Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar úr 'Ds. Pollux' flokknum

Sundfundur

mars 31st, 2009 by Dagný Vilhelmsdóttir

Á morgun fer Ds.Castor í sund og viljum við minna þá sem málið varðar að mæta með sund dót á fundinn.  Við ætlum í Sundhöllina ef að við erum heppin höfum við laugina nokkurn vegin út af fyrir okkur en æfingum þar lýkur tuttugu mínútur yfir sjö.

Mæting klukkan sjö í Hraunbyrgi.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Kveðja Dagný og Sverre

Flokkur: Ds. Castor, Ds. Pollux | Comments Off

Sveitarútilega Dróttskáta

nóvember 26th, 2008 by Nanna Guðrún Bjarnadóttir

DróttskátarHelgina 5. – 7. desember verður sveitarútilega fyrir Dróttskáta og verður útilegan haldin í Lækjarbotnum. Útilegan kostar 3000 kr og þarf að vera búið að greiða fyrir 4. desember.

Hægt er að skrá sig í hraunbyrgi eða í síma 824-0906 en skráningu líkur 1. desember.

Allt foreldrabréfið má sjá með því að ýta á “lesa alla frétt”

Lesa alla frétt »

Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Ds. Pollux, Skátamót | Comments Off

Dagsferð Riddara

október 2nd, 2008 by Smári Guðnason

Fyrirhugaðri vígsluútilegu sem átti að vera næstu helgi, 3.-5. október hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna óviðráðanlegra ástæðna.
Vígsla er mikilvægur partur hvers skáta og mikilvægt að skátinn upplifi hana á eftirminnilegan hátt og þess vegna hefur verið ákveðið að fara í dagsferð á laugardaginn 4. október í Heiðmörk. Farið verður í göngutúr um svæðið og að lokum verður farið í einn af þeim fjölmörgu hellum sem eru á svæðinu og vígsla skátanna fer fram.
Mæting er við grillaðstöðuna í Heiðmörk á laugardaginn kl 13.00 stundvíslega og eru foreldrar beðnir um að sækja skátana kl 17.00 við grillaðstöðuna.

Lesa alla frétt »

Flokkur: Almennt, Ds. Castor, Ds. Pollux | Comments Off

Útilí­fshelgi dróttskátaflokka

mars 26th, 2008 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Útilí­fshelgi dróttskátaflokka fer fram á Úlfljótsvatni helgina 11.-13. aprí­l. Þetta er viðburður sem enginn dróttskáti ætti að láta fram hjá sér fara. Útilí­fshelgin er orðinn árviss viðburður í­ skátastarfi sem fer stækkandi með hverju árinu.

Mæting er í­ Skátamiðstöðina í­ Hraunbæ kl. 20.00 á föstudeginum og komið verður til baka á sama stað á sunnudeginum kl. 14.30

Nánari upplýsingar á www.skatar.is/utilifshelgi.

Skráning fer fram hjá sveitarforingjum á sveitarfundi 2. aprí­l.

Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Ds. Pollux, Sveitir | Comments Off

Útilega í­ Ví­filsbúð

mars 16th, 2008 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

ds utilega vifilsbud 031Sí­ðustu helgi, 7.-9. mars, fóru Ds. Castor og Ds. Pollux í­ sameiginlega sveitarútilegu í­ Ví­filsbúð. Það er óhætt að segja að veðurguðirnir hafi hugsað fallega til okkar, og hápunktur útilegunnar var án efa 3 klst. göngutúr á laugardeginum!

Myndir úr útilegunni eru komnar á myndasí­ðuna.

Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Ds. Pollux, Sveitir | Comments Off

Dróttskátaútilega í­ Ví­filsbúð

mars 7th, 2008 by Smári Guðnason

Leiðarlýsing-Ví­filsbúðMæting er í­ skálann í­ kvöld, 7. mars kl. 20.00.

Sækja á skátana á sama stað sunnudaginn 9. mars kl. 15.00.

Matur: Skátarnir eiga að mæta saddir í­ kvöld og með morgunmat fyrir báða dagana. Annar matur er sameiginlegur.

Útbúnaður: Mjög mikilvægt er að skátarnir komi með góð föt til útivistar og góða skó til að ganga í­. Einnig þurfa skátarnir að taka með sér mataráhöld.

Bannlisti: Gsm-sí­mar, i-podar, tölvur og því­umlí­kt (nema myndavélar), nammi, gos og snakk!

Smellið á myndina til að stækka hana, myndin sýnir afleggjarann að skálanum. Blöðrur verða við afleggjarann til að gera hann greinilegri.

Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Ds. Pollux | Comments Off