desember 14th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Skráning Hraunbúa á Landsmót skáta 2012 er hafin og gengur skráning vel.
Nú í vikunni fá allir skátar 10 ára og eldri með sér heim upplýsingabréf um Landsmótið frá fararstjórn. Í bréfinu koma fram nánari upplýsingar um mótið, verð og greiðslutilhögun, fjölskyldubúðir og fleira. Vonandi svarar þetta bréf flestum af þeim spurningum sem brenna á vörum ykkar. Ef þetta bréf hefur ekki komist til skila endilega hafið samband við okkur, og við sendum ykkur það í tölvupósti.
Fimmtudaginn 26.janúar kl.20 verður haldinn annar foreldrafundur í Hraunbyrgi. Að þessu sinni stendur fararstjórn Hraunbúa fyrir fundinum og mun hún kynna nýjustu upplýsingar um mótið og taka við spurningum. Við mælum með því að sem flestir foreldrar mæti á þennan fund.
Við hlökkum til að sjá ykkur í janúar, og ef þið hafið einhverjar spurningar fyrir það ekki hika við að senda okkur tölvupóst.
Bestu kveðjur,
Una, María, Birgir og Kolfinna
landsmot@hraunbuar.is
(Skráningartengill: http://secure.skatar.is/jm/Register/484/4E9629B8AE33D26E87328C3C86C74264)
Flokkur: Landsmót, Skátamót |
Comments Off
desember 13th, 2011 by Una Guðlaug Sveinsdóttir
Sérlega hátíðlegur jólafundur drekaskáta var haldinn í gær. Að þessu sinni ákváðum við að bregða út af vananum og hafa fundinn í skálanum Skátalundi við Hvaleyrarvatn. Sökum snjóþyngsla var nokkur svaðilför að komast þangað, og fengu ævintýragjarnir drekaskátar og foreldrar þeirra hraustlegan roða í kinnar áður en áfangastað var náð. Í hlýjum og notalegum skálanum áttum við svo góða stund þar sem sungin voru nokkur vel valin lög og jólasaga lesin áður en gestir gæddu sér á smákökuhlaðborði og heitu kakói. Eftir það var haldið heim á leið, og fengu drekaskátarnir hnútabönd með sér heim til að æfa sig í fríinu.
Takk fyrir önnina, sjáumst hress mánudaginn 9. janúar þegar starfið hefst á ný!
Kveðja,
Sveitarforingjar


Flokkur: Almennt |
Comments Off
desember 7th, 2011 by Páll Línberg Sigurðsson
Skátafélagið Hraunbúar er með í umboðssölu Sígræna jólatréð sem Skátarnir hafa verið að selja um árabil og prýða þau þúsundir heimila og fyrirtækja. Jólatrén sígrænu eru sérlega vönduð og með 10 ára ábyrgð.
Hægt er að skoða og kaupa jólatrén í Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123. Ef þú vilt styrkja okkur Hraunbúa, þá nefnir þú það við starfsmann skátana uppí Hraunbæ þegar þú verslar þitt jólatré og mun þá skátafélagið Hraunbúar fá sín umboðslaun.
Ef þú vilt nánari upplýsingar getur þú haft samband við Skátamiðstöðina í Hraunbæ 123 í Reykjavík, sími: 550-9800, netfang jolatre@skatar.is eða hringt til okkar í Hraunbúum í síma 565-0900.

Flokkur: Almennt |
Comments Off