Rauðskinnur – 22.febrúar
Skrifað af Birna Sigurðardóttir þann 14. febrúar 2011
Þann 22. febrúar n.k. munum við aðeins bregða frá hinu vanalega fundarformi okkar. Við ætlum að halda upp á „Thinking Day“ sem er afmælisdagur Baden Powell, stofnanda skátahreyfingarinnar.
Fundurinn mun hefjast klukkan 18:00 og í lok fundarins verða sungin nokkur lög og boðið uppá heitt kakó að hætti skáta. Áætlað er að fundurinn klárist 19:15.
Á fundinum munum stúlkurnar kynna, fyrir fjölskyldum sínum, skátastarf í landi að eigin vali og fá þær fundinn á morgun, 14.febrúar til undirbúnings.
Óskandi væri að stúlkurnar kæmu með gögn til að vinna úr á fundinum, t.d. bækur, myndir eða útprentuð gögn af internetinu.
Löndin sem flokkarnir hafa valið eru:
Spætur – Egyptaland
Tófur – Færeyjar
Pokarottur – Ítalía
Trítlur – Frakkland
Vonum að við sjáum sem flesta þann 22. febrúar :)
Sveitaforingjar,
Kolfinna (kolfnna(hjá)hraunbuar.is, s.8465685),
Birna (birna(hjá)hraunbuar.is, s.8684843)
Anna Íris (anna(hjá)hraunbuar.is, s.6610051)
Bréfið sem Rauðskinnur fengu heim á síðasta fundi má lesa í heild sinni með því að smella á “lesa alla frétt”.
„Thinking Day“ Rauðskinna 22.febrúar 2011
Kæru foreldrar/forráðamenn og skátar
Þarnæsta þriðjudag, þann 22.febrúar, munum við aðeins bregða frá hinu vanalega fundarformi okkar. Við ætlum að halda upp á „Thinking Day“ sem er afmælisdagur Baden Powell, stofnanda skátahreyfingarinnar. Á fundinum munum stúlkurnar kynna, fyrir fjölskyldum sínum, skátastarf í landi að eigin vali og fengu þær fundinn í dag og fá fundinn í næstu viku til undirbúnings. Einnig gæti verið að þær þurfi að undirbúa sig eitthvað heima.
Það sem felst í kynningunni er til dæmis: að klæðast skátabúningi landsins, læra skátaheitið á öðru tungumáli, kynnast matarmenningu og skátastarfinu almennt. Stúlkurnar munu sem flokkur velja hvernig kynningunni verður háttað, hvort sem það verða plaköt eða leikrit.
Óskandi væri að stúlkurnar kæmu með gögn til að vinna úr á næsta fundi, t.d. bækur, myndir eða útprentuð gögn af internetinu.
Fundurinn mun hefjast klukkan 18:00 og í lok fundarins verða sungin nokkur lög og boðið uppá heitt kakó að hætti skáta. Áætlað er að fundurinn klárist 19:15.
Vonandi sjáið þið ykkur flest fært að koma, þetta er gullið tækifæri til að sjá hvað við erum að bardúsa og til að kynnast skátastarfinu í heiminum beturJ.
Fylgist líka með vikulegum fréttum af sveitinni á heimasíðunni: www.hraunbuar.is.
Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna
Kolfinna Snæbjarnardóttir (kolfinna(hjá)hraunbuar.is, s.8465685)
Birna Sigurðardóttir (birna(hjá)hraunbuar.is, s.8684843)
Anna Íris Pétursdóttir (anna(hjá)hraunbuar.is, s.6610051)
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 14. febrúar 2011 kl. 5:29 e.h. og er skráð í flokkinn Rauðskinnur, Sveitir. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


