar varðandi mótið vakna (eða starfið næsta haust, þegar kemur að því) ekki hika við að hafa samband, gegnum tölvupóst eða símleiðis.
María (maria@hraunbuar.is) og Kolfinna (kolfinna@hraunbuar.is)
Sveitaforingjar Rauðskinna
Flokkur: Rauðskinnur |
Engin svör »
maí 9th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Á þriðjudaginn verður síðasti fundur Rauðskinna fyrir sumarfrí. Í tilefni af því verður smá húllumhæ, og viljum við þess vegna biðja ykkur allar um að koma klæddar til útiveru.
Perlur verða afhentar fyrir síðustu fundina ásamt því sem silfur og gull merki verða afhent þeim sem hafa staðið sig hvað best.
Hlökkum til að sjá ykkur:)
María og Kolfinna sveitaforingjar
P.S. Skráning á Vormót Hraunbúa stendur ennþá yfir, allir að skrá sig sem allra fyrst á vormot.hraunbuar.is!
Flokkur: Rauðskinnur |
Engin svör »
maí 3rd, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Minnum allar Rauðskinnur á fundinn á morgun, en hann er sá næst síðasti fyrir sumarfrí. Síðasti fundurinn verður síðan þriðjudaginn 11.maí. Planið er að halda áfram með undirbúninginn fyrir Vormótið, svo það er um að gera að mæta til að vera með allt á hreinu:) Skráning á mótið er hafin eins og sjá má í fréttinni hér fyrir neðan, og hvetjum við allar Rauðskinnur (og aðra Hraunbúa) til að skrá sig sem fyrst. Skráning fer fram á vormot.hraunbuar.is og þar er einnig að finna allar upplýsingar um mótið. Einnig hvetjum við fjölskyldur Rauðskinna til að taka helgina frá og vera með okkur í fjölskyldubúðunum.
Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur.
Sjáumst sprækar á morgun, á slaginu sex – klæddar til útiveru!
Kolfinna (kolfinna(hjá)hraunbuar.is) og María (maria(hjá)hraunbuar.is) sveitaforingjar
Flokkur: Rauðskinnur |
Engin svör »
apríl 25th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Á næsta fundi munum við fókusera á trönubyggingar, en það er liður í að undirbúa Rauðskinnur fyrir Vormót Hraunbúa. Hver veit nema stelpurnar geti smellt saman eins og einni römburólu eins og sjá má á myndinni;) Vormótið verður haldið í Krýsuvík 11.-13.júní næstkomandi – eru ekki allir örugglega búnir að taka helgina frá? Stelpurnar munu einnig fá heim með sér foreldrabréf með nánari upplýsingum um mótið, sem og upplýsingum um lok vetrarstarfsins sem nálgast því miður óðfluga.
Sjáumst eiturhressar á þriðjudaginn!
Kolfinna og María sveitaforingjar
Flokkur: Rauðskinnur |
Engin svör »
apríl 18th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Minnum Rauðskinnur á að mæta klæddar fyrir útiveru næsta þriðjudag, og með keppnisskapið í lagi. Höldum einnig áfram að minna á skátaklútana.
Myndin til hægri er tekin í útilegu Rauðskinna í Hverahlíð haustið 2009. Síðan þá hefur sveitin tvöfaldast:)
Sjáumst!
María og Kolfinna sveitaforingjar
Flokkur: Almennt, Rauðskinnur |
Engin svör »