desember 14th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Skráning Hraunbúa á Landsmót skáta 2012 er hafin og gengur skráning vel.
Nú í vikunni fá allir skátar 10 ára og eldri með sér heim upplýsingabréf um Landsmótið frá fararstjórn. Í bréfinu koma fram nánari upplýsingar um mótið, verð og greiðslutilhögun, fjölskyldubúðir og fleira. Vonandi svarar þetta bréf flestum af þeim spurningum sem brenna á vörum ykkar. Ef þetta bréf hefur ekki komist til skila endilega hafið samband við okkur, og við sendum ykkur það í tölvupósti.
Fimmtudaginn 26.janúar kl.20 verður haldinn annar foreldrafundur í Hraunbyrgi. Að þessu sinni stendur fararstjórn Hraunbúa fyrir fundinum og mun hún kynna nýjustu upplýsingar um mótið og taka við spurningum. Við mælum með því að sem flestir foreldrar mæti á þennan fund.
Við hlökkum til að sjá ykkur í janúar, og ef þið hafið einhverjar spurningar fyrir það ekki hika við að senda okkur tölvupóst.
Bestu kveðjur,
Una, María, Birgir og Kolfinna
landsmot@hraunbuar.is
(Skráningartengill: http://secure.skatar.is/jm/Register/484/4E9629B8AE33D26E87328C3C86C74264)
Flokkur: Landsmót, Skátamót |
Comments Off
ágúst 1st, 2011 by Smári Guðnason
Dagur eitt
„Höldum hópinn krakkar“ segja Guðrún, Jón Þþor og Smári í sjötta skiptið þegar við röltum að hliði eitt með passann og miðann okkar í sveittum höndunum, alveg að kikna í hnjánum af spenningi. Ofurmeikaða flugfreyjan brosir gervilega til okkar og hrifsar flugmiðann til sín. „Góða ferð“ segir hún með ofurbleikum vörum og við höldum áfram að labba í átt að rananum. Þegar allir eru búnir að planta sér í sér í sætin og spenna beltin, rís flugvélin í gegnum Íslandsskýin sem hverfa svo brátt sjónum okkar er við höldum á vit ævintýranna.
Dagur 5
„Hejalleihubba“ æpum við til Svíanna sem buðu okkur í kvöldmat eitt kvöldið og komumst að því að sænskir krakkar (sænsklingar) eru súpersætir og skemmtilegir. Sólin gladdi okkur þennan dag með geislum sínum og þá var æskilegt að bera sólarvörn númer 50 á allan kroppinn.
Við erum níu stelpur saman í tjaldi og ennþá eru nokkrir maurar þó við séum búnar að tortíma búinu þeirra.
Í kvöld er hópur A að elda eitthvað ljúffengt og svo fáum við kannski eftirrétt ef einhver hjálpar strákunum. Dagskráin í dag var skátahimnaríki, við vökuðum um sjö eins og vanalega og fuglarnir kvökuðu blítt í ástartón, írsku skátarnir léku á sekkjapípurnar sínar og þýsku trúarskátarnir söngluðu og klöppuðu inni í svarta kirkjutjaldinu sínu. En við Hraunbúar borðuðum eðal morgunmat með Georgíu fólkinu sem býr hérna hjá okkur, reyndar hafa þau gleymt að flokka ruslið sem þarf alltaf að gera. Þegar allir voru tilbúnir fyrir daginn var lagt af stað í „People“ þar sem við fórum í leiki með spánverjum og kysstum axlirnar á hvoru öðru í heilsubælislabbi (röð) og svo fórum við í samverustund með róandi tónlist. Eftir dagskrána hittum við þjóðverjavini okkar og gerðum svona vinagátu, þá þurfa að vera vinir frá tveimur mismunandi löndum og leysa spurningar og þrautahefti. Þjóðverjarnir vissu ekkert um sænska peninga en við redduðum því. Sólin er nú að setjast og kvöldmaturinn ilmar af ást og guðdómlegri hamingju. Við bíðum spenntar eftir ævintýri morgundagsins.
Hjördís Gréta, Sigurrós og Berglind.
Flokkur: Erlendir viðburðir, Skátamót |
Comments Off
júlí 29th, 2011 by Smári Guðnason
Flokkur: Erlendir viðburðir, Skátamót |
Comments Off
júlí 28th, 2011 by Smári Guðnason
Þá er fyrsta nóttin búin á Jamboree og allir hressir og kátir eftir rigninguna sem er búin að vera hjá okkur nánast síðan við komum. Mótssetningin er í kvöld kl 21 og svo förum við í næturdagskrá á miðnætti. Á morgun er frjáls dagur og verður hann nýttur til að skoða mótssvæðið og eiga góða stund saman. Hægt er að fylgjast með okkur á eftirtöldum síðum:
http://www.facebook.com/icejamboree
www.skatar.is/jamboree2011
www.skatar.is
Flokkur: Skátamót |
Comments Off
júlí 27th, 2011 by Smári Guðnason
Í fyrramálið leggja hressir Hraunbúar af stað á Alheimsmót skáta sem haldið verður í Svíþjóð. Um 270 íslenskir skátar fara á mótið en gert er ráð fyrir að um 38 þúsund manns taki þátt. Alls eru 21 Hraunbúi að fara á mótið en þar af eru 18 þátttakendur, 2 sveitarforingjar og 1 í fararstjórn.
Hraunbúar eru með Vífli í sveit og heitir sveitin Hatta. Við munum reyna skrifa inn fréttir hér á heimasíðuna en einnig verður hægt að fylgjast með á www.skatar.is/jamboree2011 og á http://www.facebook.com/icejamboree
Flokkur: Erlendir viðburðir, Skátamót |
Comments Off
maí 30th, 2011 by Smári Guðnason
Nú eru innan við tvær vikur í Vormót Hraunbúa og ekki seinna vænna en að fara æfa Vormótssönginn. Textinn í ár var saminn við lagið “Nóttin er liðin” eftir Veðurguðina og textahöfundar eru Smári Guðnason, Jakob Guðnason, Ragnheiður Guðjónsdóttir og Karl Sigurðsson.
Textann ásamt gítargripum má nálgast hér: Á Vormót er ég kominn – Vormótssöngur.
Við minnum á að skráning á Vormótið fer fram á Skátavefnum!
Flokkur: Skátamót |
Comments Off