Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá september, 2011

Myndir úr félagsútilegu Hraunbúa

september 28th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Félagsútilega Hraunbúa um síðustu helgi gekk ótrúlega vel og hátt í hundrað Hraunbúar skemmtu sér konunglega í hinum íslenska Hogwarts skóla í Vindáshlíð. Myndir frá þessari stórfenglegu helgi eru komnar inn á facebook síðu Hraunbúa. Endilega skoðið þær, því þær eru vægast sagt ótrúlega skemmtilegar :)

Fönixreglan vill hér með þakka öllum kærlega fyrir helgina. Hún var frábær og þið eruð öll æði.

Takk fyrir okkur!

P.S. Minni á dagsferð drekaskáta 1.október, sjá frétt hér fyrir neðan.

Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix | Comments Off

Dagsferð drekaskáta 1. október

september 26th, 2011 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Í september höfum við í Hraunálfur og Grábræðrum verið að vinna með vígslugrunninn okkar, og þá sérstaklega skátalögin.

Í dag var efni fundarins “skáti er traustur” og fórum við í ýmsa leiki tengda því. Næsta laugardag tökum við fyrir „skáti er náttúruvinur“ og í tilefni þess ætla drekaskátar að skella sér í dagsferð í Straum. Við ætlum að hittast í skátaheimilinu kl. 10:00 og fara saman þaðan. Gott væri ef einhverjir foreldrar gætu séð sér fært að keyra, og er kjörið að nýta tækifærið og sameinast í bíla. Foreldrum er velkomið að vera með okkur yfir daginn. Á leiðinni til baka höfum við sama háttinn á, sameinumst í bíla og endum ferðina í Hraunbyrgi kl. 13:30.

Skátarnir skulu mæta vel klæddir, með regnföt og í góðum skóm til að ganga í, þar sem við munum ganga eftir fjörunni og til baka. Einnig þarf að vera með nesti fyrir daginn og gott er að hafa vatnsflösku eða eitthvað að drekka á leiðinni, en þetta er gott að hafa í litlum bakpoka. Sveitarforingjar munu svo bjóða upp á heitan drykk í lokin, en ekkert gjald er tekið fyrir ferðina. Mikilvægt er að sem flestir geti komið, þar sem þetta er síðasti hluti fræðslunnar fyrir vígslu.

Skráning fer fram með tölvupósti á netfangið una@hraunbuar.is, og er síðasti skráningardagur fimmtudagurinn 29. september.

Svo viljum við minna á það að mánudaginn 3. október ætlum við að halda kvöldvöku þar sem við ætlum að vígja þá sem komu nýir inn í haust. Foreldrar og systkini eru velkomin, og boðið verður upp á léttar veitingar í lokin. Kvöldvakan hefst á venjulegum fundartíma kl. 17:30.

 

Vonumst til að sjá sem flesta við bæði tækifæri!

Una, s. 848-7585, una@hraunbuar.is

Hreiðar, s. 660-1060, holshus@holshus.is

Flokkur: Almennt | Comments Off

Fjáraflanir

september 26th, 2011 by Auður Ingólfsdóttir

Fjáreflingarvörurnar verða til afhendingar í dag klukkan fimm til átta niðrí Hraunbyrgi. Ekki frá því klukkan tvö eins og áður var auglýst.

Kveðja Auður Hraunbúi

Flokkur: Almennt | Comments Off

Drekaskátar bregða á leik

september 20th, 2011 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Á fundinum í gær héldu drekaskátar áfram að læra og rifja upp skátalögin og var að þessu sinni unnið með “skáti er glaðvær.” Fundurinn hófst með leikjum og glensi, og svo var farið í grunnatriði varðandi kvöldvökur og skemmtiatriði. Loks var slegið í kvöldvöku, sem var í raun “æfingar”- kvöldvaka fyrir vígslukvöldvöku sem haldin verður í október, en þá verður foreldrum boðið að koma og fylgjast með. Mikið fjör var í hópnum að vanda! Fyrir neðan má sjá nokkrar sprækar stúlkur úr Hraunálfum.

 

Flokkur: Almennt | Comments Off

Félagsútilega Hraunbúa – skráning hafin!

september 15th, 2011 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Félagsútilega Hraunbúa fer fram helgina 23. – 25. september í Hogwartsskóla (Vindáshlíð).

Þar verður mikið um fjör, uppákomur og leiki sem eru sérsniðnir eftir sögunum um Harry Potter. Þar sem mikið verður um galdra og óvænta atburði þá er aldrei að vita hvað gæti gerst! Ekki missa af ævintýrinu og skráðu þig ekki seinna en strax.

Síðasti skráningardagur er 21. september. Skráning fer fram HÉR. Með skráningu skal fylgja skráningargjald að upphæð 6.500 kr. Innifalið í gjaldinu er rúta, allur matur, gisting og dagskrá. Gjald þetta má greiða með kreditkorti við skráningu, á skrifstofu Hraunbyrgis, og einnig má millifæra á reikning nr. 0327-26-7029, kt. 640169-7029 og senda staðfestingu á hraunbuar@hraunbuar.is með “(nafn skáta)-félagsútilega” sem skýringu.

Mæta skal í Hraunbyrgi á föstudeginum kl. 19:00Verið búin að borða kvöldmat. Stefnt er á að koma til baka í Hraunbyrgi ásunnudeginum kl. 16:00. Nánari upplýsingar má fá á netfanginu hraunbuar@hraunbuar.is eða í símum 565-0900 og 824-0906.

Flokkur: Almennt | Comments Off

Fjársjóðsleit Rauðskinna

september 13th, 2011 by Birna Sigurðardóttir

Í dag var annar fundur Rauðskinna. Skipt var í 3 flokka og voru ýmsar stöðvar sem stúlkurnar þurftu að leysa í skiptum fyrir hluta úr fjársjóðskorti. Þrautirnar sem þær þurftu að leysa voru pokahlup, stígvélakast, púsla stórt púsl, gera mannlegan pýramída, stiklað á stórum og að lokum að reyna að hitta hringjum á lítil prik. Stelpurnar stóðu sig mjög vel í öllum þrautunum og þegar þær voru búnar að leysa síðustu þrautina fóru þær inn í skemmu til að leita að síðasta hlutanum. Þegar þær voru komnar með heilt kort fundu þær fjársjóðinn. Í fjársjóðnum reyndust vera sleikjóar og allir fóru heim á leið með bros á vör.

Í næstu viku ætlum að læra að fara í útilegu og tálga töfrasprota eins og Harry Potter. Ef þið eigið vasahníf endilega komið með hann með ykkur.

Sjáumst í næstu viku :D

Flokkur: Rauðskinnur | Comments Off