Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Rauðskinnustarfið hafið

Skrifað af Birna Sigurðardóttir þann 25. janúar 2012

Vorönnin hjá Rauðskinnum er hafin af fullum krafti. Á fyrsta fundi var vorönnin kynnt, kosið var um umbun þar sem stúlkurnar munu safna saman límmiðum fyrir mætingu og fá að launum að baka muffins. Einnig voru önnur verkefni kláruð, til dæmis var Rauðskinnumerkið klárað á veggnum í sveitarherberginu.

Í síðustu viku var ljósmyndamaraþon þar sem stúlkurnar fengu 25 erfið orð til þess að taka myndir af. Myndirnar voru síðan klipptar út og settar á plakat og munu þau prýða Hraunbyrgi næstu vikur.

Á næsta fundi, 31. janúar verður farið í heimsókn í Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Mæting er á Flatarhraun kl. 17:30 en sækja á stelpurnar í Hraunbyrgi, þar sem við munum rölta til baka eftir smá kynningu.

Þann 3. febrúar verður svo sleepover í Hraunbyrgi. Mikilvægt er að foreldrar skrái stúlkurnar með því að senda póst á marta(hjá)hraunbuar.is. Stelpurnar fengu blað með upplýsingum á síðasta fundi, en einnig má sjá blaðið í heild sinni með því að ýta á ,,lesa alla frétt”.

Dagskrá vorannar má einnig nálgast á skrifstofu, hjá sveitarforingjum eða hér.

 

Kveðja,

Birna, Marta og Mekkín :)

Sleepover Rauðskinna – Febrúar 2012

Kæru foreldrar/forráðamenn

Föstudaginn 3. febrúar verður sleepover hjá Rauðskinnum. Mæting er klukkan 19:00 í Hraunbyrgi, en sækja á stelpurnar klukkan 11:00 á laugardagsmorgun. Dagskrá kvöldsins og morgunsins er mjög frjáls. Sveitarforingjar verða á staðnum allan tímann og verða með smá uppákomur, en annars mega stelpurnar brasa það sem þær vilja helst. Við verðum með einhverjar bíómyndir og spil, en stelpunum er velkomið að koma með spil eða DVD sjálfar sé áhugi fyrir því.

Kostnaður fyrir þáttöku er enginn, en við stefnum á að panta pítsur um kvöldið, og þær Rauðskinnur sem vilja vera með í því geta komið með 500 krónur. Annað matarkyns þurfa þær að koma með, eins og t.d. morgunmat.

Gos, nammi, símar, iPodar og þess háttar er ekki á bannlistanum að þessu sinni.

Dýnur eru á staðnum en það þarf að koma með svefnpoka.

Mjög mikilvægt er foreldrar skrái stelpurnar með því að senda tölvupóst á marta(hjá)hraunbuar.is

Á döfinni:

  • 26. Janúar er foreldrafundur fyrir Landsmót. Mikilvægt er að foreldrar þeirra skáta sem hafa áhuga á að fara mæti. Fundurinn hefst kl. 20:00

 

  • Næsti fundur, 31. janúar verður haldinn í Björgunarsveit Hafnarfjarðar, Flatarhrauni 14. Mæting er á Flatarhraun kl. 17:30 en sækja á stelpurnar í Hraunbyrgi, þar sem við munum rölta til baka eftir smá kynningu.

 

Hlökkum til að sjá ykkur sem flestar,

Birna Sigurðardóttir              s.8684843       birna(hjá)hraunbuar.is

Marta Grétarsdóttir                s. 6621996      marta(hjá)hraunbuar.is

Mekkín Barkardóttir              s. 6995848      mekkin(hja)hraunbuar.is

 


Tengdar færslur:

  1. Sveitarútilega Rauðskinna vel heppnuð
  2. Áhugasamir foreldrar

Þessi grein var skrifuð þann 25. janúar 2012 kl. 9:57 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt, Rauðskinnur. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Þú getur svarað grein, eða elt frá þinni eigin vefsíðu.

Svaraðu þessari grein!