Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Jólafundur drekaskáta

Skrifað af Una Guðlaug Sveinsdóttir þann 13. desember 2011

Sérlega hátíðlegur jólafundur drekaskáta var haldinn í gær. Að þessu sinni ákváðum við að bregða út af vananum og hafa fundinn í skálanum Skátalundi við Hvaleyrarvatn. Sökum snjóþyngsla var nokkur svaðilför að komast þangað, og fengu ævintýragjarnir drekaskátar og foreldrar þeirra hraustlegan roða í kinnar áður en áfangastað var náð. Í hlýjum og notalegum skálanum áttum við svo góða stund þar sem sungin voru nokkur vel valin lög og jólasaga lesin áður en gestir gæddu sér á smákökuhlaðborði og heitu kakói. Eftir það var haldið heim á leið, og fengu drekaskátarnir hnútabönd með sér heim til að æfa sig í fríinu.

Takk fyrir önnina, sjáumst hress mánudaginn 9. janúar þegar starfið hefst á ný!

Kveðja,
Sveitarforingjar


Tengdar færslur:

  1. SAMAN búið og allir skemmtu sér vel
  2. Sveitarútilega Rauðskinna vel heppnuð
  3. Útilegunni lokið
  4. Vinnuhelgi á Úlfljótsvatni
  5. Jólafundur Hraunbúa

Þessi grein var skrifuð þann 13. desember 2011 kl. 7:18 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.