Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá nóvember, 2011

Innleiðingarnámskeið hjá Hraunbúum

nóvember 30th, 2011 by Páll Línberg Sigurðsson

Haldið var skemmtilegt helgarnámskeið fyrir Skátafélagið Hraunbúa þann 18-20. nóvember síðastliðin í skátaheimilinu Hraunbyrgi.  Þar kynnti Bandalag íslenskra skáta fyrir sveitarforingjum, róverskátum, stjórnarmeðlinum og starfsmönnum nýja skátadagskrá.   Um er að ræða nýtt skátaefnið sem alþjóðahreyfing skáta hefur verið að þróa síðustu árin og er nú loksins að verða að verkuleika hér á Íslandi.  Búið er að gefa út 3 handbækur fyrir aldurshópanna 7-15 ára, ásamt stuðningsefni og munu Hraunbúar nýta sér þessa nýju skátadagskrár í sínu starfi strax eftir áramótin.

Flokkur: Almennt | Comments Off

Hópbílar og Hraunbúar gera með sér samstarfssamning

nóvember 23rd, 2011 by Guðjón Rúnar Sveinsson

Skátafélagið Hraunbúar og Hópbílar hf hafa gert með sér samstarfssaming, þess efnis að Hópbílar muni sjá um alla akstursþjónustu fyrir Hraunbúa næstu þrjú árin.  Það er mat okkar Hraunbúa að þessi samningur komi báðum aðilnum til góða og við hlökkum til að starfa með fyrirtæki með skýra umhverfisstefnu og bílbelti í sínum bílum.  Með öryggi barna að fyrirrúmi, þar liggur hagur beggja.

 

Skátafélagið Hraunbúar

Frá vinstri Þórður, Jón Arnar og Guðjón

Frá undirritun

 

Flokkur: Almennt | Comments Off

Sveitarútilega Rauðskinna vel heppnuð

nóvember 21st, 2011 by Birna Sigurðardóttir

Sveitarútilega Rauðskinna fór fram helgina 11-13. nóvember. 20 hressar stelpur mættu í Lækjarbotna á föstudagskvöld tilbúnar bráðskemmtilega útilegu. Haldin var spurningakeppni á föstudagskvöldið ásamt því að stigin voru nokkur vel valin dansspor og var því mikið hlegið af foringjunum ;)

Á laugardagsmorgun voru svo neyðarpokar úr leðri kláraðir ásamt flokkaklemmum. Svo var haldið í létt og skemmtilegt hike þar sem við þurftum að staulast yfir læk, mjaka okkur fram hjá klettum og kannski blotna smá í fæturna. Svo fundum við líka voða sætan helli.
Eftir hike’ið var opinn póstaleikur. Stelpurnar gerðu leðurhnúta á klútana sína, fóru í kimsleik þar sem þær áttu að leita að myndum og muna þær, leystu dulmál og gátur, gerðu svakalegar fatalínur sem teygðu anga sína um allt hús, skrifuðu grein um skátastarf og gerðu stórsniðug skemmtiatriði fyrir kvöldvökuna.

Á meðan póstaleikurinn fór fram voru foringjarnir önnum kafnir við það að baka brauð og lummur. Lummurnar hurfu mjög fljótlega og meðlætið sem var með þeim, a.k.a. NAMMI.

Þá var loks komið að vígslunni sem allir höfðu beðið eftir. 14 stelpur vígðust inn í sveitina en hinar 6 vígðu hjálpuðu til við vígsluna. Ekki má uppljóstra of miklu um þessa fornu vígslu Rauðskinna en það má með sanni segja að hún hafi verið mjög eftirminnileg fyrir alla :) Kertaljós og róleg stemmning var í skálanum á þessum tímapunkti sem var ef till vill kærkomið fyrir alla, enda búin að vera mikil læti og mega fjör!

Þegar vígslunni var lokið var kvöldmatur þar sem Kolfinna fór á kostum í spaghettís og hakks eldamennsku. Takk Kolfinna!

Svo var hress kvöldvaka með stórskemmtilegum atriðum frá stelpunum og einu skrýtnu frá foringjunum.

Þá var kominn háttatími, en fyrst fengu allir heitt kakó. Allir sváfu vært og var vaknað á sunnudagsmorgun, tekið til og haldið heim á leið :)

 

Takk fyrir helgina stelpur hún var frábær!

Kveðja sveitarforingjar,

Birna, Marta og Mekkin

Ekki má gleyma Kolfinnu og Maríu sem veittu ómetanlega hjálp um helgina :) Takk!

Flokkur: Almennt, Útilegur, Rauðskinnur, Sveitir | Comments Off

Skráning á Landsmót skáta 2012 hafin

nóvember 14th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Howdy Hraunbúar!

Loksins er skráning Hraunbúa á Landsmót skáta 2012 hafin!  Með því að smella á linkinn hér fyrir neðan komist þið inn á skráningarsíðu Hraunbúa. Mikilvægt er að vanda sig við skráningu og fylla allt saman vel og vandlega inn. Muna að skrá skátann sem: Participant.

Ekki er búið að ákveða lokafrest skráningar, en það er samt best að skrá sig sem fyrst, svo fararstjórn fái sem réttasta mynd af fjölda til að geta samið við rútufyrirtæki og ákvarðað sameiginlegan kostnað.

Aðrar landsmótsfréttir:

Önnur fjáröflun Hraunbúa er að fara af stað í þessari viku, og munu allir skátar fá með sér bréf heim um hana. Einnig munu upplýsingar verða sendar foreldrum í tölvupósti. Stefnan er tekin á tvær til þrjár fjáraflanir til viðbótar eftir áramót. Nú þegar eru nokkrir skátar næstum því búnir að safna fyrir öllu landsmótsgjaldinu, svo það er um að gera að vera duglegur í fjáröflununum!

Fyrir jól fá skátar og foreldrar þeirra sent upplýsingahefti um landsmót, þar sem fararstjórn segir frá öllu sem komið verður á hreint þá. Einnig verður foreldrafundur í lok janúar.

Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna!

Tengill á skráningu fyrir Hraunbúa:

Tengill á heimasíðu landsmóts:

http://www.skatar.is/landsmot2012/

Bestu kveðjur,

Fararstjórn Hraunbúa

Una Guðlaug, María Björg, Kolfinna og Birgir Snær

Tölvupóstur: landsmot@hraunbuar.is

Flokkur: Almennt, Ds. Castor, Landsmót, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix, Viðburðir | Comments Off

Vígsluútilega Rauðskinna

nóvember 9th, 2011 by Birna Sigurðardóttir

 

Fyrsta sveitarútilega Rauðskinna verður næstu helgi í Lækjarbotnum. Mæting er við skilti Skógræktarfélags Kópavogs klukkan 20:00 föstudaginn 11. nóvember (vera búnar að borða kvöldmat), en sækja á stúlkurnar á sama stað á hádegi, kl.13:00, sunnudaginn 13. nóvember. Við ætlum að labba frá skiltinu að skálanum svo það er mikilvægt að skátarnir séu almennilega klæddir og geti gengið með allan farangurinn sinn.

 

Til að komast að mætingarstaðnum er beygt inn afleggjara útfrá Suðurlandsveg. Við afleggjarann er skilti sem á stendur sumarbústaðir/sumarhús. Við munum merkja skiltið með blöðrum. Afleggjarinn er um 14 km austur Suðurlandsveginn.

Skráning er hafin og stendur þar til á fimmtudaginn. Með því að borga útilegugjaldið eru stúlkurnar skráðar í útileguna.

Stelpurnar hafa fengið foreldrabréf með sér heim en einnig má lesa bréfið í heild sinni með því að ýta á ,,lesa alla frétt”.

Vonumst til að sjá sem flestar :)

 

Bestu kveðjur,

Birna, Marta og Mekkín

Lesa alla frétt »

Flokkur: Útilegur, Rauðskinnur | Comments Off

Tilkynning frá Hraunbúasjóðnum

nóvember 3rd, 2011 by Guðvarður Ólafsson

Á fundi Hraunbúasjóðsins þann 25. október 2011 var eftirfarandi ákveðið:

Umsóknartímabili á hverju ári hefur verið skipt upp í tvennt, m.a. til að einfalda umsóknarferlið, og svo að styrkveitingar nýtist betur í skátastarfi í Hafnarfirði.

Haustúthlutun – Umsóknarfrestur er 1. október

Vorúthlutun – Umsóknarfrestur er 1. febrúar

Fundir Hraunbúasjóðsins verða haldnir að meðaltali tveim vikum eftir að umsóknarfresti lýkur og verður þá farið yfir þær umsóknir sem borist hafa. Öllum umsóknum skal skila til ritara Hraunbúasjóðsins.

Einnig var ákveðið á fundi Hraunbúasjóðsins að á árinu 2012 mun sjóðurinn ekki veita ferðastyrki.

Upplýsingar um Hraunbúasjóðinn má finna hér.

Flokkur: Almennt | Comments Off