Því viljum við minna allar Rauðskinnur á að mæta með myndavél og myndavélasnúru svo við getum sett myndirnar á tölvu og framkallað þær :)
Við mælum einnig með því að koma klæddar til útiveru, ef vera skyldi að sumar myndir yrðu teknar úti.
Sveitaforingjar þakka Rauðskinnum og foreldrum fyrir samveruna á síðasta fundi og vonum við að allir hafi skemmt sér vel. Það gerðum við að minnsta kosti.
Í síðustu viku spreyttu Riddarar sig á útieldun og bökuðu mjúka súkkulaðiköku yfir eldi. Kakan var síðan borðuð með bestu lyst – upp til agna! Á fundinum var hvatakerfisskjöldur Riddara einnig fullkláraður. Hér fyrir neðan eru myndir af fundinum.
Rauðskinnur gerðu myndband í tilefni af fæðingardegi Lord Baden Powell, stofnanda skátahreyfingarinnar. Flokkarnir trítlur, tófur, pokarottur og spætur í Rauðskinnum gerðu hver í sínu lagi stutt myndbönd sem hér eru í einni mynd
Í tilefni af 22. febrúar, sem er eins og flestir ættu að vita afmælisdagur Robert Baden-Powell og konu hans, ætla Hraunbúar að halda fjölskyldukvöldvöku fyrir skáta og foreldra þeirra frá kl. 19:30-20:30. Skátasveitir verða með skemmtiatriði, nýir skátar verða vígðir og næsta víst er að hörkufjör verði í Hraunbyrgi! Boðið verður upp á léttar veitingar.
Á síðasta fundi fóru Castorleikarnir fram. Þá kepptu flokkar sveitarinnar innbyrðis í hinum ýmsu kappleikjum í fínasta veðri, asahláku og myrkri. Keppt var í reiptogi, skátafótbolta á L-laga velli og brennó. Leikar fóru sem hér segir:
Castormeistarar í reiptogi eru Izar.
Castormeistarar í skátafótbolta og brennó eru Sirius.
Sigurvegarar leikanna, og Castormeistararnir 2011 eru því skátarnir í Sirius. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju með sigurinn.
Við minnum jafnframt á að fundurinn á miðvikudaginn, 16. febrúar, fellur niður vegna Grunnskólahátíðar Hafnarfjarðar.
Þann 22. febrúar n.k. munum við aðeins bregða frá hinu vanalega fundarformi okkar. Við ætlum að halda upp á „Thinking Day“ sem er afmælisdagur Baden Powell, stofnanda skátahreyfingarinnar.
Fundurinn mun hefjast klukkan 18:00 og í lok fundarins verða sungin nokkur lög og boðið uppá heitt kakó að hætti skáta. Áætlað er að fundurinn klárist 19:15.
Á fundinum munum stúlkurnar kynna, fyrir fjölskyldum sínum, skátastarf í landi að eigin vali og fá þær fundinn á morgun, 14.febrúar til undirbúnings.
Óskandi væri að stúlkurnar kæmu með gögn til að vinna úr á fundinum, t.d. bækur, myndir eða útprentuð gögn af internetinu.
Löndin sem flokkarnir hafa valið eru:
Spætur – Egyptaland
Tófur – Færeyjar
Pokarottur – Ítalía
Trítlur – Frakkland
Vonum að við sjáum sem flesta þann 22. febrúar :)
Sveitaforingjar,
Kolfinna (kolfnna(hjá)hraunbuar.is, s.8465685),
Birna (birna(hjá)hraunbuar.is, s.8684843)
Anna Íris (anna(hjá)hraunbuar.is, s.6610051)
Bréfið sem Rauðskinnur fengu heim á síðasta fundi má lesa í heild sinni með því að smella á “lesa alla frétt”.