apríl 7th, 2009 by Smári Guðnason
Smá fréttir af okkur á IMWe. Það er komið að þriðja degi mótsins allt komið í fullan gír. Jakob er í fréttablaðssmiðju mótsins og Smári í Cajon smiðju þar sem hann býr til Cajon trommu.
Veðrið er búið að leika við okkur frá upphafi og þegar þetta er skrifað er 20-26 stiga hiti í kastalagarðinum en sem betur fer verður það ekki svoleiðis restina af mótinu!
Kveðja frá IMWe,
Smári
Flokkur: Erlendir viðburðir, Skátamót |
Comments Off
apríl 7th, 2008 by Jón Þór Gunnarsson
IMWe er skammstöfun fyrir Internationale Musische Werkstatt eða alþjóðlegar skapandi smiðjur Eins og nafnið gefur til kynna byggist dagskráin upp á ýmsum smiðjum, þar á meðal tónlistarsmiðjum. Síðasta IMWe var haldið í Rieneck, Þýskalandi, í mars líkt og síðustu ár en þemað var Arabian Nights. Þar í bæ er lítill kastali í eigu eins VCP skátabandalagsins sem býður uppá mikla möguleika hvað varðar notkun. Fjórir Hraunbúar fóru í víking til Þýskalands í ár en það voru þau Einar Jón Gunnarsson, Jakob Guðnason, Jón Þór Gunnarsson og Katrín Ýr Árnadóttir.
Um það bil 100 þátttakendur frá nokkrum löndum tóku þátt í IMWe í ár og létu fjölmargir Íslendingar svip sinn á mótið. Ísland setti einnig met í þátttakendafjölda en tæplega tuttugu íslenskir þátttakendur voru á mótinu. Þess ber einnig að geta að einn Íslendingur er í undirbúningshóp mótsins, Jón Ingvar Bragason, fyrrverandi fræðslustjóri BÍS.
Lesa alla frétt »
Flokkur: Erlendir viðburðir |
Comments Off