febrúar 25th, 2012 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Við viljum minna á að skráning Hraunbúa á Landsmót skáta er í fullum gangi á eftirfarandi tengli: http://secure.skatar.is/jm/Register/484/4E9629B8AE33D26E87328C3C86C74264, betra er að skrá sig fyrr en síðar, helst fyrir 1.mars. Það þarf að vera búið að greiða allt mótsgjaldið fyrir 1.maí.
Búið er að stofna hóp fyrir landsmótsfara og foreldra þeirra á facebook: Hraunbúar á Landsmót skáta 2012:
http://www.facebook.com/groups/275716549167675/
Hvetjum við alla foreldra og skáta til að vera með í hópnum.
Að lokum er vert að minnast á það að smá breyting hefur orðið á fararstjórn Hraunbúa. Una Guðlaug er nýkjörinn félagsforingi Hraunbúa og dregur sig þess vegna úr fararstjórninni. Í stað hennar kemur inn Ásgeir Úlfarsson. Una mun þó áfram fylgjast náið með störfum fararstjórnar og skemmta sér með okkur á Landsmóti í sumar.
Ekki hika við að senda okkur tölvupóst ef einhverjar spurningar vakna. Svo má líka alltaf skrifa á vegginn okkar á facebook.
Bestu kveðjur,
Biggi, María, Kolfinna og Ásgeir
landsmot@hraunbuar.is
Flokkur: Landsmót |
Comments Off
febrúar 25th, 2012 by Andri Már Reynisson
Á morgun, sunnudag, var fyrirhuguð dagsferð Riddara í Heiðmörk, þar sem ætlunin var að gera sér glaðan dag.
Því miður frestast ferðin um a.m.k. 2 vikur. Nánari upplýsingar verða veittar síðar.
Kveðja,
Andri
Flokkur: Almennt |
Comments Off
febrúar 21st, 2012 by Auður Ingólfsdóttir
Það verður haldin kvöldvaka í Hraunbyrgi miðvikudaginn 22. febrúar. Allir eru eindregið kvattir til þess að mæta því að þetta verður afskaplega mikið fjör! :) Það verður spilað, sungið og drukkið kakó. Einnig verða skemmtileg skemmtiatriði í boði sveita. Allir foreldrar eru eindregið hvattir til þess að mæta með skátunum á þennan atburð. Sjáumst hress. :)
Flokkur: Almennt |
Comments Off
febrúar 6th, 2012 by Páll Línberg Sigurðsson
Frá árinu 2002 hefur Hafnarfjarðarbær greitt niður þátttökugjöld fyrir börn og unglinga í æskulýðs- og íþróttafélögum í Hafnarfirði. Markmið niðurgreiðslna er að gera börnum með lögheimili í Hafnarfirði kleift að taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi óháð efnahag fjölskyldna og að efla íþrótta- og annað forvarnastarf í Hafnarfirði. Einnig á niðurgreiðslan að vinna gegn óæskilegu brottfalli í eldri aldurshópum iðkenda.
Þeir foreldrar sem eiga börn í skátnum, eru hvattir til að nýta sér þennan styrk til lækkunar á félagsgjaldi skátans – ef þið nýtið ykkur ekki þennan styrk, lítum við svo á að þið viljið greiða þennan hluta félagsgjaldsins sjálf og munum senda ykkur greiðsluseðil fyrir samskonar upphæð og styrkurinn hefði orðið.
Miðvikudaginn 1. febrúar var opnað fyrir umsóknir um niðurgreiðslu á þátttökugjöldum barna og unglinga og verður opið til og með 15.febrúar. Sækja verður um niðurgreiðsluna í gegnum íbúagáttina á www.hafnarfjordur.is
Flokkur: Almennt |
Comments Off