Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá september, 2010

Ný dagskrá Drekaskáta

september 27th, 2010 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Gerðar hafa verið smávægilegar breytingar

á dagskrá Drekaskáta þessa önnina.

Uppfærða dagskrá má sjá með því að ýta á

“lesa alla frétt.” Lesa alla frétt »

Flokkur: Grábræður, Hraunálfar, Sveitir | Comments Off

Rauðskinnur æfa leiklist

september 26th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Ahoy!

Minnum Rauðskinnur á að koma með leikmuni og búninga á fundinn næsta þriðjudag, því viðfangsefni fundarins verður leiklist og skemmtiatriðagerð.

Nú þurfa sko allar Tátur, Tófur, Trítlur, Pokarottur og Spætur að mæta því gerð verða skemmtiatriði fyrir foreldrakvöldvökuna í næstu viku. Þetta verður sko fjör.

Foreldrar, munið að taka þriðjudaginn eftir viku frá:)

Minnum líka á ævintýraleikinn næsta laugardag – sjá frétt fyrir neðan.

Hittumst heil!

Birna, Árný og Kolfinna sveitaforingjar

Flokkur: Rauðskinnur, Sveitir | Comments Off

Ævintýraratleikur í Hraunbyrgi

september 24th, 2010 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Laugardaginn 2.október bjóða Hraunbúar skátum og foreldrum  þeirra í ævintýraratleik í Hraunbyrgi og nágrenni. Dagskráin hefst kl. 13:00 og mun henni ljúka kl. 15:00. Boðið verður upp á kaffi, djús og kex að ratleik loknum.

Sérstök dagskrá verður fyrir Dróttskáta og Rekkaskáta.

Við hvetjum alla til að mæta og eiga skemmtilegar skátastundir!

Flokkur: Viðburðir | Comments Off

Dagsferð Riddara

september 22nd, 2010 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Laugardaginn 25. september ætla Riddarar að hittast uppi við Hvaleyrarvatn klukkan 10:00 og ganga að Kaldárseli og til baka. Síðan verðum við með kanóana á vatninu, reynum að veiða silung og förum í nokkra leiki.

Svo kveikjum við eld og grillum pylsur áður en farið verður heim. Við reiknum með að fara heim klukkan 16:00.

Foreldrum er velkomið að vera með og taka þátt í fjörinu og aðstoð þeirra er vel þegin. Þeir foreldrar sem hafa áhuga á að koma með mega gjarnan hafa samband við Claus.

Þar sem þetta er útiferð verða allir að vera vel klæddir og hafa með sér regngalla, húfu og vettlinga.

Gott er að hafa með sér eitthvað að drekka á göngunni og þeir sem vilja reyna að veiða þurfa að hafa veiðistöng og beitu með sér.

Frekari  upplýsingar veitir Claus í síma 867 1257.

Flokkur: Dagsferðir, Riddarar, Sveitir | Comments Off

Rauðskinnufundur 21.09.10

september 21st, 2010 by Birna Sigurðardóttir

Jæja, það var nú aldeilis hress fundur hjá okkur í dag :)

Við byrjuðum með því að setja fundinn og fórum svo í það að kveikja eld. Á meðan eldurinn var að kvikna, fékk hver stúlka poka þar sem hún blandaði saman hráefnum í hike-brauð.

Stelpurnar áttuðu sig fljótt á því hvað þurfti til þess að deigið yrði rétt og gátu loks grillað fína brauðdeigið yfir eldi.

Það gekk hægt að grilla en allir skemmtu sér þó konunglega við að grilla og syngja, þó að hitinn frá eldinum hafi verið nær óbærilegur um stund.

Vonandi smökkuðust brauðin vel og við vonum að allir hafi haft gaman af.

Minnum á að á næsta fundi, 28.09.10 verða undirbúin skemmtiatriði fyrir foreldrakvöldvöku Rauðskinna sem verður haldin 05.10.10.  Því er tilvalið að mæta með búninga og þess háttar.

Sjáumst í næstu viku,

Árný, Birna og Kolfinna sveitaforingjar

Flokkur: Rauðskinnur, Sveitir | Comments Off

Rauðskinnur baka brauð

september 19th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Howdy!

Eftir síðasta sveitarfund Rauðskinna var Mokkasíufundur, en Mokkasíur er nafnið á sveitaráðinu. Því tilheyra flokksforingjar ásamt sveitarforingjum. Stelpurnar voru þrusu duglegar og skipulögðu næsta fund eins og þær hefðu aldrei gert annað. Niðurstaðan varð sú að á þriðjudaginn ætlum við að vera úti, kveikja bál og baka eitthvað gómsætt yfir eldinum. Allir þurfa þess vegna að vera klæddir fyrir útiveru.

Sjáumst sem allra flestar,

Árný, Birna og Kolfinna sveitaforingjar

P.S. Tékkið á nýju skátapeysunum:

http://www.skatar.is/vefur/default.asp?ItemGroupID=14&ItemID=1636

P.S.2 Það eiga ennþá nokkrar Rauðskinnur eftir að skrá sig, munið eftir að fá skráningablað á skrifstofunni!

Flokkur: Rauðskinnur | Comments Off