Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá september, 2010

Flokkakeppni Rauðskinna

september 12th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Á Rauðskinnufundi næsta þriðjudag verður heldur betur fjör. Nýskipaðir flokkar munu etja kappi saman í ógnarspennandi flokkakeppni, en ásamt því verður farið yfir vígslugrunninn með nýliðunum og bréfin til vinaskátasveitarinnar á Akureyri kláruð, ef tími gefst.

Í dag eru fjórir stórir flokkar í Rauðskinnum: Tveir tólf ára flokkar: Spætur og Tófur, einn ellefu ára flokkur: Pokarottur, og einn 10 ára flokkur: Trítlur. Vonandi mun flokkunum, og þar með Rauðskinnum, fjölga þegar líður á veturinn eins og gerðist síðasta vetur!

Sjáumst allar eiturhressar á þriðjudaginn!

Kolfinna, Árný og Birna sveitaforingjar

Flokkur: Rauðskinnur | Comments Off

Rauðskinnur skipta í flokka

september 7th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Minnum Rauðskinnur á fundinn á eftir kl.18. Skipt verður í flokka og flokkseinkenni gerð, ásamt öðru, svo ekki láta ykkur vanta ef þið ætlið að vera memm í vetur!

Sjáumst á eftir,

Birna, Kolfinna og Árný sveitaforingjar

Flokkur: Rauðskinnur, Sveitir | Comments Off

Nýir fundartímar Rekkaskáta

september 6th, 2010 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Ákveðið var að færa Rekkaskátafundina, og verða tímarnir því ekki eins og auglýst var í kynningarbæklingi sem Hraunbúum barst í síðustu viku.

Nýi fundartíminn er á þriðjudögum kl. 20:00.

Flokkur: Rs. Asterix, Sveitir | Comments Off

Rekkaskátar athugið!

september 1st, 2010 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Nú fer að líða að því að hulunni verði svipt af nöfnum rekkaskátaforingja vetrarins. Allir rekkaskátar ættu að hafa fengið bréf með upplýsingum um fyrsta fundinn. Ef þú ert núverandi eða tilvonandi rekkaskáti og hefur ekki fengið fundarboð, hafðu þá samband við skrifstofu Hraunbyrgis til að fá upplýsingar.

Flokkur: Rs. Asterix, Sveitir | Comments Off