Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá janúar, 2012

Rauðskinnustarfið hafið

janúar 25th, 2012 by Birna Sigurðardóttir

Vorönnin hjá Rauðskinnum er hafin af fullum krafti. Á fyrsta fundi var vorönnin kynnt, kosið var um umbun þar sem stúlkurnar munu safna saman límmiðum fyrir mætingu og fá að launum að baka muffins. Einnig voru önnur verkefni kláruð, til dæmis var Rauðskinnumerkið klárað á veggnum í sveitarherberginu.

Í síðustu viku var ljósmyndamaraþon þar sem stúlkurnar fengu 25 erfið orð til þess að taka myndir af. Myndirnar voru síðan klipptar út og settar á plakat og munu þau prýða Hraunbyrgi næstu vikur.

Á næsta fundi, 31. janúar verður farið í heimsókn í Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Mæting er á Flatarhraun kl. 17:30 en sækja á stelpurnar í Hraunbyrgi, þar sem við munum rölta til baka eftir smá kynningu.

Þann 3. febrúar verður svo sleepover í Hraunbyrgi. Mikilvægt er að foreldrar skrái stúlkurnar með því að senda póst á marta(hjá)hraunbuar.is. Stelpurnar fengu blað með upplýsingum á síðasta fundi, en einnig má sjá blaðið í heild sinni með því að ýta á ,,lesa alla frétt”.

Dagskrá vorannar má einnig nálgast á skrifstofu, hjá sveitarforingjum eða hér.

 

Kveðja,

Birna, Marta og Mekkín :)

Lesa alla frétt »

Flokkur: Almennt, Rauðskinnur | Engin svör »

Aðalfundarboð – 20. febrúar – kl. 19:00

janúar 20th, 2012 by Páll Línberg Sigurðsson

Sæl verið þið

Boða hér með alla skáta 16 ára og eldri og einn forráðamann hvers skáta undir 16 ára aldri í félaginu til aðalfundar Hraunbúa mánudaginn 20. febrúar í Hraunbyrgi, kl. 19:00.

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

  • a)     Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  • b)    Skýrsla stjórnar.
  • c)     Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf og annarra eininga félagsins.
  • d)    Umræður um framlagðar skýrslur.
  • e)     Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
  • f)     Lagabreytingar.
  • g)    Kynning frambjóðenda.
  • h)     Kosning stjórnar.
  • i)      Kosning tveggja varamanna stjórnar
  • j)      Kosning tveggja skoðanamanna reikninga.
  • k)     Kosning þriggja manna í­ laganefnd.
  • l)      Kosning þriggja manna í­ uppstillingarnefnd.
  • m)   Önnur mál.

Varðandi kosningarrétt, þá er hér 3.3. grein laga skátafélagsins  um kosningarrétt hvers skáta eða forráðamanns.

  • Grein 3.3.
    Kosningarétt hafa starfandi skátar 16 ára og eldri, ef árgjöld þeirra er í­ skilum. Einnig einn forráðamaður hvers skáta undir 16 ára aldri í­ félaginu ef árgjöld skátans er í­ skilum. Enginn einn forráðamaður getur farið með fleira en eitt atkvæði á aðalfundi.

Fyrir þá sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn eða sem varamenn er bent á skoða lagagreinar á vefsíðu félagsins og eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við uppstillingarnefnd, en hana skipa:

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Með kærri kveðju,

Stjórn Hraunbúa

Flokkur: Almennt | Comments Off

Foreldrafundur vegna Landsmóts

janúar 19th, 2012 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Fararstjórn Hraunbúa ætlar að halda fund um Landsmót skáta 2012 fimmtudaginn 26. janúar kl. 20. Fundurinn verður í Hraunbyrgi. Hann er hugsaður fyrir foreldra/forráðarmenn landsmótsfara úr Hraunbúum en auðvitað eru allir velkomnir.

Farið verður yfir flestallt sem tengist landsmótinu: Skipulag, fjáraflanir, fjölskyldubúðir, verð og fleira.

Vonumst til að sjá sem allra flesta!

Bestu kveðjur,

Fararstjórn Hraunbúa

María, Kolfinna, Una og Birgir

Flokkur: Landsmót | Comments Off

Skátastarfið er hafið aftur

janúar 11th, 2012 by Auður Ingólfsdóttir

Skátastarfið er aftur komið í fullan gang eftir jólafríið. Allir flokkarnir eru búnir að halda fyrsta fundinn á þessu nýja ári. Við hvetjum alla skáta að mæta aftur hressa til leiks! Að sjálfsögðu eru nýjir skátar ávallt velkomnir.

Flokkur: Almennt | Comments Off

Starf Riddara byrjar á morgun

janúar 10th, 2012 by Andri Már Reynisson

Á morgun mun fyrsti Riddarafundur nýs árs verða haldinn í Hraunbyrgi. Fundir verða haldnir á sama tíma og fyrir áramót, á miðvikudögum kl. 17:30-18:45. Dagskrá vorsins verður birt á síðunni á næstunni, en dagskráin mun að sjálfsögðu taka mið að hápunkti ársins hjá skátunum, Landsmótsins sem haldið verður í sumar.

Minnum á að mikilvægt er að skátar mæti á fundi klæddir eftir veðri. Foreldrar eru einnig hvattir til að senda e-mail á andri@hraunbuar.is ef einhverjar spurningar vakna.

Hlökkum til að sjá sem flesta á nýju ári!

Kveðja,

Andri og Snorri

Flokkur: Almennt | Comments Off