Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Vel heppnað kynningarkvöld

Skrifað af Una Guðlaug Sveinsdóttir þann 26. ágúst 2010

Í gær var margt um manninn og mikið fjör í Hraunbyrgi! Gífurlegt magn af pylsum rann ljúflega niður í spennta núverandi og tilvonandi skáta og foreldra þeirra. Hoppukastalar og leiktæki vöktu mikla lukku og eftirvænting ríkti fyrir hinu skemmtilega starfsári sem er framundan.

Fundir hefjast mánudaginn 30. ágúst, og fundartíma má sjá hér hægra megin á síðunni. Hægt er að skrá sig í skátana á skrifstofunni, sem verður opin á meðan á fundum stendur.

Óskilamunir frá Vormóti og útilífsnámskeiðum sumarsins eru í Hraunbyrgi, og er ennþá hægt að koma við og líta á þá.

Sjáumst í næstu viku!


Tengdar færslur:

  1. Vel heppnað ítalskt kvöld
  2. Vel heppnaður dagur
  3. Vel heppnað námskeið
  4. Skeytasala
  5. Vel heppnuð dagsferð

Þessi grein var skrifuð þann 26. ágúst 2010 kl. 11:28 f.h. og er skráð í flokkinn Viðburðir. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.