ágúst 31st, 2011 by Páll Línberg Sigurðsson
Það verður opið hús hjá skátafélaginu Hraunbúum fimmtudaginn 1. september. Það verður hægt að skrá sig í skátastarfið og fá upplýsingar um það. Það verður boðið uppá pylsur sem grillaðar verða á skátagrilli, kassaklifur og klifurvegg. Vert er að taka það fram að það er alltaf hægt að skrá sig í skátafélagið á öllum skáta fundum ekki einungis á fimmtudaginn. Vonandi sjáum við ykkur sem flest. Því þetta verður mikið fjör!
Hlakka til að sjá ykkur
skátakveðja
Auður
Flokkur: Almennt |
Comments Off
ágúst 30th, 2011 by Páll Línberg Sigurðsson
Skátafélagið Hraunbúar fékk í gær gæðamatsviðurkenningu frá Bandalagi Íslenskra skáta við hátíðlega stund hér í Hraunbyrgi.
Gæðamatsviðurkenninginn er kölluð “Skátafélag á réttri leið” og felur í það í sér að félagið hefur unnið og framkvæmt gæðamat á skipulagi félagsins, starfi félagsins, fjármálastjórn, færðslumálum, menntun skátana, sett sér stefnu í friðar-, umhverfis- og forvarnarmálum, aukið samstarf við heimili og önnur skátafélög.
Þetta er mikill heiður fyrir okkur Hraunbúa og hlökkum við mikið til skátastarfsins í vetur.
Flokkur: Almennt |
Comments Off
ágúst 24th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Kæru Rauðskinnur, Riddarar og DS Castor. Vegna óviðráðanlegra og margþættra ástæðna fellur síðasti sumarfundurinn, sem átti að vera í kvöld, niður. Í staðinn er ykkur öllum boðið að mæta á opið hús í Hraunbyrgi fimmtudaginn 1.september kl.18-20 þar sem boðið verður upp á maaaaargt og mikið spennandi:D Hlökkum til að sjá ykkur fyrsta september! Og takk kærlega fyrir alveg yndislegt sumar, það er búið að vera ótrúlega gaman með ykkur í sumar.
Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar, Viðburðir |
Comments Off
ágúst 14th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Undirbúningur Félagsútilegu Hraunbúa haustið 2011 er farinn á fullt, en útilegan verður haldin í Hogwarts, skóla galdra og seiða (Vindáshlíð), helgina 23.-25.september 2011. Þemað að þessu sinni er HARRY POTTER, svo það er um að gera að grafa upp galdraskikkjurnar úr kjallaranum, dusta rykið af töfrasprotanum og fara að rifja upp galdrana. Veitt verða verðlaun fyrir flottustu búningana og margt annað.
Í hvaða heimavist setur flokkunarhatturinn þig?
Hvað verður í gangi í Hogsmeade?
Hver vinnur Þrígaldraleikana?
Kanntu Quidditch?
Hver finnur leyniklefann?
Verður ÞÚ svo heppinn að fá bréf frá Hogwarts skóla?
Hraunbúar, takið helgina frá!
Nánari upplýsingar berast þegar nær dregur, fylgist líka með á facebook síðu Hraunbúa.
Kveðja frá Fönixreglunni
Flokkur: Útilegur, Ds. Castor, Grábræður, Hraunálfar, Rauðskinnur, Riddarar, Rs. Asterix, Rs. Trail, Viðburðir |
Comments Off
ágúst 11th, 2011 by Jón Þór Gunnarsson
Hraunbúar voru í fréttum í Svíþjóð í tengslum við Jamboree.
Tekið var viðtal við systkinin Sigurrós og Kristinn Jón. Viðtalið má sjá hér.
http://folket.se/folkifolket/1.1144886
Flokkur: Almennt |
Comments Off
ágúst 9th, 2011 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Minnum á fimmta sumarfund Hraunbúa annað kvöld klukkan átta. Við ætlum að keppa í stórfenglegum götuleik þar sem hver hópur þarf að hafa digital myndavél og/eða mjög nútímalegann síma sem er með myndavél. Þetta verður keppni aldarinnar!
Hlökkum til að sjá ykkur öll eins og vanalega elsku drótt- og fálkaskátar!
Sumarnefndin
Flokkur: Ds. Castor, Rauðskinnur, Riddarar |
Comments Off