Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá október, 2011

Drekaskátaherbergið farið að taka á sig mynd!

október 31st, 2011 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Drekaskátar eru búnir að bretta upp ermar og gera herbergið sitt svakalega fínt. Þetta er enn í vinnslu, en nú þegar eru tilbúin skilti með sveitarnöfnum auk þess sem herbergið er orðið fullbúið húsgögnum og myndir hanga á veggjunum. Einnig er í bígerð að útbúa snaga þar sem skátarnir geta geymt klútana sína. Myndir af herlegheitunum verða birtar von bráðar.

Á næsta fundi höldum við áfram með þetta verk, auk þess sem við ætlum að enda fundinn með varðeldi. Því er mikilvægt að allir muni eftir útifötunum!

Kveðja,

Hreiðar og Una

Flokkur: Almennt | Comments Off

Foreldrafundur fyrir Landsmót 2012

október 25th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Foreldrafundur fyrir Landsmót 2012 verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 26.október, kl. 20.00 í Hraunbyrgi. Gestir frá BÍS munu mæta og kynna mótið, fararstjórar Hraunbúa verða kynntir, farið verður yfir fjáraflanir og fleira.

Við hvetjum alla sem ætla á Landsmót 2012, eða eru ennþá að velta því fyrir sér, til að koma ásamt foreldrum sínum og kynna sér málið betur.

Heimasíða Landsmóts er eftirfarandi: http://www.skatar.is/landsmot2012/

Hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest á morgun!

Flokkur: Almennt | Comments Off

Tækifæri lífsins

október 24th, 2011 by Smári Guðnason

Undir Tölvuálfum er flokkurinn Vefnefnd, sá flokkur sér um síðuna okkar góðu www.hraunbuar.is. Flokkurinn hefur verið í dvala undanfarin ár en nú hafa Tölvuálfar ákveðið að endurvekja þennan flokk. Ætlunin er að fá um 2-4 meðlimi og munu þeir sjá um fréttir, efni og myndir. Leitað er eftir strákum og stelpum 13 ára eða eldri. Vefnefnd mun funda nokkru sinnum á ári.

Starf vefnefndar gengur út á að halda vefnum okkar lifandi með fréttum, myndum og öðru skemmtilegu. Meðlimir vefnefndar eru með aðgang að fréttkerfi síðunnar og þurfa því að vera ábyrgir einstaklingar. Meðlimir vefnefndar fá einnig aðgang að stafrænum myndavélum félagsins til að taka myndir af ýmislegum atburðum í skátastarfinu.

Til að koma í veg fyrir að rangur aðili fái aðgang að fréttakerfi síðunnar verður umsækjandi að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Lágmarks tölvukunnátta
  • Aðgang að interneti
  • Vera sæmilegur penni
  • 13 ára eða eldri.
  • Ábyrgur

Fylltu út þessa umsókn og sendu á smari@hraunbuar.is merkt “Tækifæri lífsins” fyrir mánudaginn 7. Nóvember!

Flokkur: Tölvuálfar | Comments Off

Rauðskinnur og Riddarar í dagsferð

október 19th, 2011 by Birna Sigurðardóttir

Síðasta laugardag fóru 9 Rauðskinnur og Riddarar ásamt 4 sveitarforingjum í dagsferð á Helgafell.

Þegar allir voru mættir klukkan 10 var lagt af stað upp á Helgafell. Á leiðinni fengum við ýmiss konar veður; mikið rok, lítið rok, rigningu, haglél og sól. Sem betur fer voru allir vel búnir og komust allir upp á topp. Þar var pústað, tekin hópmynd og skrifað í gestabókina. Loks var haldið niður aftur og var mikið spjallað. Allir skemmtu sér konunglega þrátt fyrir veðrið og gönguna upp í móti.

Eftir að hafa gengið á Helgafell var rölt að helli einum þar sem við elduðum dýrindis pastarétt á prímus

og rann maturinn ofan í litla sem stóra maga mjög hratt!

 

Eitthvað voru ungir skátar að kvarta yfir því að prímus væri ekki skátalegt, heldur ætti bara að elda pastað á eldi. Þeir voru þó fljótir að taka þau orð til baka þegar pastað var smakkað :)

 

Svo voru allir sóttir um tvöleytið og fóru allir hressir heim.

Takk fyrir dagsferðina krakkar, vonumst til að sjá fleiri næst :)

Bestu kveðjur,

Birna, Marta, Andri og Snorri sveitaforingjar

Flokkur: Dagsferðir, Rauðskinnur, Riddarar | Comments Off

Eldur og ævintýr

október 17th, 2011 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Í dag brettu Hraunálfar upp ermarnar og bökuðu sér dýrindis hike-brauð Það var afar gómsætt og rann ljúflega niður. Á meðan voru Grábræður ýmist að klifra eða útbúa leynikistil, sem falinn verður á góðum stað á næstunni.

Við minnum á útifötin og auðvitað skátaklútana! Sjáumst að viku liðinni.

Flokkur: Almennt | Comments Off

Fréttir af Rauðskinnum

október 12th, 2011 by Birna Sigurðardóttir

Starfið hófst af fullum krafti hjá Rauðskinnum í vetur. Ýmislegt hefur verið brallað á fundum, svo sem klifur, gipsgrímur, tálgun, fjársjóðsleit og fleira. Svo eru Rauðskinnurnar orðnar nokkuð lúknar í ýmsum skátahnútum :)

Rauðskinnur mættu vel í félagsútilegu Hraunbúa þar sem þemað var Harry Potter. Allir skemmtu sér konunglega og tóku Rauðskinnur sko heim með sér nokkur skinn fyrir góða frammistöðu. Þessi skinn verða svo hengd á vegginn í sveitarherberginu sem tekur á sig betri mynd með hverjum degi.

Laugardaginn 15. október n.k. ætla Rauðskinnur í dagsferð á Helgafell. Mæting er klukkan 10 í Kaldársel og á að sækja kl. 14. Nauðsynlegt er að allir komi vel útbúnir og þá sérstaklega vel skóaðir. Ekki er þörf á að taka hádegismat þar sem við eldum saman að skátasið, en ekki væri galið að taka með sér vatnsbrúsa og ef til vill smá maul fyrir gönguna.

Foreldrar eru beðnir um að skrá stúlkurnar í síðasta lagi 13. október með því að senda tölvupóst á sveitarforingja. Sjá má bréfið sem stúlkurnar fengu í síðustu viku hér neðar, ef smellt er á “lesa alla frétt”.

Í næstu viku verður svo þemað á fundinum “jól í skókassa” þar sem Rauðskinnur ætla að setja saman tvo skókassa fyrir hjálparstarf KFUM og KFUK í Úkraníu. Við viljum því góðfúslega biðja stúlkurnar um að koma með nokkra smámuni í kassana, s.s. lítil leikföng, skóladót, blöð, blýanta, liti, litabækur, sápu, þvottapoka og fleira. Ekki er nauðsynlegt að koma með allt þar sem við erum allar að gera þetta saman :) Nánari upplýsingar er að finna hér

Takk fyrir september stelpur og vonandi verður október alveg jafn frábær.

Kær kveðja,

Birna, Marta og Mekkín sveitaforingjar.

Lesa alla frétt »

Flokkur: Rauðskinnur | Comments Off