Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá september, 2011

Hjálpsamir drekaskátar

september 12th, 2011 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Í september er þema drekaskáta “Ævintýrið hefst,” og erum við að vinna með skátalögin okkar, til þess að undirbúa nýja drekaskáta fyrir vígslu og gefa hinum tækifæri til þess að rifja upp góðu gildin okkar. Viðfangsefni fundarins í dag var “skáti er hjálpsamur” og eyddum við honum því í hinum ýmsu samvinnuleikjum, þar sem reyndi á að hjálpast að við að ná sameiginlegu markmiði. Einnig fengu skátarnir að spreyta sig á því að bjarga félögum sínum úr háska! Fyrir neðan má sjá nokkrar myndir af fundinum.

Kveðja,

Sveitarforingjar

 

Flokkur: Almennt | Comments Off

Starfið hafið hjá Rauðskinnum :)

september 7th, 2011 by Birna Sigurðardóttir

Í gær, þriðjudag, hófst starfið hjá Rauðskinnum með pompi og prakt. Um 15 hressar Rauðskinnur mættu og má gera ráð fyrir miklu fjöri í vetur. Við hófum fundinn á leik og ræddum svo um dagskránna, hvað við ætlum að gera í vetur og kynntum félagsútilegu Hraunbúa. Allar stelpurnar fengu dagskrá og foreldrabréf með heim en þær sem ekki voru í gær geta að sjálfsögðu bara fengið bréfið næst :)

Svo var farið í léttan nafnaleik og haldið út í varðaeldalaut. Þar var eldur kveiktur og fengur allir að grilla sér pylsu og borða með bestu lyst. Á næsta fundi verður svo fjársjóðsleit svo við minnum ykkur á að mæta klæddar eftir veðri. Hlökkum til að sjá ykkur!

Bestu kveðjur,

Birna, Marta og Mekkín sveitaforingjar

Flokkur: Rauðskinnur | Comments Off

Fyrsti drekaskátafundur vetrarins!

september 5th, 2011 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Í dag var fyrsti skátafundur vetrarins, og voru það drekaskátarnir í Hraunálfum og Grábræðrum sem riðu á vaðið. Þar sem mikið af nýjum krökkum mættu var að sjálfsögðu byrjað á kynningar- og nafnaleikjum, og því næst var haldið í ratleikinn “Leyndardómar Hraunbyrgis,” þar sem skátarnir kynntust helstu kennileitum þar inni og í kring. Loks var góða veðrið nýtt og farið í leiki áður en haldið var heim á leið – takk fyrir fundinn krakkar og sjáumst spræk í næstu viku!

Hér fyrir neðan má sjá foreldrabréf og dagskrá sem dreift var á fundinum í dag.

Kveðja frá sveitarforingjum,

Una – una[hjá]hraunbuar.is

Hreiðar – holshus[hjá]holshus.is

 

Lesa alla frétt »

Flokkur: Almennt | Comments Off