Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar úr 'Skátamót' flokknum

Jamboree að bresta á!

júlí 27th, 2011 by Smári Guðnason

Í fyrramálið leggja hressir Hraunbúar af stað á Alheimsmót skáta sem haldið verður í Svíþjóð. Um 270 íslenskir skátar fara á mótið en gert er ráð fyrir að um 38 þúsund manns taki þátt. Alls eru 21 Hraunbúi að fara á mótið en þar af eru 18 þátttakendur, 2 sveitarforingjar og 1 í fararstjórn.

Hraunbúar eru með Vífli í sveit og heitir sveitin Hatta. Við munum reyna skrifa inn fréttir hér á heimasíðuna en einnig verður hægt að fylgjast með á www.skatar.is/jamboree2011 og á http://www.facebook.com/icejamboree

Flokkur: Erlendir viðburðir, Skátamót | Comments Off

Vormótssöngurinn

maí 30th, 2011 by Smári Guðnason

Nú eru innan við tvær vikur í Vormót Hraunbúa og ekki seinna vænna en að fara æfa Vormótssönginn. Textinn í ár var saminn við lagið “Nóttin er liðin” eftir Veðurguðina og textahöfundar eru Smári Guðnason, Jakob Guðnason, Ragnheiður Guðjónsdóttir og Karl Sigurðsson.

Textann ásamt gítargripum má nálgast hér: Á Vormót er ég kominn – Vormótssöngur.

Við minnum á að skráning á Vormótið fer fram á Skátavefnum!

Flokkur: Skátamót | Comments Off

Vormót Hraunbúa

maí 24th, 2011 by Smári Guðnason

71. Vormót Hraunbúa verður haldið í­ Krýsuví­k um hvítasunnuhelgina 10.-13. júní­ nk. og verður þema mótsins “Eldurinn lifir”

Að venju verður mótið byggt upp á virkri þátttöku skátaflokkanna en boðið verður upp á skemmtilega pósta þar sem kennir ýmissa grasa.

Einnig verður boðið upp á rekka- og róverskátadagskrá, mikinn söng og skemmtun. Allir skátar sem koma á Vormót í­ Krýsuví­k koma til að upplifa, taka þátt, hafa frumkvæði, hitta aðra og umfram allt að njóta þess að vera brosandi með öðrum skátum.

Jamboree-farar eru sérstaklega hvattir til að nýta þetta sem æfingu og fá þeir því afslátt á mótið.

Almennt verð: 3.500 kr.
Fjölskyldubúðir: 2.500 kr.
Jamboree-farar: 2.000 kr.

Skráning er hafin á Skátavefnum

Flokkur: Skátamót | Comments Off

Fyrsti sveitarfundur Jamboreesveitarinnar Höttu

janúar 31st, 2011 by Smári Guðnason

Fimmtudaginn 3. febrúar verður haldinn fundur fyrir þátttakendur og forráðamenn þeirra í sal Skátafélagsins Vífils að Bæjarbraut 7 í Garðabæ og hefst sá fundur kl. 19.30 og stendur yfir til 20.30. Það munu sveitarforingjar kynna sig og farið verður yfir starf sveitarinnar næstu mánuði.
Eftir þann fund ætla sveitarforingjar og þátttakendur að halda sveitarfund þar sem lagt verður upp með að þátttakendur í sveitinni kynnist hver öðrum. Sveitarfundinum líkur kl. 22.00.

Flokkur: Erlendir viðburðir, Skátamót | Comments Off

Foreldrafundur fyrir Jamboree-fara

nóvember 11th, 2010 by Smári Guðnason

Fararstjórn á Alheimsmót skáta í Svíþjóð 2011 boðar til foreldrafundar, miðvikudaginn 17. nóvember kl 20:00 í Jötunheimum, Skátaheimili Vífils, við bæjarbraut 7, Garðabæ.

Mikilvægt er að foreldrar allra þátttakenda úr Hraunbúum mæti á þennan fund til að fá upplýsingar um mótið.


Flokkur: Erlendir viðburðir, Skátamót | Comments Off

Fréttir af Kilke-förum

ágúst 2nd, 2010 by Smári Guðnason

Tölvuálfar báðu Kilkefara um að senda okkur smá fréttir af og til. Hér kemur fyrsta fréttin.

Hópurinn hittist á Keflavíkurflugvelli árla þriðjudagsmorguns og vélin fór i loftið kl 8. Við lentum í Helsinki um hálf þrjú á finnskum tíma og við tók tveggja tíma rútuferð á mótssvæðið. Mótssvæðið er gjörsamlega gerólíkt því sem við eigum að venjast á Íslandi því það er risastór skógur en ekki grasflöt.
Þegar við komum á svæðið hittum vid finnska jafnaldra okkar sem eru með okkur í tjaldbúð. Vid erum mikið búin að vera med þessum krökkum í gegnum mótið og allir eru orðnir vinir.
Dagskráin hefur verið ágæt og verið allt frá því að vera skemmtilegir póstar svo sem vatnadagskra eða þjónustustörf við mótið.
Veðrið hefur verið með besta móti og sól nánast allan tímann. Eini gallinn er allt rykið í loftinu og jarðveginum sem þyrlast upp þegar maður stígur niður sem kemur útaf þurkinum.
Núna eru 2 heilir dagar eftir af mótinu en eftir það förum við í heimagistingu í Helsinki þar sem við fáum að kynnast lífi heimamanna ásamt fleiru.
Öllum líður vel og allir hafa skemmt sér konunglega hér í Finnlandi.
Með bestu kveðju,

Kilke-farar

Flokkur: Erlendir viðburðir, Skátamót | Comments Off