Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar úr 'Skálanefnd' flokknum

Hverahlíð

maí 4th, 2009 by Jón Þór Gunnarsson

Upplýsingar um Hverahlíð hafa nú verið uppfærðar. Bætt hefur verið við

  • Gönguferðum í nágreni
  • Færð á vegum
  • Myndum
  • Kortum
  • Fróðleiki frá Ferli
  • Gps hnitum
  • Leigusamningi og verð
Skoða má vefsíðu hverahlíðar undir Félagið -> Skátaskálinn hverahlíð eða með því að smella hér.

Flokkur: Almennt, Skálanefnd | 1 svar »

Jólasnjór og eldiviður í Hverahlíð

desember 20th, 2008 by Guðvarður Ólafsson

Í dag byrjuðu skálaverðir daginn á því að hitta á Hreiðar og fylltum pallbílinn af eldivið. Því næst skelltum

80323

við okkur með eldviðinn uppí Hverahlíð og þar var allt á kafi í snjó og þvílíkt fín færð… Ekki amalegt að koma í Hverahlíðina í svona veðri, bjart, nóg af snjó, og kynnt vel uppí skálanum. Við tókum rafgeymana með okkur í bæinn, því þeir ná ekki að hlaða sig á fimm dögum og því þarf að hlaða þá í bænum. Þetta stafar af því að skálinn hefur verið að í notkun nánast allar helgar síðan í byrjun nóvember, sem er alveg frábært!. Í næstu ferð uppí Hverahlíð verður rafgeymum komið fyrir aftur, og svo verður dyttað að nokkrum hlutum í skálanum. Meðfylgjandi eru myndir af ferðinni uppeftir í dag!

Verum duglega að nýta Hverahlíð og göngum vel um hana og nágreni hennar.

Munið póstfang skálvarða: hverahlid (hjá) hraunbuar.is

Skálaverðir óska Hraunbúum og öllum skátum gleðilegra jóla. 

Flokkur: Skálanefnd | Comments Off

Jólaandinn yfir Hverahlíð

desember 11th, 2008 by Guðvarður Ólafsson

Í gær hittust skálaverðir Hverahlíðar uppí í skála og klæddu skálann í jólafötin. Sett var upp lítið jólatré og það skreytt, ásamt því að gluggar, loft og veggir voru þakktir ýmiskonar jólaskrauti, allt frá hefðbundunm músastigum uppí gamaldags jólaborða. Við þetta færist heldur betur jólasvipur yfir skálann og því ekki amalegt að skella sér þangað, súpa kakó og hlusta á snarklið í kamínunni. 

Þess má geta að galvaskir Rs. Asterix ætla skella sér í skálann um næstu helgi og vonandi hafa þau það sem allra best þar og finni fyrir gleði jólanna í skálanum.

Munið póstfang skálavarða: hverahlid (hjá) hraunbuar.is. Endilega sendið okkur fyrirspurnir, uppástungur eða annað sem ykkur dettur í hug er varðar skálann. Einnig er tekið við bókunum fyrir skálann í gegnum póstfangið.

Flokkur: Skálanefnd | Comments Off

Opið hús í Hverahlíð

október 20th, 2008 by Guðvarður Ólafsson

Næstkomandi laugardag, þann 25. október 2008, verður opið hús í Hverahlíð, skátaskála Skátafélagsins Hraunbúa við Kleifarvatn, frá kl. 14:00 – 17:00. 

Miklar endurbætur hafa staðið yfir frá því snemma í vor við endurreisn skálans og af því tilefni verður gestum boðið að koma og skoða skálann og þiggja heitt kakó, pönnsur og kleinur. Sr. Einar Eyjólfsson ætlar að blessa skálann kl. 14:00.

Skátaskálinn í Hverahlíð var byggður á árunum 1945-1946 og því eru margir sem eiga góðar minningar frá útilegum þar og hvetjum við þá sérstaklega til að koma og heilsa uppá okkur.

Flokkur: Skálanefnd | 1 svar »