Kynningarkvöld í Hraunbyrgi
Skrifað af Una Guðlaug Sveinsdóttir þann 18. ágúst 2010
Miðvikudaginn 25. ágúst ætla Hraunbúar að kynna skátastarf vetrarins. Fjörið hefst klukkan 18:00 í Hraunbyrgi. Boðið verður upp á pylsur, djús og kaffi. Einnig verða hoppukastali og leiktæki á svæðinu og klifurveggurinn verður opinn. Sveitarforingjar verða á staðnum til að kynna dagskrá vetrarins.
Óskilamunir frá sumrinu verða á borði og viljum við hvetja alla til að kíkja á þá.
Sjáumst á miðvikudaginn!
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 18. ágúst 2010 kl. 2:19 e.h. og er skráð í flokkinn Viðburðir. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


