Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar úr 'Almennt' flokknum

Labbi frá síðasta Vormóti

maí 15th, 2012 by Smári Guðnason

Loksins hefur vefnefnd Hraunbúa fengið í hendurnar langþráð PDF skjöl sem innihalda þau fjögur tölublöð sem gefin voru út af mótsblaðinu Labba á síðasta Vormóti.

Endilega kíkið á þetta og sjáumst hress á Vormóti Hraunbúa helgina 8.-10. júní nk.

Labbi, 1. tbl 2011

Labbi, 2. tbl 2011

Labbi, 3. tbl 2011

Labbi, 4. tbl 2011

Flokkur: Almennt | Engin svör »

Vormót 2012

maí 14th, 2012 by Birna Sigurðardóttir

Þá er komið að því!

72. Vormót Hraunbúa verður haldið  í Krýsuvík 8. – 10. júní n.k.

Þema mótsins í ár er „eldur, vatn og ævintýr“ og má gera ráð fyrir skemmtilegri dagskrá í anda þemans.

Hver og einn ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi hvort sem það er eldheitur varðeldurinn, rennblautt vatnasafaríið eða klikkaðir ævintýraleikir :)

Á laugardagskvöld verður hátíðarvarðeldur með kvöldvöku að skátasið. Ekki láta þig vanta!

Verð:
Almennur þátttakandi: 4.000 kr.
Vinnubúðir (Rekka- og Róverskátar): 4.000 kr. (hægt að sækja um 50% endurgreiðslu innan tveggja vikna frá mótsslitum – fer eftir vinnuframlagi)

Fjölskyldubúðir: 3.000 kr. per tjald (miðað við 2 fullorðna)
Viðbótargjald fyrir 10 ára og eldri: 1.000 kr.
Frítt fyrir 9 ára og yngri.

Skráning er hafin hér!

Einnig er hægt að fylgjast með Vormóti á facebook.

Hlökkum til að sjá þig!

 

Flokkur: Almennt, Útilegur, Skátamót, Viðburðir | Engin svör »

Sumarvinna

maí 8th, 2012 by Nanna Guðrún Bjarnadóttir

Stjórn Hraunbúa leitar að hæfum einstaklingi í stöðu skólastjóra Útilífsskóla Hraunbúa.

Skólastjóra útilífsskóla 21 ára +

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ber ábyrgð á daglegri stjórnun, skipulagningu og umsjón Útilífsskólans
  • Ber ábyrgð á markaðsetningu og auglýsingum fyrir Útilífsskólann
  • Undirbúningur og skipulagning námskeiða
  • Umsjón með starfsmannamálum: ráðningu starfsmanna, verkskipulagi,vinnutímum starfsmanna og samskipti við vinnuskóla.
  • Þjálfun starfsfólks Útilífsskólans
  • Ber ábyrgð á daglegum rekstri og innkaupum

Hæfniskröfur:

  • reynsla af stjórnun
  • reynsla af skátastarfi
  • sjálfstæð vinnubrögð
  • færni í mannlegum samskiptum
  • áhugi og metnaður í starfi

Nánari upplýsingar fást hjá Nönnu Guðrúnu í síma 823-5028.

Umsókn skal senda með tölvupósti á utilifsskoli@hraunbuar.is og skal berast í síðasta lagi 15.maí 2012.

Flokkur: Almennt | Engin svör »

Sveitarútilegu Riddara frestað

apríl 21st, 2012 by Andri Már Reynisson

Sæl öll

Því miður verðum við að fresta sveitarútilegu Riddara sem átti að hefjast í dag vegna ónógrar skráningar. Sveitarútilegan verður í staðinn haldin í maí, í stað dagsferðar á Hvaleyrarvatn. Meira um það þegar nær dregur.

Kveðja,

Andri

Flokkur: Almennt | Engin svör »

Sumardagurinn fyrsti

apríl 17th, 2012 by Auður Ingólfsdóttir

Skátafélagið Hraunbúar mun halda sumardaginn fyrsta hátíðlegan með viðeigandi hátíðardagskrá.
Dagskráin hefst með messu í Hafnarfjarðarkirkju klukkan 13:00. Klukkan 13:45 verður farið í skrúðgöngu frá kirkjunni í gengum bæinn og niður að Þórsplani. Lúðrasveit tónlistarskóla Hafnarfjarðar og skátarnir munu leiða gönguna. Á Thorsplani munu Hraunbúar standa fyrir hátíðardagskrá á sviði og verða hinar ýmsu þrautir og leikir fyrir alla á svæðinu. Á sviðinu munu meðal annars koma fram Úlfur, úlfur, Leikhópurinn Lotta, atriði úr Barnaleikritinu Karlinn sem gat ktilað sjálfan sig, sönglist, Lucida og Kór flensborgarskólans svo eitthvað sé neft. Kynnir verður Anna Magga leikkona.

Hlökkum til að sjá alla Hafirðinga á Sumardaginn fyrsta

Dagskrá:
11:00 Víðavangshlaup Hafnarfjarðar á Víðistaðatúni.
13:00 Skátamessa í Hafnarfjarðarkikju.
13:45 Skrúðganga frá Hafnarfjarðarkirkju niður á Thorsplan
14:00-16:00 Fjölskyldudagskrá á Thorsplani í umsjá Hraunbúa.

Flokkur: Almennt | Comments Off

Sveitarútilega Riddara og undirbúningur

apríl 16th, 2012 by Andri Már Reynisson

Um helgina ætla Riddarar í sveitarútilegu.

Gist verður í Vífilisbúð, skátaskála í Heiðmörk (við enda Oddfellow golfvallarins). Mæting er laugardaginn 21. apríl kl. 13:00 við útigrillin í Heiðmörk og munum við koma okkur í skálann þaðan. Foreldrar eru síðan beðnir um að sækja skátana á sama stað við grillin kl. 12:00 á sunnudeginum.

Verð í útileguna er 2.500 kr. Innifalið í því er gisting og matur á laugardagskvöldinu.

Vonumst til að sjá sem allra flesta, enda ekki seinna vænna að koma útilegustemmningunni í gang fyrir Vormót Hraunbúa og Landsmót skáta, sem haldin verða í sumar.

Skátarnir munu fá bréf heim á miðvikudaginn með útbúnaðarlista og fleiru, en ef þeir eiga eldri útbúnaðarlista fyrir útilegu eru þeir einnig góðir og gildir. Foreldrar eru hvattir til að hafa samband við sveitarforingja á andri@hraunbuar.is ef eitthvað er óljóst.

Skráning fer fram á netfanginu andri@hraunbuar.is.

Á miðvikudaginn munum við undirbúa útileguna og einnig sumardaginn fyrsta, sem er á fimmtudaginn og er stór dagur í skátastarfinu.

Bestu kveðjur,

Andri

Flokkur: Almennt | Comments Off