Landsmótsfréttir
Skrifað af Kolfinna Snæbjarnardóttir þann 14. desember 2011
Skráning Hraunbúa á Landsmót skáta 2012 er hafin og gengur skráning vel.
Nú í vikunni fá allir skátar 10 ára og eldri með sér heim upplýsingabréf um Landsmótið frá fararstjórn. Í bréfinu koma fram nánari upplýsingar um mótið, verð og greiðslutilhögun, fjölskyldubúðir og fleira. Vonandi svarar þetta bréf flestum af þeim spurningum sem brenna á vörum ykkar. Ef þetta bréf hefur ekki komist til skila endilega hafið samband við okkur, og við sendum ykkur það í tölvupósti.
Fimmtudaginn 26.janúar kl.20 verður haldinn annar foreldrafundur í Hraunbyrgi. Að þessu sinni stendur fararstjórn Hraunbúa fyrir fundinum og mun hún kynna nýjustu upplýsingar um mótið og taka við spurningum. Við mælum með því að sem flestir foreldrar mæti á þennan fund.
Við hlökkum til að sjá ykkur í janúar, og ef þið hafið einhverjar spurningar fyrir það ekki hika við að senda okkur tölvupóst.
Bestu kveðjur,
Una, María, Birgir og Kolfinna
landsmot@hraunbuar.is
(Skráningartengill: http://secure.skatar.is/jm/Register/484/4E9629B8AE33D26E87328C3C86C74264)
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 14. desember 2011 kl. 9:18 e.h. og er skráð í flokkinn Landsmót, Skátamót. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


