nóvember 14th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Howdy Hraunbúar!
Loksins er skráning Hraunbúa á Landsmót skáta 2012 hafin! Með því að smella á linkinn hér fyrir neðan komist þið inn á skráningarsíðu Hraunbúa. Mikilvægt er að vanda sig við skráningu og fylla allt saman vel og vandlega inn. Muna að skrá skátann sem: Participant.
Ekki er búið að ákveða lokafrest skráningar, en það er samt best að skrá sig sem fyrst, svo fararstjórn fái sem réttasta mynd af fjölda til að geta samið við rútufyrirtæki og ákvarðað sameiginlegan kostnað.
Aðrar landsmótsfréttir:
Önnur fjáröflun Hraunbúa er að fara af stað í þessari viku, og munu allir skátar fá með sér bréf heim um hana. Einnig munu upplýsingar verða sendar foreldrum í tölvupósti. Stefnan er tekin á tvær til þrjár fjáraflanir til viðbótar eftir áramót. Nú þegar eru nokkrir skátar næstum því búnir að safna fyrir öllu landsmótsgjaldinu, svo það er um að gera að vera duglegur í fjáröflununum!
Fyrir jól fá skátar og foreldrar þeirra sent upplýsingahefti um landsmót, þar sem fararstjórn segir frá öllu sem komið verður á hreint þá. Einnig verður foreldrafundur í lok janúar.
Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna!
Tengill á skráningu fyrir Hraunbúa:
Tengill á heimasíðu landsmóts:
http://www.skatar.is/landsmot2012/
Bestu kveðjur,
Fararstjórn Hraunbúa
Una Guðlaug, María Björg, Kolfinna og Birgir Snær
Tölvupóstur: landsmot@hraunbuar.is
Flokkur: Almennt, Ds. Castor, Landsmót, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix, Viðburðir |
Comments Off
september 28th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Félagsútilega Hraunbúa um síðustu helgi gekk ótrúlega vel og hátt í hundrað Hraunbúar skemmtu sér konunglega í hinum íslenska Hogwarts skóla í Vindáshlíð. Myndir frá þessari stórfenglegu helgi eru komnar inn á facebook síðu Hraunbúa. Endilega skoðið þær, því þær eru vægast sagt ótrúlega skemmtilegar :)
Fönixreglan vill hér með þakka öllum kærlega fyrir helgina. Hún var frábær og þið eruð öll æði.
Takk fyrir okkur!
P.S. Minni á dagsferð drekaskáta 1.október, sjá frétt hér fyrir neðan.
Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix |
Comments Off
ágúst 24th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Kæru Rauðskinnur, Riddarar og DS Castor. Vegna óviðráðanlegra og margþættra ástæðna fellur síðasti sumarfundurinn, sem átti að vera í kvöld, niður. Í staðinn er ykkur öllum boðið að mæta á opið hús í Hraunbyrgi fimmtudaginn 1.september kl.18-20 þar sem boðið verður upp á maaaaargt og mikið spennandi:D Hlökkum til að sjá ykkur fyrsta september! Og takk kærlega fyrir alveg yndislegt sumar, það er búið að vera ótrúlega gaman með ykkur í sumar.
Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar, Viðburðir |
Comments Off
ágúst 14th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Undirbúningur Félagsútilegu Hraunbúa haustið 2011 er farinn á fullt, en útilegan verður haldin í Hogwarts, skóla galdra og seiða (Vindáshlíð), helgina 23.-25.september 2011. Þemað að þessu sinni er HARRY POTTER, svo það er um að gera að grafa upp galdraskikkjurnar úr kjallaranum, dusta rykið af töfrasprotanum og fara að rifja upp galdrana. Veitt verða verðlaun fyrir flottustu búningana og margt annað.
Í hvaða heimavist setur flokkunarhatturinn þig?
Hvað verður í gangi í Hogsmeade?
Hver vinnur Þrígaldraleikana?
Kanntu Quidditch?
Hver finnur leyniklefann?
Verður ÞÚ svo heppinn að fá bréf frá Hogwarts skóla?
Hraunbúar, takið helgina frá!
Nánari upplýsingar berast þegar nær dregur, fylgist líka með á facebook síðu Hraunbúa.
Kveðja frá Fönixreglunni
Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Grábræður, Hraunálfar, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix, Rs. Trail, Viðburðir |
Comments Off
ágúst 9th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Minnum á fimmta sumarfund Hraunbúa annað kvöld klukkan átta. Við ætlum að keppa í stórfenglegum götuleik þar sem hver hópur þarf að hafa digital myndavél og/eða mjög nútímalegann síma sem er með myndavél. Þetta verður keppni aldarinnar!
Hlökkum til að sjá ykkur öll eins og vanalega elsku drótt- og fálkaskátar!
Sumarnefndin
Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar |
Comments Off
júní 27th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Minnum alla á sumarfund Hraunbúa fyrir Riddara, Rauðskinnur og DS Castor næsta miðvikudag kl.20:00, það verður svaka gaman! Fylgist með okkur á “Sumarstarf Hraunbúa 2011″ á facebook :)
Myndin með fréttinni sýnir nýju flokkafána Rauðskinna sem fyrst litu dagsins ljós á Vormóti, vonandi munu þeir bærast í vindinum á mörgum Vormótum til viðbótar!
Hlökkum til að sjá ykkur öll á miðvikudaginn! Það verður mögulega enn skemmtilegra en síðast.
Nefndin
Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar |
Comments Off