nóvember 30th, 2011 by Páll Línberg Sigurðsson
Haldið var skemmtilegt helgarnámskeið fyrir Skátafélagið Hraunbúa þann 18-20. nóvember síðastliðin í skátaheimilinu Hraunbyrgi. Þar kynnti Bandalag íslenskra skáta fyrir sveitarforingjum, róverskátum, stjórnarmeðlinum og starfsmönnum nýja skátadagskrá. Um er að ræða nýtt skátaefnið sem alþjóðahreyfing skáta hefur verið að þróa síðustu árin og er nú loksins að verða að verkuleika hér á Íslandi. Búið er að gefa út 3 handbækur fyrir aldurshópanna 7-15 ára, ásamt stuðningsefni og munu Hraunbúar nýta sér þessa nýju skátadagskrár í sínu starfi strax eftir áramótin.
Flokkur: Almennt |
Comments Off
nóvember 23rd, 2011 by Guðjón Rúnar Sveinsson
Skátafélagið Hraunbúar og Hópbílar hf hafa gert með sér samstarfssaming, þess efnis að Hópbílar muni sjá um alla akstursþjónustu fyrir Hraunbúa næstu þrjú árin. Það er mat okkar Hraunbúa að þessi samningur komi báðum aðilnum til góða og við hlökkum til að starfa með fyrirtæki með skýra umhverfisstefnu og bílbelti í sínum bílum. Með öryggi barna að fyrirrúmi, þar liggur hagur beggja.
Skátafélagið Hraunbúar

Frá undirritun
Flokkur: Almennt |
Comments Off
nóvember 21st, 2011 by Birna Sigurðardóttir
Sveitarútilega Rauðskinna fór fram helgina 11-13. nóvember. 20 hressar stelpur mættu í Lækjarbotna á föstudagskvöld tilbúnar bráðskemmtilega útilegu. Haldin var spurningakeppni á föstudagskvöldið ásamt því að stigin voru nokkur vel valin dansspor og var því mikið hlegið af foringjunum ;)
Á laugardagsmorgun voru svo neyðarpokar úr leðri kláraðir ásamt flokkaklemmum. Svo var haldið í létt og s
kemmtilegt hike þar sem við þurftum að staulast yfir læk, mjaka okkur fram hjá klettum og kannski blotna smá í fæturna. Svo fundum við líka voða sætan helli.
Eftir hike’ið var opinn póstaleikur. Stelpurnar gerðu leðurhnúta á klútana sína, fóru í kimsleik þar sem þær áttu að leita að myndum og muna þær, leystu dulmál og gátur, gerðu svakalegar fatalínur sem teygðu anga sína um allt hús, skrifuðu grein um skátastarf og gerðu stórsniðug skemmtiatriði fyrir kvöldvökuna.
Á meðan póstaleikurinn fór fram voru foringjarnir önnum kafnir við það að baka brauð og lummur. Lummurnar hurfu mjög fljótlega og meðlætið sem var með þeim, a.k.a. NAMMI.
Þá var loks komið að vígslunni sem allir höfðu beðið eftir. 14 stelpur vígðust inn í sveitina en hinar 6 vígðu hjálpuðu til við vígsluna. Ekki má uppljóstra of miklu um þessa fornu vígslu Rauðskinna en það má með sanni segja að hún hafi verið mjög eftirminnileg fyrir alla :) Kertaljós og róleg stemmning var í skálanum á þessum tímapunkti sem var ef till vill kærkomið fyrir alla, enda búin að vera mikil læti og mega fjör!
Þegar vígslunni var lokið var kvöldmatur þar sem Kolfinna fór á kostum í spaghettís og hakks eldamennsku. Takk Kolfinna!
Svo var hress kvöldvaka með stórskemmtilegum atriðum frá stelpunum og einu skrýtnu frá foringjunum.
Þá var kominn háttatími, en fyrst fengu allir heitt kakó. Allir sváfu vært og var vaknað á sunnudagsmorgun, tekið til og haldið heim á leið :)
Takk fyrir helgina stelpur hún var frábær!
Kveðja sveitarforingjar,
Birna, Marta og Mekkin
Ekki má gleyma Kolfinnu og Maríu sem veittu ómetanlega hjálp um helgina :) Takk!
Flokkur: Almennt, Útilegur, Rauðskinnur, Sveitir |
Comments Off
nóvember 14th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Howdy Hraunbúar!
Loksins er skráning Hraunbúa á Landsmót skáta 2012 hafin! Með því að smella á linkinn hér fyrir neðan komist þið inn á skráningarsíðu Hraunbúa. Mikilvægt er að vanda sig við skráningu og fylla allt saman vel og vandlega inn. Muna að skrá skátann sem: Participant.
Ekki er búið að ákveða lokafrest skráningar, en það er samt best að skrá sig sem fyrst, svo fararstjórn fái sem réttasta mynd af fjölda til að geta samið við rútufyrirtæki og ákvarðað sameiginlegan kostnað.
Aðrar landsmótsfréttir:
Önnur fjáröflun Hraunbúa er að fara af stað í þessari viku, og munu allir skátar fá með sér bréf heim um hana. Einnig munu upplýsingar verða sendar foreldrum í tölvupósti. Stefnan er tekin á tvær til þrjár fjáraflanir til viðbótar eftir áramót. Nú þegar eru nokkrir skátar næstum því búnir að safna fyrir öllu landsmótsgjaldinu, svo það er um að gera að vera duglegur í fjáröflununum!
Fyrir jól fá skátar og foreldrar þeirra sent upplýsingahefti um landsmót, þar sem fararstjórn segir frá öllu sem komið verður á hreint þá. Einnig verður foreldrafundur í lok janúar.
Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna!
Tengill á skráningu fyrir Hraunbúa:
Tengill á heimasíðu landsmóts:
http://www.skatar.is/landsmot2012/
Bestu kveðjur,
Fararstjórn Hraunbúa
Una Guðlaug, María Björg, Kolfinna og Birgir Snær
Tölvupóstur: landsmot@hraunbuar.is
Flokkur: Almennt, Ds. Castor, Landsmót, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix, Viðburðir |
Comments Off
nóvember 3rd, 2011 by Guðvarður Ólafsson
Á fundi Hraunbúasjóðsins þann 25. október 2011 var eftirfarandi ákveðið:
Umsóknartímabili á hverju ári hefur verið skipt upp í tvennt, m.a. til að einfalda umsóknarferlið, og svo að styrkveitingar nýtist betur í skátastarfi í Hafnarfirði.
Haustúthlutun – Umsóknarfrestur er 1. október
Vorúthlutun – Umsóknarfrestur er 1. febrúar
Fundir Hraunbúasjóðsins verða haldnir að meðaltali tveim vikum eftir að umsóknarfresti lýkur og verður þá farið yfir þær umsóknir sem borist hafa. Öllum umsóknum skal skila til ritara Hraunbúasjóðsins.
Einnig var ákveðið á fundi Hraunbúasjóðsins að á árinu 2012 mun sjóðurinn ekki veita ferðastyrki.
Upplýsingar um Hraunbúasjóðinn má finna hér.
Flokkur: Almennt |
Comments Off
nóvember 2nd, 2011 by Andri Már Reynisson
Um helgina fara Riddarar í sveitarútilegu í Hverahlíð, skátaskála Hraunbúa við Kleifarvatn í Krýsuvík. Að venju verður margt um að vera í útilegunni. Gist verður eina nótt, aðfaranótt sunnudags. Mæting er kl. 10 á laugardagsmorgninum við afleggjarann að Hverahlíð við suðurenda Kleifarvatns í Krýsuvík. Útilegunni lýkur svo kl. 15:00 á sunnudeginum þar sem sækja þarf skátana á sama stað.
Skráning fer fram á netfanginu andri@hraunbuar.is, en verð fyrir útileguna er 1.000,- kr.
Skátarnir fengu útbúnaðarlista með sér heim á miðvikudaginn fyrir 2 vikum. Á sveitarfundinum í dag fá skátarnir með sér dagskrá fyrir útileguna þar sem allar helstu upplýsingar koma fram.
Ef einhverjar spurningar má endilega hafa samband við sveitarforingja Riddara.
Við hvetjum alla Riddara til að mæta í útileguna!
Kveðja,
Andri
Flokkur: Almennt, Útilegur, Riddarar, Viðburðir |
Comments Off