Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá október, 2011

Fjör og föndur hjá drekaskátum

október 10th, 2011 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Í dag skelltu stúlkurnar í Hraunálfum sér í klifurvegginn okkar, og óhætt er að segja að í hópnum leynist margir eldhugar! Í næstu viku fá Grábræður að spreyta sig á því. Í dag útbjuggu drengirnir hins vegar flott sveitarskilti til að setja í herbergið okkar, en það munu Hraunálfar gera áður en langt um líður. Næsta mánudag ætla Hraunálfar að grilla hike-brauð, og viljum við minna á að þær sem eiga vasahníf mega koma með hann á fundinn.

Flokkur: Almennt | Comments Off

Forsetamerkið

október 10th, 2011 by Auður Ingólfsdóttir

Hraunbúarnir Marta Grétarsdóttir, Mekkín Barkardóttir og Kolfinna Snæbjarnardóttir tóku á móti forsetamerkinu á Bessastöðum núna í byrjun október. Við óskum þeim innilega tilhamingju með árangurinn. :)

Flokkur: Almennt | Comments Off

Drekaskátavígsla

október 3rd, 2011 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Það var mikið um dýrðir á drekaskátafundi í dag, en þá vígðust 17 nýir drekaskátar í Hraunbúa. Til að fagna því var slegið upp kvöldvöku þar sem foreldrum og systkinum var boðið að koma með og það lærðu alveg örugglega einhverjir nýja hreyfisöngva! Loks var boðið upp á gómsætt kakó. Hér fyrir neðan má sjá mynd af þeim sem voru að vígjast með félagsforingja og sveitarforingjum, auk skáta sem starfað hafa áður í Hraunálfum og Grábræðrum og munu fá silfur- eða gullmerkin sín afhent á næsta fundi.

Flokkur: Almennt | Comments Off

Drekaskátar eru náttúruvinir

október 1st, 2011 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Í dag héldu 19 duglegir drekaskátar á vit ævintýranna ásamt foringjum og nokkrum foreldrum og systkinum.

Haldið var í Straum, þar sem við gengum eftir fjörunni og skoðuðum það sem á vegi okkar varð, allt frá þara upp í frægar rústir úr kvikmynd! Þar sem skáti er náttúruvinur vorum við að sjálfsögðu með ruslapoka og reyndum að týna það rusl sem við sáum. Loks komum við í laut þar sem allir hjálpuðust að við að tálga spæni svo við gætum kveikt eld og hitað okkur kakó, sem rann ljúflega niður eftir gönguna.

Eftir alls konar sprell var tími til kominn að halda heim á leið. Ef smellt er á “lesa alla frétt” má sjá nokkrar myndir frá deginum.

Takk kærlega fyrir daginn krakkar, þið stóðuð ykkur eins og hetjur! Sjáumst hress á foreldrakvöldvökunni á mánudaginn.

Hreiðar og Una Lesa alla frétt »

Flokkur: Almennt | Comments Off