Fréttir af Kilke-förum
Skrifað af Smári Guðnason þann 2. ágúst 2010
Tölvuálfar báðu Kilkefara um að senda okkur smá fréttir af og til. Hér kemur fyrsta fréttin.
Hópurinn hittist á Keflavíkurflugvelli árla þriðjudagsmorguns og vélin fór i loftið kl 8. Við lentum í Helsinki um hálf þrjú á finnskum tíma og við tók tveggja tíma rútuferð á mótssvæðið. Mótssvæðið er gjörsamlega gerólíkt því sem við eigum að venjast á Íslandi því það er risastór skógur en ekki grasflöt.
Þegar við komum á svæðið hittum vid finnska jafnaldra okkar sem eru með okkur í tjaldbúð. Vid erum mikið búin að vera med þessum krökkum í gegnum mótið og allir eru orðnir vinir.
Dagskráin hefur verið ágæt og verið allt frá því að vera skemmtilegir póstar svo sem vatnadagskra eða þjónustustörf við mótið.
Veðrið hefur verið með besta móti og sól nánast allan tímann. Eini gallinn er allt rykið í loftinu og jarðveginum sem þyrlast upp þegar maður stígur niður sem kemur útaf þurkinum.
Núna eru 2 heilir dagar eftir af mótinu en eftir það förum við í heimagistingu í Helsinki þar sem við fáum að kynnast lífi heimamanna ásamt fleiru.
Öllum líður vel og allir hafa skemmt sér konunglega hér í Finnlandi.
Með bestu kveðju,
Kilke-farar
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 2. ágúst 2010 kl. 12:38 e.h. og er skráð í flokkinn Erlendir viðburðir, Skátamót. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


