Aðalfundarboð – 20. febrúar – kl. 19:00
Skrifað af Páll Línberg Sigurðsson þann 20. janúar 2012
Sæl verið þið
Boða hér með alla skáta 16 ára og eldri og einn forráðamann hvers skáta undir 16 ára aldri í félaginu til aðalfundar Hraunbúa mánudaginn 20. febrúar í Hraunbyrgi, kl. 19:00.
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:
- a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- b) Skýrsla stjórnar.
- c) Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf og annarra eininga félagsins.
- d) Umræður um framlagðar skýrslur.
- e) Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
- f) Lagabreytingar.
- g) Kynning frambjóðenda.
- h) Kosning stjórnar.
- i) Kosning tveggja varamanna stjórnar
- j) Kosning tveggja skoðanamanna reikninga.
- k) Kosning þriggja manna í laganefnd.
- l) Kosning þriggja manna í uppstillingarnefnd.
- m) Önnur mál.
Varðandi kosningarrétt, þá er hér 3.3. grein laga skátafélagsins um kosningarrétt hvers skáta eða forráðamanns.
- Grein 3.3.
Kosningarétt hafa starfandi skátar 16 ára og eldri, ef árgjöld þeirra er í skilum. Einnig einn forráðamaður hvers skáta undir 16 ára aldri í félaginu ef árgjöld skátans er í skilum. Enginn einn forráðamaður getur farið með fleira en eitt atkvæði á aðalfundi.
Fyrir þá sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn eða sem varamenn er bent á skoða lagagreinar á vefsíðu félagsins og eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við uppstillingarnefnd, en hana skipa:
- Bergur Ólafsson, s.662 8500, berguro@gmail.com
- Ásgeir Ríkarð Guðjónsson, s. 6977434 asgeir@spori.is
- Sigurjón M Ólafsson, s. 898 3291, sjonni@hraunbuar.is
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Með kærri kveðju,
Stjórn Hraunbúa
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 20. janúar 2012 kl. 11:04 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


