ágúst 7th, 2011 by Smári Guðnason
Vid erum nuna komin i heimagistingu i Eskilstuna eftir frabaera 10 daga a jamboree. Lokaathofnin i gaer var aedisleg, hljomsveitin Europe spiladi nokkur log, saenski konungurinn avarpadi mannfjoldann og kvoldid endadi a flugeldasyningu sem var i takt vid tonlistina.
Flokkur: Almennt |
Comments Off
ágúst 1st, 2011 by Smári Guðnason
Dagur eitt
„Höldum hópinn krakkar“ segja Guðrún, Jón Þþor og Smári í sjötta skiptið þegar við röltum að hliði eitt með passann og miðann okkar í sveittum höndunum, alveg að kikna í hnjánum af spenningi. Ofurmeikaða flugfreyjan brosir gervilega til okkar og hrifsar flugmiðann til sín. „Góða ferð“ segir hún með ofurbleikum vörum og við höldum áfram að labba í átt að rananum. Þegar allir eru búnir að planta sér í sér í sætin og spenna beltin, rís flugvélin í gegnum Íslandsskýin sem hverfa svo brátt sjónum okkar er við höldum á vit ævintýranna.
Dagur 5
„Hejalleihubba“ æpum við til Svíanna sem buðu okkur í kvöldmat eitt kvöldið og komumst að því að sænskir krakkar (sænsklingar) eru súpersætir og skemmtilegir. Sólin gladdi okkur þennan dag með geislum sínum og þá var æskilegt að bera sólarvörn númer 50 á allan kroppinn.
Við erum níu stelpur saman í tjaldi og ennþá eru nokkrir maurar þó við séum búnar að tortíma búinu þeirra.
Í kvöld er hópur A að elda eitthvað ljúffengt og svo fáum við kannski eftirrétt ef einhver hjálpar strákunum. Dagskráin í dag var skátahimnaríki, við vökuðum um sjö eins og vanalega og fuglarnir kvökuðu blítt í ástartón, írsku skátarnir léku á sekkjapípurnar sínar og þýsku trúarskátarnir söngluðu og klöppuðu inni í svarta kirkjutjaldinu sínu. En við Hraunbúar borðuðum eðal morgunmat með Georgíu fólkinu sem býr hérna hjá okkur, reyndar hafa þau gleymt að flokka ruslið sem þarf alltaf að gera. Þegar allir voru tilbúnir fyrir daginn var lagt af stað í „People“ þar sem við fórum í leiki með spánverjum og kysstum axlirnar á hvoru öðru í heilsubælislabbi (röð) og svo fórum við í samverustund með róandi tónlist. Eftir dagskrána hittum við þjóðverjavini okkar og gerðum svona vinagátu, þá þurfa að vera vinir frá tveimur mismunandi löndum og leysa spurningar og þrautahefti. Þjóðverjarnir vissu ekkert um sænska peninga en við redduðum því. Sólin er nú að setjast og kvöldmaturinn ilmar af ást og guðdómlegri hamingju. Við bíðum spenntar eftir ævintýri morgundagsins.
Hjördís Gréta, Sigurrós og Berglind.
Flokkur: Erlendir viðburðir, Skátamót |
Comments Off