Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar úr 'Landsmót' flokknum

Foreldrafundur vegna Landsmóts

janúar 19th, 2012 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Fararstjórn Hraunbúa ætlar að halda fund um Landsmót skáta 2012 fimmtudaginn 26. janúar kl. 20. Fundurinn verður í Hraunbyrgi. Hann er hugsaður fyrir foreldra/forráðarmenn landsmótsfara úr Hraunbúum en auðvitað eru allir velkomnir.

Farið verður yfir flestallt sem tengist landsmótinu: Skipulag, fjáraflanir, fjölskyldubúðir, verð og fleira.

Vonumst til að sjá sem allra flesta!

Bestu kveðjur,

Fararstjórn Hraunbúa

María, Kolfinna, Una og Birgir

Flokkur: Landsmót | Comments Off

Landsmótsfréttir

desember 14th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Skráning Hraunbúa á Landsmót skáta 2012 er hafin og gengur skráning vel.

Nú í vikunni fá allir skátar 10 ára og eldri með sér heim upplýsingabréf um Landsmótið frá fararstjórn. Í bréfinu koma fram nánari upplýsingar um mótið, verð og greiðslutilhögun, fjölskyldubúðir og fleira. Vonandi svarar þetta bréf flestum af þeim spurningum sem brenna á vörum ykkar. Ef þetta bréf hefur ekki komist til skila endilega hafið samband við okkur, og við sendum ykkur það í tölvupósti.

Fimmtudaginn 26.janúar kl.20 verður haldinn annar foreldrafundur í Hraunbyrgi. Að þessu sinni stendur fararstjórn Hraunbúa fyrir fundinum og mun hún kynna nýjustu upplýsingar um mótið og taka við spurningum. Við mælum með því að sem flestir foreldrar mæti á þennan fund.

Við hlökkum til að sjá ykkur í janúar, og ef þið hafið einhverjar spurningar fyrir það ekki hika við að senda okkur tölvupóst.

Bestu kveðjur,

Una, María, Birgir og Kolfinna

landsmot@hraunbuar.is

(Skráningartengill: http://secure.skatar.is/jm/Register/484/4E9629B8AE33D26E87328C3C86C74264)

Flokkur: Landsmót, Skátamót | Comments Off

Skráning á Landsmót skáta 2012 hafin

nóvember 14th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Howdy Hraunbúar!

Loksins er skráning Hraunbúa á Landsmót skáta 2012 hafin!  Með því að smella á linkinn hér fyrir neðan komist þið inn á skráningarsíðu Hraunbúa. Mikilvægt er að vanda sig við skráningu og fylla allt saman vel og vandlega inn. Muna að skrá skátann sem: Participant.

Ekki er búið að ákveða lokafrest skráningar, en það er samt best að skrá sig sem fyrst, svo fararstjórn fái sem réttasta mynd af fjölda til að geta samið við rútufyrirtæki og ákvarðað sameiginlegan kostnað.

Aðrar landsmótsfréttir:

Önnur fjáröflun Hraunbúa er að fara af stað í þessari viku, og munu allir skátar fá með sér bréf heim um hana. Einnig munu upplýsingar verða sendar foreldrum í tölvupósti. Stefnan er tekin á tvær til þrjár fjáraflanir til viðbótar eftir áramót. Nú þegar eru nokkrir skátar næstum því búnir að safna fyrir öllu landsmótsgjaldinu, svo það er um að gera að vera duglegur í fjáröflununum!

Fyrir jól fá skátar og foreldrar þeirra sent upplýsingahefti um landsmót, þar sem fararstjórn segir frá öllu sem komið verður á hreint þá. Einnig verður foreldrafundur í lok janúar.

Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna!

Tengill á skráningu fyrir Hraunbúa:

Tengill á heimasíðu landsmóts:

http://www.skatar.is/landsmot2012/

Bestu kveðjur,

Fararstjórn Hraunbúa

Una Guðlaug, María Björg, Kolfinna og Birgir Snær

Tölvupóstur: landsmot@hraunbuar.is

Flokkur: Almennt, Ds. Castor, Landsmót, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix, Viðburðir | Comments Off

Landsmót: á heimleið

júlí 29th, 2008 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Allt tekur enda um sí­ðir, og er Landsmóti skáta lokið að þessu sinni. Dagurinn í­ dag fór í­ frágang og mótsslit. og eru Landsmótsfarar nú á heimleið. Krakkarnir eru nú staddir í­ Staðarskála, þar sem snæddur var kvöldverður. Einhver seinkun var á brottför þaðan, svo reikna má með því­ að rútan komi í­ Hraunbyrgi um kl. 20.40.

Flokkur: Almennt, Útilegur, Landsmót, Skátamót | Comments Off

Landsmót: Dagar 3 og 4

júlí 25th, 2008 by Smári Guðnason

IMG_3130Nú er kominn dagur 4 og veðrið hefur svo sannarlega leikið við okkur hér á Hömrum. í gær lögðu allir flokkarnir af stað í­ hike, sumir í­ dagshike en aðrir í­ sólahringsshike. í dag héldu svo allir Hraunbúar af stað niður á Akureyri á dagskrársvæðið Brölt og bleyta þar sem farið var í­ vatnasafarí­, vatnsbyssustrí­ð, siglingu og margt fleira. Núna fyrir stuttu lauk torgakvöldvöku Þrymheima sem Hraunbúar sáu um og heppnaðist hún mjög vel.

í morgun er svo Óðinsdagur og þá gefst öllum kostur á að koma og heimsækja mótið og verða félögin því­ með kynningar á sí­nu félagi eða heimabæ. Að sjálfsögðu þá hvetjum við alla til að koma í­ heimsókn.

Flokkur: Landsmót | Comments Off

Landsmót: Fyrstu dagarnir

júlí 23rd, 2008 by Smári Guðnason

76083

Jæja, þá eru allir komnir norður heilir á húfi. Við mættum á Hamra rúmlega 16 í­ gær og þá tók við uppsetning tjaldbúðarinnar og 130fm eldhústjalds. Veðrið hefur leikið við okkur og því­ hefur verið mikið buslað í­ vatnasafarí­inu í­ dag ásamt því­ að vinna í­ valfrjálsum póstum til að vinna sér inn Þórshamarsmerki.

Nú þegar þetta er skrifað eru allir krakkarnir í­ svokölluðum áskorunarleik sem heitir “ískorun Nönnu” og eru 100 verkefni um allt mótssvæðið sem þau eiga að leysa.

Myndir frá dögunum eru væntanlegar seinna í­ kvöld og við munum reyna að skrifa inn stutta frétt og setja inn myndir á hverju kvöldi.

Kv. Landsmótsfarar

Flokkur: Landsmót | Comments Off