júní 15th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Sumarstarf Hraunbúa hófst í kvöld. Tuttuguogfjórir eldhressir fálka- og dróttskátar mættu og skemmtu sér konunglega í Capture the flag og Village 44. Hamagangurinn var mikill og gleðin skein úr hverju andliti. Myndir segja meira en þúsund orð, en þær má sjá á facebook síðu Hraunbúa frá og með morgundeginum. Í lok var æfing fyrir fánaborg skrúðgöngunnar 17. júní. Útlitið var svart í upphafi en eftir að hafa gengið nokkra hringi á Víðistaðatúni var árangurinn orðinn afar glæsilegur.
Fundir verða aðra hverja viku í sumar fyrir fálka- og dróttskáta í Hraunbúum, og verða á miðvikudögum klukkan 20:00. Næstu fundir verða 29. júní, 13. júlí og 27. júlí. Einnig verða tveir fundir í ágúst. Hópurinn er með facebook síðu (Sumarstarf Hraunbúa 2011) þar sem sendar verða út tilkynningar, svo við hvetjum alla fálka- og dróttskáta í Hraunbúum sem vilja vera með til að skrá sig þar með því að skrifa á vegginn.
Hlökkum til að sjá ykkur á 17.júní og eftir tvær vikur!
Kolfinna, Una, Birna, María og Dóra



Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar |
Comments Off
apríl 8th, 2011 by María Björg Magnúsdóttir
Á síðasta fundi skelltu skátarnir í Ds. Castor sér í klifur. Mæting var í klifurhúsið kl. 19 á miðvikudaginn og mættu 15 vaskir skátar á staðinn, reiðubúnir til að storka þyngdaraflinu. Við vorum þarna í um tvo tíma og skemmtum okkur stórvel í hinum ýmsu klifurþrautum. Þegar handleggir flestra voru orðnir þreyttir var svo rætt um fyrirhugaða dróttskátaútilegu í páskafríinu.
Talsvert var tekið af myndum á fundinum og munu þær birtast á facebook von bráðar.
Við minnum svo að sjálfsögðu á páskabingó Hraunbúa sem haldið verður 14. apríl næstkomandi – þú vilt ekki missa af því!

Flokkur: Ds. Castor |
Comments Off
mars 17th, 2011 by María Björg Magnúsdóttir
Það hefur margt verið brallað hjá dróttskátunum í Ds. Castor undanfarið. Í mars höfum við farið yfir vígslugrunninn, sögu skátahreyfingarinnar og keppt í æsispennandi skáta-spurningakeppni, fengið heimsókn radíóskáta á fund og búið til teygjubyssur svo fátt eitt sé nefnt.
Nú er á döfinni að fara í sveitarútilegu og verður hún helgina 25.-27. mars næst komandi í Reykjanesbæ. Smellið á „Lesa alla frétt“ til að fá allar upplýsingar um útileguna. Lesa alla frétt »
Flokkur: Ds. Castor |
Comments Off
febrúar 14th, 2011 by María Björg Magnúsdóttir
Á síðasta fundi fóru Castorleikarnir fram. Þá kepptu flokkar sveitarinnar innbyrðis í hinum ýmsu kappleikjum í fínasta veðri, asahláku og myrkri. Keppt var í reiptogi, skátafótbolta á L-laga velli og brennó. Leikar fóru sem hér segir:
Castormeistarar í reiptogi eru Izar.
Castormeistarar í skátafótbolta og brennó eru Sirius.
Sigurvegarar leikanna, og Castormeistararnir 2011 eru því skátarnir í Sirius. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju með sigurinn.
Við minnum jafnframt á að fundurinn á miðvikudaginn, 16. febrúar, fellur niður vegna Grunnskólahátíðar Hafnarfjarðar.
Flokkur: Ds. Castor, Sveitir |
Comments Off
janúar 28th, 2011 by María Björg Magnúsdóttir
Starfið hjá Ds. Castor er nú farið í gang af fullum krafti á vorönn. Dagskrá annarinnar er komin á netið og má skoða hana hér á síðunni, á tenglinum Sveitir.
Nú á síðasta fundi gerðu skátarnir sér glaðan dag og elduðu ljúffenga máltíð. Flokksforingjarnir í sveitarráðinu skipulögðu fundinn og stýrðu og gekk það með eindæmum vel. Krakkarnir bjuggu til hamborgara og grilluðu og var svo sest að snæðingi þar sem matur og meðlæti rann ljúflega ofan í mannskapinn.
Ég minni á frétt Rauðskinna um sleepover hér að neðan.
Flokkur: Almennt, Ds. Castor, Sveitir |
Comments Off
desember 2nd, 2010 by María Björg Magnúsdóttir
Í gærkvöldi lögðu fræknir dróttskátar í Ds. Castor land undir fót. Klukkan 5 mættu allir í Hraunbyrgi og röðuðu sér í bíla og var þaðan keyrt að Kaldárseli. Þar skildum við bílana eftir og gengum í gegnum fallega náttúru Stór-Hafnarfjarðarsvæðisins þótt við höfum ekki getað notið hennar sem skyldi enda var allt orðið dimmt. Vasaljós reyndust þó vel enda var gönguleiðin nánast eitt drullusvað eftir rigningar undanfarinna daga. Þegar við höfðum gengið í um hálftíma komum við að vin í eyðimörkinni, Valabóli, þar sem við fundum okkur gott eldstæði og hlóðum grill í kringum kolin sem við höfðum meðferðis. Þarna grilluðum við gómsætar pylsur sem runnu ljúflega ofan í mannskapinn. Eftir matinn fórum við og litum á Músarhelli, en gátum því miður ekki skráfest veru okkar þarna, því gestabókin var horfin. Þegar allir höfðu skoðað nægju sína, lögðum við af stað til baka, og sóttist ferðin létt þó við týndum slóðanum einu sinni eða tvisvar.
Það voru allir drullugir upp fyrir haus þegar í bæinn var komið, en þó sammæltust allir um að þetta hafi verið stórskemmtileg ferð.
Flokkur: Almennt, Ds. Castor |
Comments Off